Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ástandið á bráðamóttökunni er grafalvarlegt: „Þetta verður bara verra og verra með hverju ári“

Bráðamóttaka Landspítalans. – myndin tengist fréttinni ekki beint -Ljósmynd: Landspítalinn
Bráða­mót­taka Land­spít­al­ans. – myndin teng­ist frétt­inni ekki beint -Ljósmynd: Land­spít­al­inn Mynd: Landspítalinn

Í gær var full biðstofa á bráða­móttökunni, hátt í hundrað sjúklingar voru skráðir á deildina að bítast um þrjátíu laus meðferðar­stæði. Meira en fimm klukku­stunda bið var í sumum tilfellum eftir þjónustu þannig að mikil ringul­reið var á svæðinu og starfs­fólk undir gríðar­legu álagi.

Ástandið á bráða­móttöku Land­spítalans er grafal­varlegt. Fyrr í dag greindi RÚV frá því að fjórir hjúkrunar­fræðingar hafi sagt upp störfum á deildinni vegna lang­varandi álags og lélegs aðbúnaðar.

DV ræddi við Borislav Bukarica sem hefur verið búsettur hér á landi í 21 ár ásamt eiginkonu sinni, en þau eru bæði frá Serbíu að ástandið væri grafal­varlegt.

Borislav segir að nú sé nóg komið: „Ég er búinn að vera hérna á Íslandi í 21 ár og þetta verður bara verra og verra með hverju ári. Fyrir 10 árum síðan var bara tveggja eða eins tíma bið. Ég er með margar skyldur, ég er með börn í skóla,“ segir hann.

„Ég þurfti að bíða og bíða og bíða. Maður veit ekki hversu lengi eða eftir hverju maður er að bíða. Allir eru bara að bíða og enginn segir neitt. Hundrað manns í biðstofunni. Ég er kannski útlend­ingur, en ég er líka Íslend­ingur. Ég tala ekki bara mitt mál heldur íslensku líka. Við verðum að laga þetta, þetta gengur ekki lengur,“ segir Borislav Bukarica.

Greindist með krabbamein og töldu að meinið væri farið að láta á sér kræla

Hjónin fóru á bráða­móttöku Lands­spítalans í gær vegna hræðilegra verkja sem eiginkona hans hefur verið með síðustu þrjá mánuði. Hún greindist með krabba­mein fyrir þremur árum og hjónin grunaði að meinið væri farið að láta á sér kræla og mögulega á hættulegri stað en áður. Borislav segist blöskra hversu lengi þau þurftu að bíða eftir aðstoð og kveðst hafa upplifað mikið skipulags­leysi.

Hann segir þau hjón hafa átt mjög torvelt með að fá upplýsingar frá hjúkrunar­fræðingum. Að sögn Borislavs kom enginn til þeirra í marga tíma og svo hafi hjúkrunar­fræðingur tekið blóðsýni úr eiginkonu hans þar sem hún sátu á biðstofunni og sent þau svo heim. „Hún hefði getað dáið á meðan við biðum hérna eftir lækni,“ segir Borislav í samtali við DV um málið.

„Ég spurði nokkrum sinnum um að fá að fara bara beint inn að hitta lækni. En það var ekki hægt og eftir langa bið kom loks hjúkrunar­fræðingur og tók blóðprufu.

Hjónin þurftu að mæta aftur á spítalann í morgun því eiginkona Borislav þurfti einnig að fara í þvag­sýnatöku og ómskoðun, og þeim rann­sóknum lauk ekki fyrr en rétt fyrir hádegi í dag. „Umhyggja fyrir fólki og samkennd eru framandi setningar hér. Ég er vonsvikinn með heilbrigðis­kerfið hér.“ segir hann.

Þá segir Borislav að skipulagið á spítalanum sé hræðilegt. „Ég er að vinna á sjúkra­heimili og ég veit hvað skipulag er. Þetta er bara óþolandi. Það eru líka hjúkrunar­fræðingar hérna [hjá Lands­spítalanum] sem eru annað hvort hættir hérna, eða ætla að hætta. Ég fór í gær og mig langar bara aldrei að koma aftur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá