Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Lisa Marie opnar sig um sjálfsvíg sonar síns: „Kenni sjálfri mér um á hverjum einasta degi“

Lisa Marie Presley
Lisa Marie Presley Mynd: Instagram-skjáskot

Lisa Marie Presley, dóttir hins eina sanna konungs rokksins, Elvis, hefur nú opnað sig vegna sjálfs­vígs sonar hennar, Benjamin Keough. Gerir hún það í ritgerð til heiðurs Alþjóð­lega sorgar­dagsins.

Lisa Marie missti einkason sinn, Benjamin, fyrir tveimur árum en hann féll fyrir eigin hendi aðeins 27 ára að aldri. Hefur hún nú skrifað einhverskonar ritgerð sem birtist í People tilefni Alþjóð­lega sorgar­dagsins, í von um að hjálpa öðrum sem gengið hafa í gegnum sömu reynslu. ET Online segir frá þessu.

„Ég skil að fólk gæti vilja forðast þig þegar slíkur harm­leikur hefur átt sér stað. Sérstak­lega ef þú ert foreldri sem var að missa barnið þitt því það er sannarlega þín versta martröð,“ skrifaði hún í ritgerðinni. „Ég man eftir nokkrum skiptum í mínu lífi þar sem ég þekki foreldra sem misstu barnið sitt og þó að ég gat verið til staðar þegar það gerðist, forðaðist ég þau eftir á og hafði aldrei fyrir því að athuga með þau því þau urðu bókstaf­lega fulltrúar minns stærsta ótta. Ég dæmdi þau einnig svolítið og lofaði sjálfri mér að gera aldrei það sem mér fannst þau hafa gert rangt í uppeldinu eða ákvarðana­tökum í sambandi við barnið þeirra.“

Lisa Marie og sonur hennar Benjamin

Lisa Marie segir einnig að hún hafi kynnst „meiri sorg en þætti eðlilegt“ um ævina, en það hafi byrjað þegar hún missti föður sinn, Elvis Presley þegar hún var einungis níu ára gömul. Þá sagði hún um son sinn: „Fallegi, fallegi sonur minn var svo líkur afa sínum á svo marga vegu að hann hræddi mig.“

Þá brýnir hún fyrir lesendur að sorg hverfi ekki með tímanum og kallar þessa reynslu „einmana­lega“ því vel meinandi vinir og fjölskyldu­meðlimir hverfa oft smá saman mánuðina eftir harm­leikinn. Segist hún ekki aðeins sækja fundi með stuðnings­hópum þeirra með svipaða reynslu, heldur heldur hún slíka fundi heima hjá sér líka.

„Ég berst nú þegar við og lem á sjálfri mér stans­laust og krónískt og kenni sjálfri mér um á hverjum einasta degi og það eitt er nógu erfitt að lifa með en það sem er eiginlega enn grimmara er að vera dæmd af öðrum sem kenna þér líka um, jafnvel leynilega eða á bak við þig, ofan á allt annað.“

Lisa Marie gefur svo þeim sem hafa ekki upplifað sömu sorg en vilja sýna stuðning í verki fyrir þá sem hafa upplifað slíkt, nokkur ráð.

„Spurðu þau hvernig þau hafi það, biddu þau að tala um persónu þeirra, já! Við VILJUM tala um þau. Þannig höldum við þeim á lífi í hjörtum okkar, þannig gleymast þau ekki, þannig höldum við okkur á lífi líka,“ segir hún og heldur áfram. „Og gerðu mér greiða, ekki segja þeim að þú „getir ekki ímyndað þér sársauka þeirra“. Sann­leikurinn er sá að jú, þú getur það, þú bara vilt það ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt