Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Gunnar um lóð Jóns: „Ef ég hefði verið áfram þá hefði ég ekki tekið þetta í mál – Stóð við mitt“

Einka­hluta­fé­lag, stofn­að af Jóni Gunn­ars­syni dóms­málaráherra og eig­in­konu hans í mars, keypti ein­býl­is­hús og 3,2 hekt­ara lóð í Garða­bæ á 300 millj­ón­ir mán­uði síð­ar. Dag­inn áð­ur komu ný­ir eig­end­ur inn í fé­lag­ið og Jón yfirgaf eig­enda­hópninn. Kon­an hans er með­al eig­enda og sit­ur hún í stjórn fé­lags­ins ásamt syni þeirra og tengda­dótt­ur. Stefnt er að bygg­ingu 30-40 íbúða byggð. Fyrri eig­andi reyndi ít­rek­að að fá að ráð­ast í sam­bæri­lega upp­bygg­ingu en var alltaf hafn­að af bæn­um, eins og segir í grein Stundarinnar.

Jón Gunnarsson dómsmála­ráðherra og fjöl­skylda hans eru aðal­fólkið í 300 milljóna fasteigna­viðskiptum með þriggja hektara land í Garðabæ; fyrri eigandi reyndi ítrekað að fá bæjar­yfirvöld til að samþykkja breytt deili­skipulag og leyfa byggingu íbúða á landinu en án árangurs. Síðast fyrir tveimur árum.

Þessi hópur í kringum Jón dómsmála­ráðherra hefur nú þegar leitað til arkitekta vegna hugmynda um að byggja tugi íbúðar­húsa á landinu og virðist vera búin að veðja 300 milljónum á að þau geti sannfært nýjan meirihluta í Garðabæ um að snúa af fyrri leið.

„Þú ert ekki með réttar upplýsingar,“ voru fyrstu viðbrögð Jóns þegar Stundin spurði Jón út í viðskipti félagsins:

„Það eru fleiri aðilar sem eru komnir inn í þetta félag og það er ekki búið að ganga frá kaup­samningi um eitthvað land.“

Ekki löngu síðar segir hann þó að það sé ekkert leyndarmál að félag sem þau hjónin ættu einhvern hlut í væri í ferli að kaupa land ásamt fleirum; hann væri þó ekki á meðal hluthafa lengur, en eiginkona hans sé það.

„Við erum bara þátt­takendur í félagi sem er að kaupa þarna ákveðið land. Og það er eiginlega ekkert annað um það að segja, og síðan eiga menn eftir að þróa það og skoða hvað verður gert með þetta land og hvernig það vinnst,“ sagði Jón.

Sjálf kaupin voru gerð í gegnum einka­hluta­félagið Hraun­prýði byggingar ehf. sem Jón og eiginkona hans Margrét Halla Ragnars­dóttir stofnuðu 23. mars á þessu ári: áttu hjónin félagið til helminga; minna en mánuði síðar, þann 20. apríl, keypti þetta félag einbýlishús og meðfylgjandi lóð fyrir 300 milljónir króna.

Jón segir að hann sé ekki lengur í hluthafa­hópnum. Eiginkona Jóns er það hins vegar.

Og samkvæmt Jóni, og upplýsingum frá Skattinum, á eiginkona Jóns, 26% hlut í félaginu. Skráning, um raun­verulega eigendur félagsins var uppfærð á vef Skattsins eftir að Stundin hafði samband við Jón.

En sjálfur eignar­hlutur eigin­konunnar er alls ekki eina tenging dómsmála­ráðherrans við áðurnefnt félag: Sonur Jóns, Gunnar Bergmann Jónsson er varamaður í stjórn þess og eiginkona hans, Halla Hall­geirsdóttir, er aðalmaður; stjórn félagsins er sem sé samsett af eiginkonu ráðherrans og tengda­dóttur, auk fjárfesta og aðila úr bygginga­geiranum, og þá situr sonur hans í vara­stjórn.

Verðið sem félagið Hraun­prýði byggingar greiddi fyrir eignina er í litlu samræmi við það deili­skipulag sem nú gildir, samkvæmt þeim sem þekkja vel til þessa máls.

Vert er að nefna að íbúðar­húsið á lóðinni marg­umtöluðu var metið nánast ónýtt árið 2011, þegar Ríkiskaup, sem þá sýslaði með lóðina fyrir hönd nokkurra stofnanna, sem höfðu fengið húsið í arf frá fyrri eiganda, bauð það til sölu.

Yfirlit matsmanns var lagt fram samhliða sölunni þar sem þessar upplýsingar litu dagsins ljós.

Kaup­andinn var Dalsnes ehf, félag; sem er í eigu Ólafs Björns­sonar, sem meðal annars heldur utan um eignar­hlut hans í heild­sölunni Innnes. Um leið og hann eignaðist lóðina hóf hann undir­búning að endur­skipulagningu og uppbyggingu íbúða; það var í samræmi við það sem gerst hafði á lóðunum í kring; þar hefur risið íbúða­byggð í hverfi sem fékk nafnið „Prýði“. En erindi Ólafs og áformum hans var hafnað af bæjar­yfirvöldum í Garðabæ.

Ástæðan fyrir höfnuninni var sögð sú að vernda ætti skógrækt sem fyrri eigandi hafði staðið að á landinu um langt árabil. Og þau sjónarmið bæjarins héldu þegar Ólafur kærði ákvörðunina til úrskurðar­nefndar umhverfis- og auðlinda­mála; Þessi afstaða er óbreytt: Í það minnsta á papp­írunum.

Ekki liggur ljóst fyrir í stjórn­kerfi Garða­bæjar hvort unnið sé í að breyta deili­skipulaginu; út á það virðast viðskipti fjöl­skyldu Jóns og viðskipta­félaga ganga.

Kemur fram að stjórnar­formaður félagsins, sem á þeim tíma var samt ekki orðinn slíkur, leitaði í aðdrag­anda kaupanna til arkitekta um að kanna hversu mikið bygginga­magn kæmist fyrir á lóðinni samkvæmt heimildum blaðsins.

Lóðin Hraun­tunga er gríðar­lega stór; hafa nærliggjandi lóðir þegar verið skipulagðar fyrir íbúða­byggð og hugmyndir hópsins á bak við Hraun­prýði byggingar eru að reisa á bilinu 30-40 hús á landinu.

Gunnar Einarsson, fráfar­andi bæjar­stjóri í Garðabæ, stóð í stafni gegn deili­skipulags­breytingum, og hann kannast ekki við að neinar breytingar séu fyrir­hugaðar á lóðinni: Enda hefði afstaða sveitar­félagsins verið afar skýr í gegnum mála­rekstur fyrri eigenda:

„Svo veit ég ekkert hvað framtíðin ber í skauti sér, en ef ég hefði verið áfram bæjar­stjóri þá hefði ég ekki tekið þetta í mál,“ segir Gunnar.

Hjálmar R. Bárðarson, fyrr­verandi siglinga­mála­stjóri og forstjóri Alþjóða­siglinga­mála­stofnunarinnar, var eigandi jarðarinnar Hraun­tungu og bjó þar ásamt Else konu sinni og stundaði skógrækt.

Gunnar segir um samskipti sín við Hjálmar að „við náðum mjög vel saman og hann lagði mikla áherslu á að lóðin fengi að halda sér bara svona eins og hún er; það er mikil skógrækt þarna og ég var bara alveg sammála honum í því að mér fyndist það vera skynsamlegt. Og síðan kaupir Óli í Innnes húsið, þegar Hjálmar fellur frá, og sækir á okkur með það að fá að skipuleggja þarna einhverja íbúða­byggð. Og ég bara mundi eftir orðum okkar Hjálmars og ég var alls ekki tilbúinn til þess að, ja ég segi að svíkja það loforð sem ég gaf.“

Að sögn Gunnars hafa engin áform komið inn á borð bæjar­yfirvalda og að hann hafi ekki vitað af því að húsið við Hraun­tungu hefði skipt um eigendur.

„Það hefur enginn haft samband við mig og spurt mig, enda vita menn að ég er á útleið og mér þætti það mjög furðulegt ef arftaki minn eða næsti meirihluti breytti eitthvað út af þessu, þessari sýn sem ég var að lýsa fyrir þér áðan. Að það væri svona grænt svæði á þessum stað og svo líka bara ákveðin virðing við látinn mann. En það er kannski bara eitthvað sem telur ekki í þessum nútíma­heimi, ég veit ekkert um það. En allavega stóð ég við mitt loforð.“

Jafnvel Þótt að heimildir Stundarinnar hermi að stórfelld íbúða­uppbygging sé það sem vaki fyrir fjöl­skyldu Jóns og viðskipta­félögum þeirra, vill dómsmála­ráðherra ekkert um það segja; bendir þó á að nýr stjórnar­formaður félagsins sé bygginga­meistari.

„Já já, það hlýtur augljós­lega að vera eitthvað markmið í því. Ég er að segja þér það, það á eftir að skipuleggja þetta land og fara alveg í gegnum það hvað menn ætla að gera þarna og hvað menn geta gert þarna og allt svoleiðis. Það eru aðrir að keyra það heldur en ég. Það er þarna bygginga­meistari í þessu eignar­haldi og annað gott fólk,“ segir Jón.

Vert er að nefna að Jóhann Berg Guðmundsson fótbolta­maður er í liði með fjöl­skyldu Jóns í kaupunum á Hraun­tungu. Segist Jón ekki þekkja tilraunir fyrri eiganda til þess að fá deili­skipulagi lóðarinnar breytt; né heldur að fyrir liggi eitthvað vilyrði um að slíkar breytingar myndu ná í gegn fyrir nýja eigendur.

„Bara veistu það, ég þekki þetta ekki. Hvað hefur gerst þarna áður sko. En það er auðvitað bara ekkert ákvörðun þeirra sem eiga landið nákvæmlega hvað er hægt að gera, það er samkomulag við yfirvöld og svoleiðis og liggur ekkert slíkt samkomulag mér vitanlega fyrir enda er nú bara nýbúið að kjósa þarna í sveitar­félaginu eins og öðrum sveitar­félögum.“

Stjórnar­formaður félagsins er Vignir Steinþór Halldórsson og er í dag skráður eigandi að 26% hlut, samkvæmt fyrirtækja­skrá Skattsins yfir raun­verulega eigendur; auk áður­nefndra fjölskyldu­meðlima Jóns og Vignis, eru Jóhann Berg Guðmundsson lands­liðsmaður í knatt­spyrnu og leikmaður Burnley í ensku úrvals­deildinni, og forstjóri HS Orku, Tómas Már Sigurðsson, sestir í stjórn félagsins.

Nefnt er að Tómas er ekkill Ólafar Nordal, fyrr­verandi ráðherra og vara­formanns Sjálfstæðis­flokksins, sem sat lengi á þingi með Jóni. Þá er móðir Jóhanns Bergs, Íris Gunnars­dóttir, varamaður í stjórn félagsins; eigin­maður hennar og faðir Jóhanns Bergs er Guðmundur Örn Jóhannsson framkvæmda­stjóri hjá útgáfu­félaginu Torgi, og fyrrum framkvæmda­stjóri Slysavarnar­félagsins Lands­bjargar.

Jón Gunnarsson dómsmála­ráðherra var sjálfur í því starfi áður en hann settist á þing árið 2007; 5 árum áður en Guðmundur tók við starfinu.

Þá er búið er að segja upp leigu­samningi íbúanna sem leigt hafa húsið sem stendur á Hraun­tungu.

Og Jón segir:

„Þú veist að það er hátt í 400 fm einbýlishús á þessu landi,“ segir hann aðspurður um áform hópsins; vísar til hússins sem var metið ónýtt árið 2011.

„Það er búið í því. En það þarf örugglega að laga það heilmikið til, en það er búið í því. Og þetta er einstakt svæði,“ segir hann.

Bætir við:

„Ég er ekki að fara að búa þarna, svo þú vitir það. Ég er ekki að flytja þangað.“

Húsið er vissulega á lóðinni, en fasteignamat þess er rétt rúmlega 100 milljónir króna, en í því mati er ekkert tillit tekið til þess mats sérfræðings, sem tók húsið út árið 2011, að ástand þess væri svo lélegt að ráðast þyrfti í stór­felldar endur­bætur á því; Þar hafa verið leigjendur um árabil og þeir staðfestu við Stundina að búið væri að segja upp leigu­samningnum

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá