Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Mannabreytingar hjá Háskólasetri Vestfjarða: „Ég vissi alltaf að ég myndi snúa aftur“

Hanna Lára Jóhanns­dóttir og Ingibjörg Rósa Björns­dóttir hafa verið ráðnar í stöðu Markaðs- og vefstjóra við Háskóla­setur Vestfjarða. Um tíma­bundna ráðningu er að ræða meðan Ingi Björn Guðnason er í ársleyfi vegna starfa fyrir Edinborgar­húsið á Ísafirði en Hanna Lára og Ingibjörg verða í hálfu starfi hvor.

Hanna Lára er frá Ísafirði en hefur búið í Reykjavík seinustu ár þar sem hún stundar nám. Hún er með BS gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands og er nú á loka­sprettinum í meistara­námi í markaðs­fræði og alþjóða­viðskiptum. Hönnu hefur lengi dreymt um að flytja aftur til Ísafjarðar að námi loknu og komast í náttúru­fegurðina sem svæðið hefur upp á að bjóða.

„Ég vissi alltaf að ég myndi snúa aftur, það var bara spurning um hvenær. Fólki í kringum mig fannst þetta mjög spennandi og nefndu mörg að þau væru sjálf til í að flytja út á land.“

Hanna hefur meðal annars starfað við ferða­þjónustu þar sem hún sá um skipulagninu ferða og umsjón með samfélags­miðlum og mynda­tökum. Þar að auki hefur hún unnið fjöl­breytt störf með skóla og er nú að fara skrifa meistara­ritgerðina samhliða starfinu hjá Háskóla­setrinu.

„Ég er ánægð með það tækifæri að fá að starfa við eitthvað sem tengist náminu mínu og ég er mjög spennt að sýna erlendum nemendum þetta líflega háskóla­samfélag sem Háskóla­setur Vestfjarða býður upp á“.

Ingibjörg Rósa er Mýrdæl­ingur að uppruna en hefur síðasta áratuginn búið erlendis. Hún er með meistara­gráður í ensku og blaða- og frétta­mennsku frá Háskóla Íslands og hefur starfað m.a. á Morgun­blaðinu, frétta­stofu RÚV og Reykjavík Grapevine auki fleiri miðla en heldur nú vestur á bóginn.

„Flestum sunnlenskum vinum mínum þykir þetta algjört glapræði enda með nokkuð gamla sýn á hvernig Vestfirðir eru í dag. Svo hefur komið í ljós að mörg þeirra hafa bara aldrei komið þangað en ég vona að þau verði dugleg að heimsækja mig svo ég geti sýnt þeim þetta stórkost­lega fallega landsvæði. Þeim þykir reyndar dálítið skrítið að ég ætli að búa á Flateyri en starfa á Ísafirði, fatta ekki hvað það er auðvelt að skutlast á milli!“

Síðustu árin hefur Ingibjörg verið sjálfstætt starfandi  frá Bretlandi og sinnt blaða­mennsku og annarri texta­vinnu sem og stunda­kennslu við HÍ og Háskólann á Bifröst. Einnig hefur hún skipulagt viðburði á Íslandi á borð við uppistands­hátíð og tónleika og rekur netverslun.

„Ég kolféll fyrir Vestfjörðum þegar ég fór í gumakaup á Ísafirði árið 2009 og sumarið eftir leigði ég hús í Bolungarvík í einn mánuð bara til að kynnast svæðinu betur. Síðan þá hefur jarð­göngunum fjölgað og mikil uppbygging orðið sem ég hef fylgst nokkuð með, ekki síst starfsemi Háskóla­setursins, svo mér þykir ægilega spennandi að fá þetta tækifæri.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp