Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Áfangasigur Harrys Bretaprins í ærumeiðingamáli

Mynd / EPA
Mynd / EPA

Dómstóll í London hefur kveðið upp þann dóm að hluti greinar breska blaðsins The Mail on Sunday um Harry Breta­prins hafi verið ærumeiðandi. Dómurinn markar sigur Harrys á fyrsta stigi máls­sóknar hans gegn blaðinu. Þetta kemur meðal annars fram hjá BBC.

Grein blaðsins snerist um deilur hertogans af Sussex við stjórn­völd í Bretlandi þegar kemur að öryggis­gæslu fyrir hann og fjöl­skyldu hans, þegar þau eru stödd þar í landi. Talsmenn Harrys segja greinina hafa sakað Harry um að ljúga og reyna að ráðskast með og hafa áhrif á almennings­álit. Um aðdróttanir hafi verið að ræða og Harry saklaus af því sem á hann var borið.

Útgáfu­fyrirtæki blaðsins neitar þeim ásökunum alfarið og segir greinina ekki ærumeiðandi.

Í skrif­legum vitnis­burði í síðasti mánuði sagði Harry greinina hafa valdið sér „miklum sárindum, vandræðum og streitu,“ sem enn væri við lýði.

Dómsmálið er ekki á enda þótt Harry hafi unnið áfanga­sigur. Enn eru fleiri dagar eftir í réttar­salnum og fleiri vitnis­burðir væntanlegir. Á þessu fyrsta stigi var reynt að skera úr um það hvað átt hefði verið við í greininni og þar með hver vörn blaðsins yrði. Dómarinn í málinu kvað upp þann dóm að í greininni væri því haldið fram að Harry hefði hrært í stað­reyndum og villt um fyrir almenningi svo fólk héldi að hann hefði boðist til þess að greiða fyrir lögreglu­vernd og væri að berjast við ríkið vegna þess að honum hefði verið neitað um það.

Í greininni var því einnig haldið fram að dómsskjöl sýndu fram á það að hertoginn hefði einungis boðist til þess að greiða fyrir öryggis­gæslu eftir að dómsmál hafi þegar verið hafið. Hann hafi reynt að koma í veg fyrir að gögn og vitnis­burðir í málinu yrðu gerðir opinberir.

Dómarinn féllst þó ekki á það að greinin segði Harry hafa logið, líkt og lögfræði­teymi hans heldur fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt