Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Sirrý biðlar til stjórnmálafólks: „Hversu mikið er hægt að leggja á eina konu?“

Sirrý Arnardóttir
Sirrý Arn­ar­dóttir Mynd: sirry.is – skjáskot

Sirrý Arnar­dóttir, kennari og fjölmiðla­kona skrifaði færslu á Facebook-vegg sínum í dag sem snerti hjarta­strengi lesenda.

Í færslunni talar hún um konu ógleymanlegt viðtal sem hún átti við konu að nafni Steinunn Jakobs­dóttur fyrir þáttinn „Fólk með Sirrý“. Þá var Steinunn lífsglöð ung kona með tvö myndarleg börn og ræktaði skemmtilega hunda. Skömmu síðar fékk hún heila­blóðfall og við það missti Steinunn nánast allt. Í dag, 18 árum síðar, má hún gera sér það gott að lifa af 16 þúsund krónum á mánuði eftir að reikningarnir hafa verið greiddir. Skorar Sirrý á stjórnmála­fólk og fjölmiðla­fólk í færslunni. Sirrý gaf Mannlífi góðfúslegt leyfi til að birta færsluna í heild sinni. Hún er hér að neðan:

,,Reynir að lifa af sextán þúsund krónum á mánuði“ er fyrirsögn í Frétta­blaðinu um helgina. Mér er nóg boðið. Hversu mikið er hægt að taka af fólki?

Ég starfaði í 30 ár sem fjölmiðla­kona og sum viðtöl lifa meira með mér en önnur. Eitt sinn fór ég í Mosfells­bæinn að taka viðtal fyrir sjónvarps­þáttinn minn ,,Fólk með Sirrý“ við Steinu, 27 ára lífsglaða konu, sem ræktaði svo sérstaka og skemmtilega hunda. Heim­sóknin var ógleymanleg því heima hjá henni var svo mikið líf og fjör. Steinunn Jakobs­dóttir var fjölskyldu­kona með tvö myndarleg börn sem voru að teikna og lita í stofunni innan um hunda, ketti, fugla og úti í garði voru lögreglu­hundar sem voru í þjálfun hjá sambýlis­manni Steinu. Hún vann úti og rak líka litla verslun með gælu­dýrafóður í Mosfellsbæ. Það var svo skemmtilegt að koma inn á þetta líflega heimili.

Næsta sem ég frétti af Steinu var að hún fékk heila­blóðfall 27 ára og missti við það næstum allt. Hún lamaðist og notar hjólastól, er með heila­skaða og sér illa. Við tók endur­hæfing í nokkur ár og hún gat ekki alið upp börnin sín eða haldið heimili. Hún missti næstum allt. Það biður enginn um að fá heila­blóðfall og verða öryrki til lífstíðar. Steina er í þeirri stöðu núna 18 árum eftir áfallið að hún er að missa tækifærið til sjálf­stæðrar búsetu. Húsaleigu­bætur hættu að berast um áramót (út af einhverjum breytingum í kerfinu) og hún á 16 þúsund krónur eftir þegar reikningar hafa verið greiddir. Matur er munaðar­vara. Og sjúkra­þjálfun er lúxus. Steina hefur sýnt mikinn dugnað að búa ein í íbúð í Mosfellsbæ í mörg ár. Það mun kosta samfélagið miklu meira ef hún missir íbúðina. Hvar á hún þá að búa? Og hvað mun það kosta Mosfellsbæ. ,,Computer says no“ einhversstaðar í kerfinu. En ég skora á bæjar­yfirvöld og Húsnæðis- og mannvirkja­stofnun að finna smugu, opna nýjar leiðir og laga þetta. Kerfi eru búin til af fólki. KOMA SVO. Hversu mikið er hægt að leggja á eina konu? Móðir sem fær heila­blóðfall og lamast 27 ára á ekki að þurfa að biðja um mat og missa heimilið sitt á miðjum aldri. Hversu mikið á ein manneskja að missa?

Helga Möller og aðrir í stjórn­málum í Mosó er ekki hægt að ganga í málið? Nánar má lesa um málið í Frétta­blaði helgarinnar. Fjöl­miðlar ættu líka að taka málið áfram, fylgja því eftir og sjá hver tekur á málum. Heiðar Örn Sigurfinnsson Sigmundur Ernir Rúnarsson Björk Eiðs­dóttir Linda H. Blöndal Arnar Björnsson Hrafnhildur Halldórs­dóttir

Mér kemur þetta í raun ekki við en sumir viðmælendur hafa meiri áhrif á mann en aðrir og Steina á betra samfélag skilið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá