Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

„Ég gæti verið dáinn núna“ – Páll Óskar segir mistök að fresta göngunni – Hinsegin fólk í sárum

„Það er hræðilegt að horfa upp á svona atburði. Ég sendi samúðar­kveðjur til aðstand­enda þeirra látnu og annars fólks sem þessi hroðaverk snerta sérstak­lega. Ég vil hvetja allt hinsegin fólk til að standa saman á svona tímum. Haldið hvert utan um annað, leitið til vina ykkar og haldið áfram að vera stolt. Það er sorgar­dagur í dag og sorgin er í aðal­hlutverki en styrkur okkar, kjarkur og stolt mun ekki þverra á kostnað ótta. Við erum sterkt samfélag ef við stöndum saman.“

Þetta skrifar Álfur Birkir Bjarnason, formaður Samtak­anna 78, á Facebook um voða­verkin sem framin voru í Noregi í nótt. Tveir létu lífið og yfir 20 særðust í skot­árásinni í Osló. Í morgun hefur fjöldi hinsegin Íslendinga vottað Norð­mönnum samúð sína enda fólk harmi slegið vegna frétta af hryðju­verkum svo nærri okkur. Þó sorgin sé mikil þá er baráttu­andi mikill meðal margra. Skot­árásin sýni enn og aftur mikilvægi mann­réttinda­baráttu hinsegin fólks.

„Osló – hugurinn hjá fórnar­lömbum og aðstand­endum, hinsegin samfélaginu og allri norsku þjóðinni vegna þessarar hræðilegu skot­árásar. Enn og aftur sannast að full þörf er á að halda mann­réttinda­baráttu hinsegin fólks áfram,“ skrifar Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags­mála- og vinnu­markaðs­ráðherra.

Alexandra Briem, borgar­fulltrúi Pírata, óttast að sá minni­hluti almennings sem stendur gegn hinsegin fólki sé að verða örvæntingar­fyllri.

„Það er ljóst að bakslag gegn frjáls­lyndi og frelsi, og sérstak­lega gegn réttindum hinsegin fólks, er orðið að veruleika. […] Vissulega er meirihluti fólks ekki búinn að snúast á sveif með þessum öfgum. En reiði minnihluta­hópurinn sem er á móti okkur, sem er á móti frelsi og jafnrétti, er orðinn örvæntingar­fyllri. Þau upplifa að þau séu í raun búin að tapa slagnum um almennings­álitið, svo í staðinn svífast þau einskis í að misnota reglurnar til að ná sínu fram þar sem þau geta og ráðast fram með ofbeldi þar sem þau sjá ekki fram á að ná sínu fram. Það er ljóst að það er viss hópur sem ætlar sér ekki að una því að við fáum að vera til í friði og njóta jafnréttis á við önnur. Og einhver hluti þeirra vill frekar myrða okkur en taka á hættu að við gætum verið hamingjusöm og frjáls.“

Hanna Katrín Friðriksson, þingkona Viðreisnar, er sömuleiðis hugsi yfir þessu bakslagi. „Þetta eru þungir og erfiðir dagar. Hæstiréttur Banda­ríkjanna afnemur stjórnar­skrár­varinn rétt kvenna til þungunar­rofs. Afleiðingarnar eiga eftir að verða skelfilegar, auðvitað fyrst og fremst fyrir konur þar í landi, en þessi óskiljanlega afstaða mun efla kven­fjandsamleg viðhorf og aðgerðir víða um heiminn. Haturs­árás í Osló gegn hinsegin samfélaginu. Því miður ekkert nýtt, nema að því leyti að þessi hryllingur gerist í Noregi. Í norrænu velferðar­ríki. Hvað næst? Hvar? Þegar vegið er að mann­réttindum eru engin óhult. Þetta bakslag kemur okkur öllum við. Við verðum að hætta að skemmta skrattanum. Þetta er dauðans alvara.“ skrifar hún.

Eiginkona hennar, Ragnhildur Sverris­dóttir upplýsinga­fulltrúi, tjáir sig einnig og skrifar einfald­lega: „Ég er orðlaus. Sorgmædd. Hrædd. Reið.“

Gleði­ganga Norðmanna átti að fara fram í dag en henni hefur verið aflýst. Sumir telja það mistök, til að mynda, Einar Þór Jónsson, framkvæmda­stjóri HIV-samtak­anna á Íslandi. Hann skrifar: „Árásin á London Pub. Svo ótrúlega sorgleg. Missum aldrei trú á ástina og lífið. Gleði­gangan hefði átt að eiga sér stað í dag, ekki fella niður. Ekki gefast upp fyrir hatrinu.“

Steinunn Ólína Þorsteins­dóttir leikkona veltir þessu atriði fyrir sér á Facebook. Hún skrifar:

„Frelsið er dýrmætt. Hefðu norsk stjórn­völd átt að halda gleði­göngunni til streitu þrátt fyrir þessa árás? Auðvitað ekki ef talið er að fólki sé hætta búin og frekara ofbeldi í vændum en ef þetta var árás eins brjálaðs manns þá hefði kannski verið sterkari leikur að sýna hatrinu í tvo heimana og standa með kærleikanum þrátt fyrir árásina. Ég veit það ekki, velti þessu bara fyrir mér. Hvað sem öðru líður þá eru allir haturs­glæpir viðbjóðs­legir. Þetta er hræðilega sorglegur heimur sem við búum í. Ástin er merkilegasta aflið í heiminum. Allt annað er drasl.“

Sigursteinn Másson fjölmiðla­maður tekur undir með henni. Hann segir í athugasemd við færslu Steinunar: „Ég hef verið að hugsa um það sama í morgun. Af öryggis­ástæðum, á meðan verið er að ganga úr skugga um að það eru ekki fleiri með honum í haturs­glæpnum, þá er líklega réttast að halda ekki hátíðina. Hefði þó verið réttara, held ég, að fresta Pride um óákveðinn tíma í stað þess að aflýsa.“

Páll Óskar er á sama máli en hann skrifar á Facebook: „Ég hef tvisvar troðið upp á Oslo Pride og London Pub. Þetta stendur mér svo nærri, að fyrir mér gæti þessi frétt alveg eins verið um Spotlight eða Kiki. Þetta hefði auðveldlega getað verið ég. Ég gæti verið dáinn núna. Let that sink in.

Ég skil mæta vel að norsku Gleði­göngunni sé frestað á meðan verið er að athuga hvort þessi hryðju­verkamaður hafi verið í vitorði með fleirum. En þar sem það er engu líkara en að hér sé ein brotin sál að verki, (samkvæmt þessari frétt) þá myndi ég persónu­lega alls ekki fresta göngunni. Nú er einmitt rík ástæða til að fara í tilfinninga­þrungna og kraft­mikla göngu. Ég vona að þau fresti um viku, í mesta lagi, og kýli svo á það.

Það eina sem maður lærir af þessum ógeðslegu fréttum vikunnar, hinsegin fólk drepið í Noregi – og skertur réttur kvenna til þungunar­rofs í Bandaríkunum – er að þessi barátta milli haturs og kærleika verður ALDREI BÚIN. ALDREI BÚIN. ALDREI.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá