Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Indverskum sýnanda á Icefish 2022 bannað að koma: „Ekki að hjálpa til við að skapa betra traust“

Útlendinga­stofnun hefur hafnað erlendum sýnanda á sjávarúvegssýningunni Icefish 2022 um vegabréfs­áritun.

Samkvæmt heimildum Mannlífs hefur starfs­mönnum í Indversku fyrirtæki verið meinað um vegabréfs­áritun. Unnið hefur verið að undir­búningi Icefish frá 2017 og verður hún haldin daganna 8. til 10. júní næst­komandi. Indverska fyrir­tækið er með bókaðan bás á sýningunni, hefur greitt fyrir þátt­tökuna og er búið að kaupa flugmiða fyrir fjóra starfs­menn til að setja upp og vera á básnum, sem og bóka hótel fyrir mann­skapinn.

Fyrir­tækið byrjaði vegabréfs­áritunar­ferlið hjá Útlendinga­stofnun í febrúar 2022 og ætlaði sér að fljúga í dag, 5. júní til Íslands og setja upp sinn bás. Þann 3. júní fá þeir tilkynningu frá Útlendinga­stofnun um að umsókninni þeirra hafi verið hafnað, tveimur dögum fyrir flugið. Eina ástæðan sem gefin er upp hjá Útlendinga­stofnun er að það leiki vafi á um réttmæti umsóknarinnar. Það er þrátt fyrir að Útlendinga­stofnun óskaði eftir og fékk stað­festingu þess efnis að fyrir­tækið væri skráð á Icefish 2022, búið að greiða fyrir þátttöku sína og hefði verið viðskipta­vinur Icefish 2022 frá árinu 2018.

Icefish sýningin er alþjóðleg sýning sem hefur verið haldin hér á landi frá árinu 1984. Á sýningunni verða um 200 fyrirtæki og er um 40% af þeim erlendir sýnendur sem koma víðsvegar að utan Íslands til stunda viðskipti.

Samkvæmt Ómari Má Jónssyni hjá Icefish er þetta í fyrsta skipti sem slíkt gerist í sögu sýningarinnar að sýnanda er hafnað inn í landið til að taka þátt í að skapa og efla sín viðskipta­tengsl á íslenskri grundu.

„Þetta er bagalegt þar sem mikil vinna hefur farið í að byggja upp sýninguna með sýnendum og þetta er ekki að hjálpa til við að skapa betra traust og trúverðug­leika til að eiga viðskipti á Íslandi við íslensk fyrirtæki,“ sagði Ómar í samtali við Mannlíf.

Bætti hann því við að vekja þurfi athygli á stöðunni og „hvort við séum í raun farin að þrengja að eðlilegum viðskipta­samböndum milli landa vegna Schengen-samstarfsins, eða hvort Útlendinga­stofnun sé að fara fram úr sér að túlka Schengen samstarfið.“

Ekki náðist í Útlendinga­stofnun í dag vegna helgar­lokunar.

Hér má sjá höfnun Útlendinga­stofnunar:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Skiptum á búi lauk rúmum þremur og hálfu ári eftir gjaldþrot félagsins, án þess að greiðslur fengjust upp í kröfur.
Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá