Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Myrti ófríska barnsmóður sína: „Ég verð að klára þetta, hún verður að deyja núna“

Michelle Darragh var í áralöngu ofbeldis­sambandi með barns­föður sínum, Benjamin Coman. Hún hafði ótal sinnum fyrir­gefið honum slæma hegðun sem endaði á því að Benjamin myrti Michelle og ófætt barnið þeirra.
Michelle og Benjamin höfðu verið saman í fimm ár og áttu tvo syni. Þegar Michelle varð ófrísk að þeirra þriðja barni fór hegðun Benjamin versnandi. Hann átti við fíkni­vanda að stríða og fór meirihluti tekna parsins í kaup á metamfetamíni, kannabis og kókaíni. En auk þess keypti Benjamin oft vændi. Michelle fyrirgaf manni sínum í hvert sinn sem hann braut á trúnaði hennar eða beytti hana ofbeldi. Benjamin sakaði hana síendurtekið um fram­hjáhald án þess að hafa nokkra ástæðu til. Hún taldi það vera börnunum þeirra í hag að þau væru saman.

Árið 2021 komst Michelle að þriðju þungun sinni. Þá hafði Benjamin eytt öllum sparnaði fjöl­skyldunnar í fíkniefni. Hann var lítið glaður með fréttirnar af þriðja barninu og skipaði Michelle að fara í fóstur­eyðingu, ef hún gerði það ekki þá færi hann frá henni.

Í september 2021 tók Michelle syni sína tvo og flutti til foreldra sinna en hélt þó áfram að styðja við barns­föður sinn. Eitt kvöldið fann hún Benjamin meðvitundar­lausan eftir að hann reyndi að taka eigið líf. Michelle tókst að bjarga honum og dvaldi hann þá í viku inni á geðdeild.

Benjamin var orðinn illa haldinn af rang­hugmyndum. Hann taldi barns­móður sína fylgja ferðum hans með GPS stað­setningar­tæki sem hún hafi komið fyrir í heila hans. Hann sagði matvöru­verslanir eitra fyrir honum og yfirvöld njósna um hann. Þrátt fyrir slæmt ástand hans var hann sendur heim með lyf.

Þremur vikum eftir að Michelle bjargaði barns­föður sínum fór hún á fyrrum heimili parsins til þess að sækja föt, þá gengin þrjá mánuði á leið. Fyrr um daginn hafði hún rifist við Benjamin sem neitaði að láta hana hafa pening.

Foreldrar Michelle urðu áhyggju­full þegar hún var búin að vera í þónokkurn tíma hjá Benjamin. Hún svaraði ekki símtölum og að lokum ákvað faðir hennar að leita hennar. Þegar þangað var komið fann hann dóttur sína líflausa og Benjamin við hlið hennar. Þau höfðu bæði hlotið nokkur stungusár. Faðir Michelle sá að dóttir hans væri látin og taldi barns­föður hennar vera það líka. Hann hringdi í neyðar­línu og síðar í eiginkonu sína. Þegar sjúkra­liðar komu á vettvang var Michelle og ófætt barn hennar úrskurðuð látin, Benjamin var þó enn á lífi.

Michelle með for­eldrum sínum.

Við yfirheyrslu játaði Benjamin að hafa myrt Michelle og síðar stungið sjálfan sig. Hann sagði að hann hafi upphaf­lega ætlað að taka eigið líf fyrir framan hana en þegar hann tók upp eldhús­hníf reyndi hún að flýja. Hann stakk hana þá í lærið. „Þegar ég var búinn að stinga hana einu sinni hugsaði ég: „Ég verð að klára þetta, hún verður að deyja núna,““ sagði Benjamin við yfirheyrslur.

Benjamin var dæmdur í 25 ára fangelsi. Synir Michelle, sem eru tveggja og fimm ára, búa hjá foreldrum hennar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sýrlensk yfirvöld segja að ráðamenn hafi hitt Amarna Miller af tilviljun í Palmyra og hafna því að henni hafi verið boðið til landsins.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár