Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Viðbragsteymi virkjað vegna álags á bráðamóttöku Landspítalans – Öryggi sjúklinga er ógnað

Landspítalinn. Mynd/skjáskot.
Land­spít­al­inn. Mynd/skjá­skot.

Land­læknir hefur myndað viðbragðsteymi um bráða­heilbrigðis­þjónustu í landinu vegna alvarlegrar stöðu innan hennar. Kemur þessi alvarlega staða skýrast fram á bráða­móttöku Land­spítalans þar sem öryggi sjúklinga er ógnað að mati land­læknis. Samstarf aðila þvert á heilbrigðis­kerfið er nauðsynlegt til að tryggja fullnægjandi og örugga bráða­þjónustu næstu mánuði.

Orsakirnar eru margþættar en þyngst vegur skortur á heilbrigðis­starfsfólki og skortur á úrræðum fyrir aldraða, færnis­kerta og fleiri viðkvæma hópa.

Mikill skortur er á heilbrigðis­starfsfólki á öllum heilbrigðis­stofnunum um leið og það er mjög brýnt að starfs­fólk fái langþráða hvíld og sumar­leyfi. Einnig eykst álag á bráða­hluta þjónustunnar með aukinni virkni samfélagsins á sumrin og auknum fjölda erlendra ferða­manna.

Unnið er eftir fremsta megni að því að auka heima­þjónustu og framboð á hjúkrunar- og endur­hæfingar­rýmum um allt að 125 á Suðvestur­horni landsins fyrir lok þessa árs.

Hlutverk viðbragðsteymisins er að útfæra tillögur ásamt tíma­settri áætlun um aðgerðir til að takast á við þetta verkefni, fylgja eftir framkvæmd þeirra og tryggja virkt samstarf milli allra aðilanna.

Viðbrögð og aðgerðir fyrir næstu vikur fela m.a. í sér að:

  • Samhæfa aðgerðir og þétta samstarf allra aðila sem koma að bráða­þjónustu í heilbrigðis­kerfinu.
  • Styrkja og auka heima­hjúkrun á höfuð­borgar­svæðinu í samvinnu við Heilsu­gæslu Höfuðborga­svæðisins, Lækna­vaktina og Land­spítala.
  • Efla starfsemi bráða­móttöku Heilbrigðis­stofnunar Suður­lands, Heilbrigðis­stofnunar Suðurnesja og Heilbrigðis­stofnunar Vestur­lands.
    – Liður í því er að bæta úrlestur mynd­rannsókna og úrvinnslu blóð­rannsókna í samvinnu við Land­spítala.
  • Auka þjónustu bráða­dagdeildar Land­spítala og stækka aðstöðuna.
  • Útbúa miðstöð tilvísana- og ráðgjafar innan Land­spítala til að stýra betur aðflæði inn á LSP, efla fjar­þjónustu og samstarf milli stofnana.
  • Bæta ferla innan Land­spítala til að stytta dvöl sjúklinga á bráða­móttöku spítalans.
    – Liður í því er að endur­skoða meðferðar­ferla í öldrunar­þjónustu og auka aðkomu fleiri sérgreina að þjónustu við sjúklinga á bráða­móttökunni.

Viðbragðsteymið mun halda reglulega samráðs­fundi vegna stöðunnar meðan að þörf krefur og kalla aðra að borðinu eftir þörfum.

Nánar verður sagt frá viðbrögðum þegar þau hafa verið skilgreind frekar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá