Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

VG búin að gefa frá sér vinstrimennsku: „Það er eitthvað mikið að“

Mynd. Skjáskot/RÚV
Mynd. Skjáskot/RÚV

Ögmundur Jónasson, fyrr­verandi ráðherra og þingmaður er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggva­sonar. Ögmundur er alls ekki hrifinn af þeirri þróun að ritskoða ákveðnar skoðanir og segir að ein stærsta ógn samtímans sé ritskoðun og tilraunir til að stöva tjáningar­frelsið:

„Það er raun­verulega ógnvænlegt hvernig tjáningar­frelsið er komið í hættu. Ekki bara eru ríki og sveitar­félög að taka þátt í því, heldur eru risarnir sem stjórna netmiðlum á fullu í að stoppa umræður. Svo er samfélagið almennt komið á skrýtinn stað, þar sem fólk sem er á öndverðum meiði í ákveðnum mála­flokkum er nánast ofsótt. Svo erum við með dæmi eins og Wikileaks, þar sem Julian Assange á yfir höfði sér 200 ára fangelsi fyrir það að upplýsa um alvarlega hluti. Lærdómurinn fyrir fólk í alls kyns málum er að það sé betra að segja ekki frá ákveðnum hlutum. Þetta veldur því að við erum komin á mjög sérstakan stað.“

Ögmundur, sem var lengi eins konar andlit vinstri manna á Íslandi segir í þættinum að Vinstri Græn séu búin að týna ákveðnum gildum í samstarfinu við Sjálfstæðis­flokkinn.

„Pólitíkin er að hverfa úr pólitíkinni. Ég hef verið að efna til funda fyrir áhugafólk um að endur­verkja vinstri stefnuna og tala fyrir samfélags­lega ábyrgri stefnu í stjórn­málunum. Ég upplifi að við séum komin á svipaðan stað núna og 1995, þegar Alþýðu­flokkurinn var að koma úr samstarfi með Sjálfstæðis­flokknum og var þá búin að gefa frá sér allt sem getur heitið vinstri­mennska og allt félagslegt. Núna heitir Alþýðu­flokkurinn VG. Núna eru Vinstri Grænir búnir að vera í þessu faðmlagi við Sjálfstæðis­flokkinn í 4 ár og önnur fjögur að hefjast og maður spyr sig hvernig þetta geti eiginlega verið. Þetta samkurl veldur því að það er eiginlega ekkert tekist á um lykil­atriði sem þessir flokkar eru í grunninn ósammála um. Það er eitthvað mikið að gagnvart kjósendum. Kjósendum er lofað annars vegar að markaðs­væða samfélagið eða samfélags­væða samfélagið og það er hættulegt fyrir lýðræðið ef það er ekkert að marka þetta. Það að markaðs­væða samfélagið eða samfélags­væða samfélagið eru gagnstæð sjónarmið og þessir flokkar verða að vera trúir sinni grunn­sannfæringu.“

Ögmundur er enn harður vinstri sinni, en hann segir að vinstrið í stjórn­málum hafi í mörgum tilvikum misst sjónar af hlutverki sínu:

„Það að það sé annars vegar til fólk sem býr til verðmæti til samfélagsins og hins vegar ríkis­starfsmenn og þeir sem njóta afrakstursins er bara rugl. Þeir sem starfa á sjúkra­húsum, í skólum, segja frá veðrinu og annað eru líka að búa til verðmæti. Það hvort að eigandi fyrir­tækis sé hið opinbera eða einka­aðili breytir því ekki hvort verið sé að búa til verðmæti. Það að halda því fram að einka­væðing á öllu sé lausn allra vandamála er bara vitleysa.“

Hægt er að nálgast viðtalið við Ögmund og öll viðtöl og podcöst Sölva Tryggva­sonar inni á solvitryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá