Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Auggie Duffy gengur laus á meðan brotaþoli lifir í ótta: „Hvers vegna verndar kerfið mig ekki?“

Augustin Dufatanye, eða Auggie Duffy.
Augustin Dufatanye, eða Auggie Duffy.

„Ég ætla ekki að þegja, því þögnin er eina vopn ofbeldis­manna.“

Þetta segir kona sem varð fyrir nauðgun af hendi manns sem hefur verið sakfelldur fyrir brotið á tveimur dóms­stigum, síðast í Lands­rétti í febrúar síðastliðnum. Maðurinn gengur þó enn frjáls um götur Reykja­víkur. Konan segist finna fyrir stöðugum ótta og áhyggjum, ekki síst vegna þeirrar óvissu og upplýsinga­leysis sem kerfið bjóði henni upp á í hennar eigin máli. Hún upplifir sig valda­lausa og segir það skelfilegt fyrir brotaþola að vera ekki aðilar að eigin málum í dóms­kerfinu.

„Ég er stödd á fundi í vinnunni þegar ég lít út um gluggann og sé manninn sem nauðgaði mér á gangi, frjálsan,“ segir konan. „Hann var dæmdur fyrir úthugsaða og ofbeldis­fulla nauðgun. Hann var mér ókunnugur.“

Maðurinn gengur enn laus þrátt fyrir að hafa verið dæmdur fyrir alvarlegt kynferðis­ofbeldi sem virðist hafa verið framið að yfirlögðu ráði, á meðan brotaþoli hans þarf að lifa við þann ótta að geta átt von á að mæta honum hvenær sem er.

„Hann var dæmdur fyrir úthugs­aða og ofbeld­is­fulla nauðgun“

Samkvæmt upplýsingum frá Fangelsis­mála­stofnun geta einstaklingar sem hafa verið dæmdir í fangelsi frestað því að taka út fangavist sína um nokkurt skeið, til að mynda með þeim rökum að þeir þurfi að búa um persónu­lega hagi sína áður en þeir fara í fangelsi. Auk þess má fresta refsingu með áfrýjunum, hvort sem grund­völlur er fyrir þeim eða ekki. Það veldur töfum á að afplánun geti hafist, hvort sem beiðni um áfrýjun er samþykkt eða ekki.

Gengur undir öðru nafni en því sem birt var

Maðurinn sem um ræðir heitir Augustin Dufatanye, en er betur þekktur undir nafninu Auggie Duffy. Hann var sakfelldur fyrir nauðgun í maí árið 2021 og dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í Héraðs­dómi Reykja­víkur. Hann var nafn­greindur í dómnum sem Augustin en samkvæmt heimildum Mannlífs er það ekki nafnið sem fólk þekkir almennt sem kannast við hann.

Samkvæmt dómnum og frásögn brotaþola í samtali við blaðamann Mannlífs kemur fram að hann hafi notfært sér ölvunar­ástand hennar og svefn­drunga til þess að brjóta á henni. Konan hafði verið að skemmta sér með vinnu­félögum sínum en orðið viðskila við þá. Þegar hún varð á vegi Auggie Duffy var hún mjög ölvuð. Hún segir hann hafa nýtt sér ástand hennar til þess að koma henni úr miðbænum og í íbúð sem hann hafði þá til umráða.

Þrátt fyrir að hann hafi haldið því fram í vitnis­burði sínum að konan hafi gengið sjálf­viljug með honum um 50 mínútna göngu frá miðbænum og í íbúð nálægt Kringlunni, sást það greini­lega á gögnum úr síma hennar að sá fram­burður gat ekki staðist. Forrit sem var í gangi í síma hennar sýndi að hún hafði ekki tekið nein skref á þessum tíma, en sýndi hins vegar fram á að hún hefði verið í bíl í um sex mínútur. Konan segist líklega hafa verið mjög vönkuð eða dáin áfengis­dauða meðan hann flutti hana með sér í íbúðina. Auk þessa var vitað að konan hafði verið klædd í háa hæla þetta kvöld. Hálka var úti og eftirlits­myndavélar úr miðbænum sýna að hún átti í erfið­leikum með gang og að klæða sig í yfirhöfn sína.

Konan rankaði við sér snemma morguns daginn eftir í ókunnugri íbúðinni, klæða­lítil og ringluð. Hún segist þá hafa klætt sig í snatri og hraðað sér heim með leigubíl. Síðar um daginn leitaði hún á neyðar­móttöku þar sem hún gaf hjúkrunar­fræðingi stutta frásögn sína og sagðist telja að brotið hefði verið á henni kynferðis­lega. Í framhaldi gekkst hún undir líkams­skoðun. Á henni voru áverkar sem studdu grun­semdir um kynferðis­brot.

Fyrir dómnum þóttu sannanir fyrir sekt Auggie Duffy í málinu hafnar yfir allan vafa. Fram­burður konunnar, gögn, áverka­vottorð og vitnis­burður sérfræðinga studdi það að hann hefði nauðgað henni umrædda nótt. Auk þess var stuðst við upptökur úr eftirlits­myndavélum, ofan­greind gögn úr snjall­tæki og framburð vitna. Sakborningurinn þótti hins vegar ekki samkvæmur sér í framburði.

Fann fyrir miklum ótta og óvissu

Eftir að dómur hafði verið kveðinn upp í Héraðs­dómi áfrýjaði Auggie Duffy málinu til Lands­réttar. Við tók bið þar sem brotaþoli hans hafði ekki aðgang að neinum upplýsingum um framvindu eða tíma­setningar. Konan starfar í miðbæ Reykja­víkur, sem er svæði sem Auggie Duffy hefur bæði verið búsettur og eytt miklum tíma á í gegnum tíðina. Konan lýsir því að hafa fundið fyrir ótta og mikilli óvissu, vitandi af geranda sínum lausum á götum borgarinnar, án þess að hafa neina vitneskju um það hve lengi ástandið kynni að vara, áður en málið yrði aftur tekið fyrir í Lands­rétti.

Á þessu tímabili voru engar hömlur á förum Auggie Duffy. Ekki var fylgst sérstak­lega með ferðum hans, hann þurfti ekki að bera ökklaband eða annars konar stað­setningar­tæki og vegabréf var ekki tekið af honum. Hann gat því ferðast að vild, en konan segist hafa vitneskju um að hann hafi farið úr landi um nokkra hríð.

Þann 25. febrúar síðastliðinn var dómur kveðinn upp í Lands­rétti. Frávísunar­kröfu ákærða var þar hafnað og dómur Héraðs­dóms yfir honum stað­festur. Auggie Duffy skyldi sæta fangelsi í tvö ár og sex mánuði, auk þess að greiða allan sakar­kostnað og miska­bætur til brotaþola.

Mynd sem Auggie Duffy birti af sjálfum sér fyrir utan Hér­aðs­dóm Reykja­víkur, þegar málið var tekið fyrir.

Þorði ekki heim af skrifstofunni

Konan lýsir miklu áfalli í kjölfar þess að hafa séð geranda sinn á ferli við vinnustað hennar. Hún hafi ekki þorað út. „Hvers vegna verndar kerfið mig ekki? Ég er bara að fara í gegnum daginn minn, lít svo út um gluggann og þar er hann, frjáls maður.“

Þegar konan var nýbúin að lenda í því að sjá hann fyrir utan vinnu­staðinn skrifaði hún eftir­farandi orð:

„Ég skelf núna, hjarta mitt slær svo hratt, mér líður eins og það muni líða yfir mig, mér er óglatt, ég er hrædd, ég er reið… Hvers vegna er hann verndaður en ekki ég? Ég er að bíða eftir að geta yfirgefið skrif­stofuna, ég er hrædd við að fara. Hvað ef ég sé hann? Hvað ef ég rekst á hann? Ég þarf að komast í öryggið mitt, heim til fjöl­skyldu minnar, læsa hurðunum og aldrei fara út.“

„Hvers vegna er hann vernd­aður en ekki ég?“

Hún segir að sér hafi ekki verið boðin nein aðstoð eða stuðningur eftir að dómur Lands­réttar féll. „Ég fæ engar upplýsingar um fram­vinduna og það hvenær hann komi til með að fara í fangelsi og taka út sína refsingu.“

Konan hafði samband við Fangelsis­mála­stofnun eftir þetta atvik, til þess að reyna að fá einhver svör um það hvernig stæði á því að maðurinn væri ekki farinn í fangelsi. Hún komst að því að hann væri búinn að sækja um að dómnum verði áfrýjað aftur, til Hæstaréttar. Umsóknin barst þann 21. apríl síðastliðinn.

Gætu liðið sex til sjö mánuðir fram að afplánun

Hæstiréttur hefur tvo mánuði til þess að taka afstöðu til beiðnarinnar og ákveða hvort samþykkt verði að áfrýja málinu. Ef beiðninni er hafnað er dómurinn sendur áfram til Fangelsis­mála­stofnunar sem hefur þá nokkra daga til þess að fara í gegnum gögnin og senda Auggie Duffy síðan bréf þar sem farið er yfir smáatriði er varða refsivistina, hvenær og með hvaða hætti hann skuli mæta til að hefja afplánun sína og fleira. Frá því að hann fær bréfið hefur hann fjórar vikur áður en afplánun hefst. Innan þessara fjögurra vikna getur hann hins vegar óskað eftir að afplánun verði frestað um þrjá mánuði, svo hann geti búið um hagi sína og persónuleg mál, sem til að mynda er hugsað í tengslum við vinnu eða ef viðkomandi á börn. Þessi frestur býðst þó öllum, óháð persónu­legum högum, og því nýta flestir sér hann. Ef beiðnin er samþykkt er ný dagsetning ákveðin fyrir upphaf afplánunar. Þetta þýðir að jafnvel þótt áfrýjun yrði ekki samþykkt í tilfelli Auggie Duffy, þá gætu samt liðið allt að sex til sjö mánuðir áður en hann þarf að hefja fangavist sína. Á meðan lifir konan sem hann braut á í ótta.

Í samtali við blaðamann lýsir konan miklu óöryggi vegna allrar óviss­unnar í kringum málið. Mál sem er hennar eigið, þar sem hún er brota­þolinn. Hún hefur engan aðgang að upplýsingum um dóm hans, hvenær hann hefji afplánun, hve lengi hann í raun og veru sitji inni þegar þar að kemur og hvort hann muni afplána hluta dómsins annarsstaðar en í hefð­bundinni fangavist, í opnu úrræði.

Konan býr sjálf nálægt Vernd. Þegar hún lýsti yfir áhyggjum sínum af því að Auggie hefði hugsanlega kost á að afplána hluta dómsins þar var henni sagt að hún þyrfti þá sjálf að hafa samband við yfirvöld og óska eftir því að hann fengi ekki að dvelja á Vernd. Það gerði hún.

Konan lýsir því sem mikilli brotalöm á kerfinu hve lítinn stuðning brota­þolar í málum sem þessum fái. Henni hafi ekki verið boðinn neinn stuðningur eða áfalla­hjálp eftir að dómur var kveðinn upp, engin aðgerðar­áætlun hafi verið henni aðgengileg og engin sálfræði­meðferð í boði. „Öllu sem ég hef komist að hef ég þurft að bera mig eftir og komast að á eigin spýtur. Það hefur valdið mér kvíða og áhyggjum af sjálfri mér og fjöl­skyldu minni. Ef við brota­þolar fengjum einhvers konar aðgerðar­áætlun og stuðning, með reglulegri eftir­fylgni, myndi það hjálpa mikið til við bata okkar, vernd og framtíðar­horfur.“

Virðist ekki einsdæmi

Undan­farið hafa fleiri sögur komið fram um Auggie Duffy á samfélags­miðlum. Þar virðist blasa við ákveðið munstur kynferðislegrar áreitni, kynferðis­ofbeldis og almennrar ámælis­verðrar hegðunar í garð kvenna. Af þeim frásögnum að dæma er mál þess brotaþola sem hér er fjallað um langt frá því að vera einsdæmi. Út frá því má ætla að maðurinn sé sannarlega hættu­legur nærumhverfi sínu.

Þess ber að geta að Fangelsis­mála­stofnun hefur upp að vissu marki vald til þess að ákvarða hversu fljótt einstaklingar þurfa að hefja afplánun sína, til að mynda ef almannahags­munir mæla með því eða ef þeir eru grunaðir um að hafa framið refsiverðan verknað á ný.

Á næstunni mun Mannlíf birta ítarlegri grein um mál Auggie Duffy, viðtal við brotaþola í ofan­greindu máli sem og vitnis­burði fleiri meinta brotaþola hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá