Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Síðustu skilaboðin sem Chris sendi eftir að hafa myrt fjölskyldu sína: „Hvað gerðirðu?“

Chris Watts
Chris Watts

Í nýju myndbandi sem komist hefur í dreifingu á netinu má sjá skýrslu­töku Nichol Kessinger hjá lögreglu, hvar hún sýnir texta­skilaboð sem þáverandi kærasti hennar, Chris Watts, sendi henni stuttu eftir að hann myrti fjöl­skyldu sína.

Chris Watts var sakfelldur fyrir að myrða ófríska eiginkonu sína, Shanann Watts, og dætur þeirra tvær, Bellu og Cece, árið 2018. Upphaf­lega hafði hann farið mikinn í samskiptum við lögreglu og fjölmiðla þegar í ljós kom að Shanann og dætur þeirra voru „týndar“. Chris lék hlutverk áhyggju­fulla fjölskyldu­föðurins á meðan fjöl­skylda, vinir og lögregla leitaði að mæðgunum. Hann kom meðal annars fram í frétta­tíma sjón­varpsins og bað um að elskuleg eiginkona hans og dætur myndu skila sér til baka á heimili fjöl­skyldunnar, í Colorado í Banda­ríkjunum, heilu og höldnu.

Chris, Shanann og dætur þeirra tvær, Bella og Cece.

Viðhélt ímynd elskandi fjölskylduföðurs

Tilkynnt var um hvarf mæðgnanna þann 13. ágúst árið 2018. Chris játaði síðar að hafa myrt þær Shanann, sem var komin 15 vikur á leið með þriðja barn þeirra, Bellu, fjögurra ára og Cece, þriggja ára, og falið lík þeirra á vinnu­svæði sem hann starfaði á dagana í kringum morðin.

Hann játaði morðin á sig fyrir dómi þann 6. nóvember árið 2018 og fékk fimm samfellda lífstíðar­dóma, án möguleika á reynslu­lausn.

Í ljós kom að Chris hafði haldið framhjá Shanann um nokkurt skeið og var farinn að bera eitraðar tilfinningar til eiginkonu sinnar. Það hvernig honum tókst að viðhalda ímynd sinni sem elskandi eigin­maður og fjölskyldu­faðir á meðan undir niðri blunduðu slíkar hvatir og siðleysi, reyndist aðstand­endum afar þungbært og hroll­vekjandi.

Málið var reifað í heimildar­þáttunum „American Murder: The Family Next Door“ á Netflix.

Shanann Watts

„Hvar er fjölskyldan þín?“

Í mynd­bandinu sem fór í dreifingu nýverið, sem var tekið upp þegar lögreglu­rannsóknin á hvarfi mæðgnanna var enn í gangi, sagði Nichol, hjákona Chris, frá sambandi þeirra tveggja og greindi frá því hvernig hún gekk á hann eftir að hvarf fjöl­skyldu hans komst í fréttirnar.

Vefmiðillinn People hefur gengið úr skugga um raunmæti mynd­bandsins, sem er að sögn þriggja klukkstunda langt. Í því fer Nichol yfir texta­skilaboð sem þau Chris skiptust á eftir hvarf Shanann og systranna tveggja.

„Ég spurði hann ítrekað, „Hvað gerðirðu Chris? Hvað gerðirðu?““ sagði Nichol. „Ég spurði hann, „Hvar er fjöl­skyldan þín?““

Nichol sagðist hafa fundið fyrir miklu álagi á þessum tíma­punkti og að hún hafi sent honum önnur skilaboð, þar sem hún sagði: „Ef þú gerðir eitthvað slæmt þá muntu eyði­leggja líf þitt og mitt líf líka. Ég lofa þér því.“ Hún segir Chris hafa svarað á eftir­farandi hátt: „Ég skaðaði fjöl­skylduna mína ekki, Nicky.“

Nichol segir þetta hafa verið síðustu texta­skilaboð sem hún fékk frá Chris. „Ég sagði ekki eitt einasta orð við hann eftir þetta,“ sagði hún við rannsóknar­lögreglu­mennina.

Getur ekki fundið rauð flögg þegar hún horfir til baka

Í mynd­bandinu segir Nichol einnig að Chris hafi sagst vera farinn frá eiginkonu sinni; þau væru skilin að borði og sæng en að hann ætlaði sér að sækja um lögskilnað. Hún sagði lögreglu­mönnunum sem yfir­heyrðu hana að Chris hefði þó aldrei verið „fjandsamlegur“ þegar hann talaði um fjöl­skyldu sína.

„Við áttum nokkrar samræður um samband hans og hvernig það hafði þróast,“ sagði Nichol í yfirheyrslunum, samkvæmt People. „Það var aldrei nein reiði. Það var enn bara vingjarnlegt. Hann sagði bara: „Þetta er ekki að ganga.““

Nichol sagði lögreglu að hegðun Chris í gegnum samband þeirra hefði aldrei verið „óvenjuleg eða ógnandi á neinn hátt.“

„Jafnvel enn þann dag í dag, eftir allt sem ég hef komist að, þá horfi ég ennþá til baka og get ekki séð nein rauð flögg, engar viðvörunar­bjöllur, varðandi það hvernig hann talaði um fjöl­skylduna sína,“ sagði hún.

Ef þú, eða einhver nákominn þér býr við heimilis­ofbeldi, bendir Mannlíf á eftir­farandi upplýsingar frá lögreglu:
https://www.logreglan.is/fraedsla/ofbeldi/heimilisofbeldi/

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall