Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Páll segir engan fæðast í röngum líkama:„Hlutverkaleikur er barnagaman sem sumir vaxa ekki upp úr’’

Páll Vilhjálmsson
Páll Vil­hjálms­son

„Fullorðið fólk má gera hvað það lystir við líkama sinn, tortíma honum ef því er að skipta. En það er ábyrgðar­hluti af fólki, sem á að heita fullorðið, að telja ungmennum trú um að hægt sé að fæðast í röngum líkama,’’ skrifar Páll Vilhjálmsson, blaða­maður og kennari, í nýrri blogg­færslu sinni. Færslan hefur vakið hörð viðbrögð og reiði meðal fólks en þar segir kennarinn, löngun til þess að vera annað kyn en maður fæðist, allt annað en að fæðast í röngum líkama.

„Til að einstaklingur fæðist í röngum líkama þarf meðvitundin að verða óháð líkamanum. En meðvitund utan líkama er ekki til. Meðvitundin gerir fólk lifandi. Án meðvitundar er maðurinn sofandi/meðvitundar­laus eða hreinlega dauður.

Meðvitundin skapar upplifun. Einhver getur verið tík án þess að vera geltandi; annar ljónstyggur en samt ekki ferfætlingur. Maður getur verið lúsiðinn en ekki skordýr.

Mörgum finnst líkami sinn ekki nógu stæltur eða grannur; brjóstin of lítil eða mann­dómurinn væskils­legur. Óánægja með líkamann og líkams­parta er viðtekinn þáttur í menningunni og snar þáttur í efnahags­kerfinu. Marg­vísleg fegrun, húðflúr, líkams­rækt, megrun og lýta­lækningar velta milljörðum,’’
skrifar kennarinn. Þá segir hann óafturkræfar aðgerðir og lyfja­meðferðir vara fyrir lífstíð. „Hlutverka­leikur er barna­gaman sem sumir vaxa ekki upp úr. Það hafa alltaf verið til kvenlegir karlar og karl­mannlegar konur. En hugmynda­fræðin, blekkingin, um að fæðast í röngum líkama fær sumt ungt fólk til að gangast undir óafturkræfar aðgerðir og lyfja­meðferð. Löngun er ein í dag en önnur á morgun. Ekki síst hjá ungu fólki. Óafturkræf inngrip í líkamann vara fyrir lífstíð. 

Þeir sem telja sjálfum sér trú um að vera í röngum líkama eru í reynd að segja meðvitundina og líkamann sitthvað. Ef meðvitundin er ekki líkamleg og náttúruleg hlýtur hún að vera yfir­náttúrleg, guðleg. En þá færi meðvitund aldrei í rangan líkama. Guð, samkvæmt skilgreiningu, gerir ekki mistök,“ skifar hann að lokum en bloggfærslanuna má lesa í heild hér að neðan.

„Ekki hægt að fæðast í röngum líkama

Staðhæft er að sumir fæðist í röngum líkama. Að ,,kona“ fæðist í líkama karls og öfugt; ,,karl“ í kven­líkama. En það er ekki hægt. Ástæðan er eftir­farandi.

Við barns­fæðingu verður til einstaklingur heill og óskiptur. Meðvitundin og líkaminn eru eitt. Hvernig einstaklingurinn vex og dafnar er háð erfðum annars vegar og hins vegar atlæti. Aðeins andvana fæddir eru án meðvitundar. Lifandi fædd börn eru ein óskiptanleg heild, líkami og meðvitund. Hvorugt getur án hins verið.  

Einstaklingurinn er annað tveggja karlkyns eða kvenkyns. Í örfáum tilvikum, vel innan við 1% lifandi fæddra, eru kyneinkenni óræð. Þau tilvik eru læknis­fræðilegt úrlausnar­efni.

Til að einstaklingur fæðist í röngum líkama þarf meðvitundin að verða óháð líkamanum. En meðvitund utan líkama er ekki til. Meðvitundin gerir fólk lifandi. Án meðvitundar er maðurinn sofandi/meðvitundar­laus eða hreinlega dauður. 

Meðvitundin skapar upplifun. Einhver getur verið tík án þess að vera geltandi; annar ljónstyggur en samt ekki ferfætlingur. Maður getur verið lúsiðinn en ekki skordýr.

Mörgum finnst líkami sinn ekki nógu stæltur eða grannur; brjóstin of lítil eða mann­dómurinn væskils­legur. Óánægja með líkamann og líkams­parta er viðtekinn þáttur í menningunni og snar þáttur í efnahags­kerfinu. Marg­vísleg fegrun, húðflúr, líkams­rækt, megrun og lýta­lækningar velta milljörðum.

Fullorðið fólk má gera hvað það lystir við líkama sinn, tortíma honum ef því er að skipta. En það er ábyrgðar­hluti af fólki, sem á að heita fullorðið, að telja ungmennum trú um að hægt sé að fæðast í röngum líkama.

Löngun til að vera annað kyn en manni var úthlutað við fæðingu er allt annað. Drengur getur hagað sér eins og stúlka og stúlka eins og drengur. Hlutverka­leikur er barna­gaman sem sumir vaxa ekki upp úr. Það hafa alltaf verið til kvenlegir karlar og karl­mannlegar konur. En hugmynda­fræðin, blekkingin, um að fæðast í röngum líkama fær sumt ungt fólk til að gangast undir óafturkræfar aðgerðir og lyfja­meðferð. Löngun er ein í dag en önnur á morgun. Ekki síst hjá ungu fólki. Óafturkræf inngrip í líkamann vara fyrir lífstíð. 

Þeir sem telja sjálfum sér trú um að vera í röngum líkama eru í reynd að segja meðvitundina og líkamann sitthvað. Ef meðvitundin er ekki líkamleg og náttúruleg hlýtur hún að vera yfir­náttúrleg, guðleg. En þá færi meðvitund aldrei í rangan líkama. Guð, samkvæmt skilgreiningu, gerir ekki mistök.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá