Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Segir að dómsmálaráðherra sæti ofsóknum: „Alþingismenn ættu að hrósa ráðherra fyrir að virða lögin“

Jón Steinar Gunnlaugsson
Jón Steinar Gunn­laugs­son

Lögmaðurinn Jón Steinar Gunnlaugsson lætur gamminn geysa og er klárlega í liði með Jóni Gunnars­syni dómsmála­ráðherra; sem þessa dagana er undir mikilli pressu frá úr öllum áttum vegna nýja útlendinga­frumvarpi hans, sem er ansi hreint umdeilt:

„Lög um útlendinga eru frá árinu 2016. Þar er kveðið á um máls­meðferð þegar útlendingar óska eftir að fá vist á Íslandi. Svo er að sjá sem afgreiðsla mála hafi frestast vegna farsóttarinnar, sem gengið hefur yfir síðastliðin tvö ár. Nú er sá tími liðinn og eðlilegt ástand þessara mála hefur komist á,“ segir Jón Steinar og heldur ótrauður áfram:

„Samkvæmt lögunum afgreiða sérstakar stjórnsýslu­stofnanir beiðnir útlendinga um landvist og búsetu hér. Þar fer kærunefnd útlendinga­mála með vald á áfrýjunar­stigi. Henni ber auðvitað að starfa eftir íslenskum lögum. Nú hefur hún synjað allmörgum útlendingum um leyfi til að setjast hér að. Þá er eins og stór hluti þjóðarinnar fari á límingunum.“ og „ráðist er á dómsmála­ráðherrann sem ekki hefur tekið þessar umdeildu ákvarðanir, heldur kveðst aðeins vilja fara að lögum landsins og fram­fylgja þeim ákvörðunum sem rétt stjórn­völd hafa tekið.“

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra

Jón Steinar vill meina að dómsmála­ráðherra sæti „nú hreinum ofsóknum. Þar ganga m.a. fast fram alþingis­menn, sem sumir hverjir tóku þátt í laga­setningunni. Biskup Íslands og a.m.k. einn hempu­klæddur orða­feykir taka þátt í árásununum og krafan virðist vera sú að því aðeins beri að fara eftir lögum að mönnum líki efni þeirra í einstökum málum.“

Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir biskup

Hann færir í tal að „grunn­reglum, t.d. um þrískiptingu ríkis­valdsins, skal vikið til hliðar fyrir geðþóttann. Alþingis­menn ættu að hrósa ráðherra fyrir að virða lögin í stjórn­sýslu sinni. Þeir geta svo á vettvangi löggjafans, ef þeir vilja, flutt frumvörp um breytingar á lögunum sem ráðherra hefur heitið að fara eftir. Það er stundum átakanlegt að fylgjast með menningar­stiginu sem birtist í almennum umræðum á Íslandi um málefni þjóð­félagsins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá