Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Loksins orðinn Íslendingur – „Ég vil verða gagnlegur fyrir samfélagið“

Uhunoma Osayamore er einn af þeim tólf sem veittur var íslenskur ríkis­borgara­réttur, rétt fyrir Þinglok. Hann getur því kallað sig Íslending eftir margra ára baráttu en í viðtali við Kvöld­fréttir Stöðvar 2 í gær sagðist hann bæði vilja læra og vinna.

„Er þetta raun­verulegt? Ég þorði aldrei að vona þetta. Ég bjóst aldrei við að þetta yrði niður­staðan,“ sagði Uhunoma en hefur hann búið hjá fóstur­fjölskyldu sinni, í miðbæ Reykja­víkur, um nokkurt skeið. Sagði hann sögu sína í fyrra en hann lenti meðal annars í kynferðis­ofbeldi og mansali á flóttanum frá heima­landi sínu, Nígeríu. „Þau hafa sýnt mér þann besta kærleika sem ég hélt aldrei að mér myndi hlotnast,“ sagði hann um fóstur­fjölskyldu sína en kynntustu þau á heldur óvana­legan máta.

Uhunoma var staddur í strætóskýli, grátandi, eftir að hafa verið neitað um dvalar­leyfi fyrir tveimur árum. Ókunnug kona gaf sig á tal við hann og lét hann fá síma­númerið hjá Morgane Priet-Mahéo. Ekki leið á löngu þar til hann var farinn að búa hjá Morgane og fjöl­skyldu hennar og vita þau enn ekki hver gaf honum síma­númerið. „Ég þekki mjög fátt fólk þar (í Hafnar­firði) svo að já, ég myndi alveg vilja vita hver gaf síma­númerið,“ sagði Morgane og hlær.

Það eru bjartir tímar framundan hjá Uhunoma, sem segist ætla að einbeita sér að námi, nú þegar möguleg brott­vísun úr landinu sé ekki lengur áhyggju­efni. „Núna ætla ég að byrja. Nú þegar óttinn við brott­vísun er horfinn úr lífi mínu ætla ég að einbeita mér að því að læra mjög vel,“ sagði hann og bætti við; „Ég ætla að mennta mig og fá mér vinnu. Ég vil verða eitthvað. Ég vil gera eitthvað. Ég vil verða gagnlegur fyrir samfélagið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá