Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Fjöldahandtökur í aðgerðum gegn hinsegin fólki í Tyrklandi

Máls­meðferð hafin gegn 162 einstak­lingum, níu samtökum og 13 fyrir­tækjum

Recep Tayyip Erdogan
Recep Tayyip Erdogan Er for­seti Tyrk­lands Mynd: ADEM ALTAN / AFP

Tyrkneska lögreglan réðst í dag inn á samkomu­staði hinsegin fólks og heimili LGBTQ-aðgerðar­sinna víða um land. Fjöldi fólks var hand­tekinn og rannsókn hafin á tugum einstaklinga, félaga­samtökum og fyrir­tækjum.

Akin Gürlek, dómsmála­ráðherra Tyrklands, greindi frá því að aðgerðirnar hefðu farið fram undir yfir­skriftinni „Fjöl­skylda mín er örugg“ og náð til 15 héraða, þar á meðal Istanbúl og Ankara.

Að sögn ráðherrans hefur verið hafin máls­meðferð gegn 162 einstaklingum, níu samtökum og 13 fyrir­tækjum. Hann upplýsti ekki hversu margir hefðu verið hand­teknir en sagði aðgerðirnar tengjast átaki stjórn­valda sem Recep Tayyip Erdogan Tyrklands­forseti hefur kennt við „áratug fjöl­skyldunnar“. Markmiðið sé meðal annars að vernda börn, fjöl­skylduna sem stofnun og samfélags­skipan.

Í Istanbúl réðst lögregla meðal annars inn á nokkra bari sem einkum eru sóttir af samkyn­hneigðum og nætur­klúbb sem hefur verið þekktur sem griða­staður hinsegin samfélagsins. Þá var einnig gerð aðgerð á tyrknesku baðhúsi sem grunur leikur á að tengist vændi.

Hinsegin­réttinda­samtökin Kaos GL segja að fleiri en tíu félags­menn þeirra hafi verið hand­teknir eftir húsleitir á heimilum þeirra. Samtökin halda því jafnframt fram að fjölmörgum vefsíðum og samfélags­miðla­reikningum hafi verið lokað.

Að sögn Kaos GL saka yfirvöld samtökin um að hafa birt efni sem teljist klám­fengið eða ósæmilegt og hafi verið aðgengilegt börnum. Yfirvöld höfðu áður krafist þess að reikningi samtak­anna á X yrði lokað, auk reikninga um 15 annarra hinsegin samtaka.

Samkyn­hneigð er ekki refsiverð í Tyrklandi en Erdogan hefur ítrekað beitt harðri orðræðu gegn hinsegin fólki. Öz­gül Saki, þingmaður vinstri­sinnaða DEM-flokksins, fordæmdi aðgerðirnar og sagði ekki hægt að banna eða takmarka tilvist hinsegin fólks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs