Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Segir RÚV hafi haft sig að fífli: „Verðugt verkefni að fá botn í frásagnir manneskjunnar“

Vítalía og Arnar.
Vítalía og Arnar.

Sigurður G Guðjónsson lögmaður tjáir sig um RÚV og mál Vítalíu Lazarevu á Facebook í dag. Þar fullyrðir hann að Ríkis­sjónvarpið hafi haft sig að fífli í umfjöllun sinni um mál Vítalíu.

„Frétta­stofu RÚV hefur á einhver óskiljanlegan hátt fengið þá ímynd að vera traust frétta­stofa; segja fréttir sem byggjast á gildum heimildum viðurkenndrar blaða- og frétta­mennsku. Svo er alls ekki. Þar skiptir sann­leikurinn litlu falli hann ekki að sögunni sem segja á. Þess vegna er ekki haft fyrir því að skoða báðar hliðar mála, ef koma má höggi á þá eða þær manneskjur sem taldar eru standa höllum fæti þjóð­félagslega vegna einhvers konar ásakana.“

Undan­farið hefur verið fjallað nokkuð í fjöl­miðlum um starfslok Eggerts Þór Kristófessonar sem forstjóra hjá Festi. Fyrir liggur að starfs­lokin voru ekki að hans vilja. Í fréttum sumra fjölmiðla hafa starfs­lokin verið tengd við hið svokallaða Vítalíu-mál, en Vítalía Lazareva vakti lands­athygli snemma á árinu er hún steig fram í viðtali við Eddu Falak og lýsti því hvernig fjórir menn hefðu misboðið henni kynferðis­lega í sumar­bústaðar­ferð haustið 2020. Ennfremur sakaði hún fjölmiðla­manninn Loga Bergmann um að brot gegn sér á hóteli ári síðar.

Í gær steig síðan Arnar Grant fram og sagði að frásögn Vítalíu væri ekki fjarri lagi, en hann á að hafa verið á staðnum þegar meint brot áttu sér stað í sumar­bústaða­ferð.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Sigurður tjáir sig um má Vítalíu, en hann virðist hafa verið gripinn við það að taka myndir af Vítalíu og birta í leyfis­leysi. Hann sagðist þó ekkert kannast við það.

Honum finnst þó eitthvað bogið við frétta­flutning RÚV, en í færslu sinni byrjar hann á að ræða starfslok Eggerts Þórs Krist­óferssonar forstjóra Festis, en það mál og mál Vítalíu hafa verið tengd saman. Sigurði finnst það sérstakt.

„Það sem vakti hins vegar athygli við fréttina var hvernig frétta­stofunni tókst að þvæla nafni þjóð­þekktrar manneskju inní fréttina, og í besta falli óljósum og marg breyttum frásögnum hennar af meintum kynferðis­brotum.

Við þá umfjöllun voru notaðar myndir af tveimur öðrum manneskjum sem eiga hlut í vinnu­veitandanum. Manneskjan hefur borið sakir á þessar tvær manneskjur og fleiri þar á meðal ástmanneskju sína.“

Þá hefst sögu­skýring Sigurðar af málinu, en hún er eftir­farandi:

„Manneskja kom fyrst fram með ásakanir sínar á samfélags­miðlum í október 2021, þegar samband hennar og ástmanneskjunnar hafði súrnað. Síðan dró manneskjan allt til baka gagnvart ástmanneskjunnu og þau voru sem eitt í atlögum sínum að þremur manneskjum og fjöl­skyldum þeirra.

Um jólin 2021 urðu vatnaskil því þá réðst manneskjan með hörku að ástmanneskjunni og sakaði hana um að hafa selt hana mansali og fjallaði ítarlega um það í hlaðvarpi.

Manneskjan vildi kæra ástmann­esjuna fyrir mansal og hlaut mikið lof fyrir framgöngu sína.

Nú hafa á ný orðið vatnaskil manneskjan hefur helst áhyggjur af því að ástmanneskjan fái ekki að spila golf með þeim sem hún telur að ástmannekjan eigi rétt til að spila golf með. Áður hafði hún haft áhyggjur af ferð ástmanneskjunnar í manngert lón með útlendri manneskju.

Ástmanneskjan er sátt með þennan viðsnúning og segist ætla að vera vitni þegar og ef manneskjan kærir, enda verði hið sanna að koma í ljós. “

Að lokum skorar Sigurður á „alvöru fjölmiðil“ að komast að botni þess sem átti sér stað í málinu.

„Það væri verðugt verkefni einhvers alvöru fjöl­miðils að reyna að að fá einhvern botn í frásagnir manneskjunnar og ástmanneskjunnar en ekki láta hafa sig að fíflum umfram það sem orðið er.

Góða fólkið fer vonandi að átta sig á því að samfélags­miðlar og RÚV eru ekki alltaf bestu heimildir sann­leikans, frekar en klæðskeri nakta konungsins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá