Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Ástandið um borð í Diamond Princess – Óvissa ríkir og farþegar að „klikkast“

Fjölmiðlar fylgjast vel með ástandinu í kringum Diamond Princess . Mynd / EPA|Mynd / EPA
Fjöl­miðlar fylgj­ast vel með ástand­inu í kringum Diamond Princess . Mynd / EPA|Mynd / EPA

Ljós­myndir og lýsingar farþega af ástandinu um borð í Diamond Princess skemmtiferða­skipinu vekja athygli á samfélags­miðlum. Í skipinu eru rúmlega 3.700 farþegar í einangrun vegna kórónu­veirunnar sem kennd er við kínversku borgina Wuhan.

Farþegarnir þurfa að vera 14 daga í sóttkví í skemmtiferða­skipinu við strendur Japan eftir að 20 tilfelli af smiti greindust í skipinu.

Nokkrir farþegar Diamond Princess lýsa ástandinu í skipinu á samfélags­miðlum.

Farþegar mega ekki yfirgefa herbergi sín í þessa 14 daga. Er fram kemur í frétt Business Insider eru herbergi skipsins afar ólík og misstór, sum eru með svölum og önnur ekki. Á allra ódýrustu herbergjunum eru ekki einu sinni gluggar.

Farþegum er færður matur upp á herbergi en máltíðirnar eru ekki alltaf sérlega lystilegar ef marka má færslur þeirra sem hafa birt myndir af matnum á samfélags­miðlum.

Farþegar hafa þá sumir gagnrýnt það að fyrsta máltíð dagsins hefur borist mjög seint og vonlaust er að fá séróskir uppfylltar.

Lítið upplýsingaflæði

Einn farþegi skipsins, Masako Ishida, lýsti ástandinu í samtali við The New York Times. Hún gagnrýndi upplýsinga­flæðið en hún heyrði fyrst af einangruninni í fréttum en ekki frá starfs­fólki skipsins.

Hjónin Alan og Weendy Steele höfðu sömu sögu að segja. Þau sögðu í samtali við The Washington Post að farþegar þyrftu að stóla á fjölmiðla hvað nýjar fréttir og upplýsingar varðar þar sem starfs­fólk skipsins veita engar upplýsingar. „Það er komið fram við okkur eins og fanga og glæpamenn,“ sögðu þau. Spurð út í líðan sína sögðust þau vera að „klikkast“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Christina Blake var úrskurðuð látin á vettvangi

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall