Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Geiri kveður eftir 35 ár og býður öllum í kaffi – Gulu ástarpungarnir verða áfram á boðstólum

Mynd af facebook síðu Geirabakarís.
Mynd af facebook síðu Geira­bak­arís.

„Ég ætla að leika mér meira í golfi,“ segir Sigurgeir Erlendsson, Geiri bakari, í samtali við Mannlíf. En hann hefur rekið Geira­bakarí, í Borgarnesi síðastliðin 35 ár. Nú er komið að leiðar­lokum og Geiri sem er 69 ára snýr sér að áhuga­málunum.

Segist hann ekki eiga von á því að leiðast þar sem hann eigi mörg áhugamál sem hann hafi ekki náð að sinna sökum anna síðustu ár. „Ég er mikill áhuga­maður um veiði og útivist “ segir hann.

Mynd af facebook síðu Gera­bak­arís.

Geiri bakari og Annabella Alberts­dóttir þakka fyrir sig og bjóða gestum og gangandi til veislu, fimmtudaginn 16. mars frá 15:30 til 17:30.  Með þessu vilja þau þakka íbúum og velunnurum fyrir síðustu 35 ár sem þau hafa rekið Geira­bakarí, sem er staðsett við enda Borgar­fjarðar­brúar á Þjóðvegi 1.

Geira­bakarí hefur verið vinsæll áninga­staður hjá ferða­löngum sem eiga leið í gegn um Borgarnes enda bakkelsið þar margrómað og ekki síst ástar­pungarnir sem eru lands­frægir fyrir gula litinn.

Nýir eigendur, hjónin Sissi og Þórdís, taka síðan við rekstri Geira­bakarís frá og með 17.mars. Sissi er ekki ókunnur rekstrinum en hann hefur starfað sem bakari hjá Geira­bakarí undan­farin ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp