Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Helgi gagnrýndi RÚV fyrir viðtal við Þórhildi Gyðu: „Hvernig væri að fá sönnunargögn og heimildir?“

Helgi Áss Grétarsson, skákmaður, lögfræðingur og vara­borgar­fulltrúi, talar í viðtali við Mannlífið með Reyni Trausta­syni um Sjálfstæðis­flokkinn og dvínandi fylgi hans, áhrif þess að verða heims­meistari í skák 17 ára gamall svo sem óraunhæfar væntingar, áfallið við að þurfa að hætta störfum við Lagadeild Háskóla Íslands, dómstól götunnar og reiðina sem hann upplifði þegar hann árið 2003 tapaði skák fyrir einhverju norsku barni. Hér er brot úr viðtalinu.

Dómstóll götunnar

Helgi var ekki feiminn við að gagnrýna RÚV fyrir viðtal við Þórhildi Gyðu sem lýsti áreiti Kolbeins Sigþórs­sonar knattspyrnu­manns. Það þarf svolítinn kjark til að ganga á móti þessari bylgju, MeToo. Flestir fara ofan í holu og segja ekki orð.

Þú ert að fara að saka ein­hvern um eitt­hvað sem er alvar­legt sem ekki hefur verið tekið fyrir af hálfu dóm­stóla:

„Árið 2021 fann ég aftur þörf fyrir að fara að skrifa um samfélagsmál og ég fann að þetta er minn styrk­leiki. Og ég fann að aðilar í háskóla­umhverfinu höfðu haft slík áhrif á mig að ég hafði dregið úr því og það hafði dregið úr kjarkinum mínum. Það þýddi það að um leið og ég var búinn að vinna mig úr því áfalli að hætta hjá HÍ þá fann ég að fyrir þetta stend ég. Ég stend fyrir eitthvað. Ástæðan fyrir því að ég byrjaði að skrifa um þessi mál  – það er að segja réttarhöld á samfélags­miðlum og svo framvegis – er að ég upplifði hvert er viðhorf ungu kynslóðarinnar. Og það hræddi mig svolítið með tilliti til rétt­látrar máls­meðferðar og svo hitt að ég taldi mig hafa næga þekkingu á akademíska umhverfinu og þessi hugmynda­fræði öll kom frá Banda­ríkjunum og var síðan innrætt í akademíuna hér á landi og fer svo inn í skóla­kerfið „og så videre“. Það er mikilvægt að það sé staðið gegn þessu og sagt „við skulum tala um stað­reyndir“. Og það sem ég var fyrst og fremst að gagnrýna þarna í viðtalinu hjá RÚV var um þetta tiltekna viðtal: Það laut einfald­lega að því að það voru til gögn. Þú ert að tala við viðmælanda sem var með mjög alvarlegar ásakanir og gefa eitthvað í skyn. Þú ert blaða­maður. Þegar þú birtir þetta viðtal eða áður en það er tekið er eðlilegt að spyrja „hefur þú tök á að reiða fram lögreglu­skýrslu eða kæruna? Getum við fengið einhver sönnunar­gögn?“. Það er þannig sem við lögfræðingar vinnum. Þú ert að fara að saka einhvern um eitthvað sem er alvarlegt sem ekki hefur verið tekið fyrir af hálfu dómstóla: Hvernig væri að fá sönnunar­gögn og heimildir um hvað sé satt og rétt? Það sem greinin mín snerist um var það að þá hafði verið gert opinbert hverjar væru stað­reyndir málsins með tillit til hvað stæði í lögreglu­skýrslu.

Það sem var aðal­atriðið var að þessi skjöl, þessi trúverðugu gögn, gáfu til kynna að myndin væri önnur en það sem kom fram í viðtalinu. Það er eðlilegt að spyrja hver vinnu­brögð fjölmiðla­mannsins væru þegar viðtalið var tekið.“

Er Helgi ekkert smeykur við að blanda sér í þetta málefni?

„Ég hef sannað það með verkum mínum að ég stend fyrir ákveðna hluti og ég hef hugrekki til að fylgja þeim eftir. Það er erfitt.“

Fékk hann ekki á sig holskeflu þarna?

„Jú, en hvaða máli skiptir það? Ég er með verkefni eða sýn og það sem er að gerast til dæmis núna í samfélaginu er að það er popúlismi í gangi sem er tilfinninga­legur og byggður á því að samfélags­miðlar eru ný tegund af miðlum og það er svo auðvelt núna að hræra í hausnum á fólki. Það er svo auðvelt að breyta viðhorfum og skoðunum eftir nokkrar sekúndur. Það er hættulegt. Það hefur alltaf sýnt sig þegar kemur ný tækni eða þeir sem berjast fyrir því sem ég kalla ofstæki geti í skjóli þekkingar sinnar, áróðri og fleiru haft óeðlilega mikil áhrif og ég man það svo og met það svo að það verður einhver að vera tilbúinn að standa gegn svona þróun vegna þess að það er þannig sem við verjum siðað samfélag og það er þannig sem við verndum réttar­ríkið.“

Sjá má viðtalið í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Skiptum á búi lauk rúmum þremur og hálfu ári eftir gjaldþrot félagsins, án þess að greiðslur fengjust upp í kröfur.
Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá