Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Skotinn til bana á rúntinum: „Núna get­um við tekið fyrstu skref­in í að græða sár­in“

Íslend­ingur var stadd­ur með fjöl­skyldu­vini er skotið var á þá báða fyr­ir fram­an versl­un í Tulsa í Okla­homa 8. september 2012 með þeim af­leiðing­um að Íslend­ingurinn lést samstundis.

Dave Wal­ker, rann­sókn­ar­lög­reglu­maður hjá lög­regl­unni í Tulsa. Mynd/skjá­skot

Morgun­blaðið fjallaði um málið á sínum tíma. Dave Wal­ker, rann­sókn­ar­lög­reglu­maður hjá lög­regl­unni í Tulsa, sagði að maður­inn, sem var í bílnum með Íslend­ingnum hafi heitið John White og verið ná­granni og vin­ur fjöl­skyldu hins látna. Hann hafi verið í heim­sókn á heim­ili þeirra kvöldið sem árás­in átti sér stað.

Að sögn Wal­kers bauðst White til að sækja drykki í nær­liggj­andi versl­un, QuikTrip. Hann bauð Íslend­ingnum með sér og móðir hans gaf leyfi fyrir því.

Walker lýsti því í frétt á News on 6 að: „Versl­un­in væri staðsett inn­an við mílu (um 1,61 km) frá húsi þeirra. White fór inn í búðina og verslaði. Hann sett­ist inn í bíl­inn og ætlaði að aka á brott þegar maður, sem tal­inn er hafa skotið á þá, hóf orða­skipti við White, sem að sögn vitna sner­ist um að White hefði ekið á mann­inn. Þau stóðu yfir í stutta stund áður en hinn grunaði hóf skot­hríð,“ seg­ir Wal­ker.

Ekkert fannst í öryggismyndavélum

Walker rannsóknar­lögreglu­maður seg­ir að ekki liggi fyr­ir hvar White á að hafa ekið á hinn grunaða. Ekk­ert í ör­ygg­is­mynda­vél­un­um bendi til þess að það hafi gerst á bíla­stæðinu þar sem skotárás­in átti sér stað.

„Ég er sann­færður um að ég finn eitt­hvað á ör­ygg­is­mynda­vél­un­um. Það er ein­göngu tímaspurs­mál.“

Wal­ker seg­ir að næstu skref séu að skoða mynd­efni sem nær yfir lengri tíma og von­ast til að ein­hverj­um bregði fyr­ir sem pass­ar við lýs­ing­una á hinum grunaða. „Við telj­um að hann búi á svæðinu,“ seg­ir Wal­ker.

Næstu skref að kanna fortíð þeirra

760 lög­reglu­menn vinna í höfuð­stöðvum lög­regl­unn­ar í Tulsa. Í morðdeild lög­regl­unn­ar starfa níu rann­sókn­ar­lög­reglu­menn.

„Á milli 3 og 4 lög­reglu­menn vinna að rann­sókn máls­ins frá morðdeild­inni. Að auki eru um 20 lög­reglu­menn á vakt á ná­grenni svæðis­ins þar sem morðið átti sér stað. Þeirra hlut­verk er að kanna nán­ar minni­hátt­ar vís­bend­ing­ar sem ber­ast,“ sagði Wal­ker um rannsókn málsins á sínum tíma.

Að sögn Wal­kers á þessum tíma var eru næstu skref í rann­sókninni þau að kanna fortíð Íslend­ingsins og Johns White. „Það er ekk­ert sem bend­ir til þess að hr. Þórs­son hafi tengst upp­tök­um þess sem gerðist.“

Það sem af er þessu ári (2012) hafa 33 morð verið fram­in í Tulsa.  Að sögn Wal­kers finn­ur lög­regl­an söku­dólga í um 80% til­fella. „Um 10-15% morða eru til­efn­is­laus og án þess að nein tengsl séu á milli árás­ar­manna og fórn­ar­lamba. Þegar við náum skot­mann­in­um get­um við von­andi skýrt bet­ur hvers vegna skotárás­in átti sér stað,“ seg­ir Wal­ker

Morðinginn reyndi að breyta útliti sínu

Jermaine Jackson, hinn ákærði. Mynd/skjá­skot

Jackson var hand­tek­inn í bæn­um Mari­anna í Ark­ans­as-ríki, aust­an við Okla­homa. Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður­inn Dave Wal­ker, sem stýr­ir rann­sókn máls­ins, seg­ir að Jackson hafi klippt á sér hárið til að reyna að breyta út­liti sínu og hafi fengið hjálp til að flýja heima­borg sína Tulsa eft­ir morðið. Að sögn Wal­ker má þakka það upp­lýs­ing­um frá al­menn­ingi auk rann­sókn lög­reglu að hann fannst. M.a. hafi grun­sam­leg hegðun Jackson komið upp um hann, án þess að hægt sé að út­skýra það nán­ar á þessu stigi, þegar rann­sóknin fór fram.

Þeir Jackson og Íslend­ingurinn voru á svipuðum aldri, 19 og 18 ára gaml­ir, og þekkt­ust, voru jafn­vel vin­ir að sögn Wal­kers. Ekki er ljóst hvort Jackson gerði sér grein fyr­ir því að Íslend­ingurinn hafi setið í bíln­um þegar hann hóf skot­hríð.

„Þetta er skráð hjá okk­ur sem af­leiðing deilna, en við höf­um ekki getað yf­ir­heyrt Jermaine Jackson ennþá. Hann er í 6 klukku­stunda öku­fjar­lægð frá okk­ur, en við erum á leið þangað núna og von­umst til þess að kom­ast til botn í mál­inu. Enn er mörg­um spurn­ing­um ósvarað, en að minnsta kosti er morðing­inn kom­inn af göt­un­um og það er alltaf já­kvætt.“

Dauðarefs­ing ólík­leg

Ungi maður­inn er á saka­skrá, en að sögn Wal­kers aðeins fyr­ir smá­vægi­lega glæpi. „Það er ein­hver minni­hátt­ar þjófnaður, ekk­ert sem lík­ist þessu, ekk­ert sem benti til þess að hann væri lík­leg­ur til að drepa tvo menn.“ Hann seg­ir viðbúið að Jackson verði í varðhaldi þar til rétt­ar­höld yfir hon­um hefj­ist, hvenær svo sem það verði. Ólík­legt sé að hon­um verði sleppt laus­um gegn trygg­ingu.

„Ég held að hann hafi ekki tök á því að greiða neins kon­ar trygg­ingu, enda má bú­ast við því að hún hlypi á millj­ón­um. En mér finnst ólík­legt að það verði yfir höfuð inni í mynd­inni. Hann hef­ur nú þegar reynt einu sinni að flýja, svo af hverju ætt­um við að vilja sleppa hon­um aft­ur.“

Dauðarefs­ing er við lýði í Okla­homa og raun­ar er Okla­homa það ríki Banda­ríkj­anna þar sem flest­ar af­tök­ur fara fram miðað við höfðatölu. Aðspurður seg­ist Wal­ker þó telja ólík­legt að Jackson verði dæmd­ur til dauða. „Mitt per­sónu­lega mat er að þetta mál sé þess eðlis að það upp­fylli ekki skil­yrðin fyr­ir dauðarefs­ingu.“

Iðraðist aldrei

Jermaine Jackson gafst tæki­færi til að ávarpa fjöl­skyld­ur fórn­ar­lamba sinna eft­ir að dóm­ur yfir hon­um var fall­inn en hann kaus að gera það ekki. Í rétt­ar­höld­un­um bar hann við sjálfs­vörn og eins við skýrslu­tök­ur hjá sak­sókn­ara.

Á það féllst rétt­ur­inn ekki og seg­ir Helena Jackson ekki hafa sýnt neina iðrun verka sinna. „Hann kaus að ávarpa ekki fjöl­skyld­ur fórn­ar­lamba sinna en núna er þetta búið. Rétt­lát­ur dóm­ur er fall­inn og við get­um farið að taka fyrstu skref­in fram á við.“

Dav­id Wal­ker, varð­stjóri hjá morðdeild lög­regl­unn­ar í Tulsa í Okla­homa, seg­ir að lög­regl­an hafi yf­ir­heyrt Jermaine Jackson, mann­inn sem grunaður er um morðin á Íslend­ingnum og John White. Jackson er enn í haldi í Ark­ans­as og verður hann lík­lega flutt­ur til Okla­homa í næstu viku.

Þar bíður Jacksons tvö­föld ákæra fyr­ir morð af fyrstu gráðu, sem er hæsta stig morðs sam­kvæmt banda­rísk­um lög­um, og tákn­ar að morðið hafi verið framið af ráðnum hug. Sam­kvæmt Wal­ker get­ur dauðarefs­ing legið við morði af fyrstu gráðu í Okla­homa, en hann seg­ir að sér þyki ólík­legt að það verði raun­in. Lík­lega eigi Jackson þó yfir höfði sér mjög langa fang­elsis­vist verði hann fund­inn sek­ur.

Wal­ker seg­ir að ekk­ert í rann­sókn­inni bendi til þess að Íslend­ingurinn og Jackson hafi átt í ein­hverj­um ill­deil­um sem gætu legið að baki skotárás­inni, þó að í ljós hafi komið að þeir hafi þekkst fyr­ir. Or­saka glæps­ins sé lík­lega ekki að leita í kunn­ings­skap þeirra.

Tvöfaldur lífstíðardómur

Jermaine Jackson, var fundinn sekur og hlaut tvö­fald­an lífstíðardóm í banda­rísku borg­inni Tulsa í Okla­homaríki fyr­ir að skjóta tvo menn til bana.

Amma Íslend­ingsins, seg­ir að fjöl­skyld­unni hafi létt mjög við það að rétt­ar­höld­un­um sé lokið og að morðingi barna­barns henn­ar hafi fengið rétt­lát­an dóm. „Núna get­um við tekið fyrstu skref­in í að græða sár­in og byrjað að horfa fram á veg­inn,“ seg­ir amman en rétt­ar­höld­in tóku mjög á alla fjöl­skyld­una. „Við sát­um öll rétt­ar­höld­in og það var mjög erfitt fyr­ir okk­ur. Kviðdóm­ur­inn var ein­róma um sekt sak­born­ings og dóm­ur­inn rétt­lát­ur, hann á ekki mögu­leika á náðun fyrr en eft­ir 76 ár.“

Engan grunaði að nokkuð þessu líkt gæti gerst

Ís­lenski pilt­ur­inn sem var myrt­ur í Banda­ríkj­un­um, flutti til Okla­homa þegar hann var 10 ára gam­all ásamt móður sinni, eldri bróður og yngri syst­ur.  Hann hefði átt að út­skrif­ast úr gagn­fræða­skóla árið sem hann var skotinn, en hann var 18 ára gam­all.

Í samtali við Morgun­blaðið sagði Amma hans að hann hafi verið svo­lítið marg­brot­inn per­sónu­leiki. „Hann var mjög list­rænn, góður í að teikna og var mikið fyr­ir að yrkja ljóð, en hann var mjög óör­ugg­ur með sig vegna þess að hann stamaði,“ seg­ir amma hans í sam­tali við frétt­asíðuna New­sOn6 í Okla­homa.

Hún seg­ir að hann hafi ort mikið af laga­textum og dreymt um að fara í Okla­homa­há­skóla eft­ir út­skrift úr gagn­fræða­skóla, til að leggja stund á tónlist. Hann var mjög málglaður að sögn ömmu hans. Hann var óhrædd­ur við að tjá skoðanir sín­ar á hvaða mál­efni sem er, jafnt stjórn­mál­um sem frétt­um líðandi stund­ar, og hann var með mjög smit­andi hlát­ur.

„Þegar hann hló þá fóru all­ir að hlæja. Það hlógu all­ir með hon­um,“ er haft eft­ir ömmu hans. Hún seg­ir fjöl­skyld­una alla í áfalli. Eng­an hafi grunað að nokkuð þessu líkt gæti gerst þegar hann skrapp út í búð ásamt fjöl­skyldu­vini til að kaupa gos. „Þetta er svo til­vilj­ana­kennt, svo mik­ill óþarfi, maður skil­ur ekki hvers vegna.“

Amma hans seg­ir jafn­framt að þau séu afar þakk­lát fyr­ir þann mikla stuðning sem vin­ir og skóla­fé­lag­ar hans hafi sýnt þeim. Það hefði komið hon­um sjálf­um á óvart að vita hversu vel hann var liðinn. Fjöl­skyld­an er nú að und­ir­búa jarðarför­ina, sem fer fram á föstu­dag svo að ætt­ingj­ar frá Íslandi hafi tíma til að kom­ast á staðinn.

Heimildir:

Innlent. 10. september 2012. Fóru í stutta bílferð til að kaupa drykki. MBL.

Innlent. 12. september 2012. XXXX og morðinginn voru félagar. Vísir.

Innlent. 12. september 2012. XXX þekkti morðingjann. MBL.

News On 6. 15. mars 2016. Conviction Upheld In 2012 Murder Of Jenks Senior, Friend. Oklahoma Lake Levels.

New­sOn6.com – Tulsa, OK – News, We­ather, Vi­deo and Sports – KOTV.com

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá