Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Jóhann Valgeir er Austfirðingur ársins: „Núverandi hús hefur þurft mikla ást en ekki fengið hana“

Jóhann Valgeir Davíðsson
Jóhann Valgeir Dav­íðs­son Mynd: Gunnar Gunnarsson

Jóhann Valgeir Davíðsson, íþrótta­kennari á Eskifirði er Austfirðingur ársins 2022.

Austur­frétt segir frá því að Jóhann Valgeir, hafi verið kosinn Austfirðingur ársins 2022 af lesendum miðilsins en titilinn hlýtur hann fyrir dugnað sinn við að benda á bágt ástand á íþrótta­húsinu á Eskifirði.

„Það er mikill heiður að vera Austfirðingur ársins. Sá hópur sem áður hefur verið valinn er fjöl­breyttur og sýnir hvað vakið hefur mesta athygli ár hvert. Kannski man fólk vel eftir þessu máli hér því það kemur upp í lok árs og var heitt í bæjar­félaginu,“ segir Jóhann Valgeir í samtali við Austur­frétt.

Barðist fyrir rannsókn á íþróttahúsinu

Undan­farin ár hefur hann verði ötull við að vekja athygli á hræðilegu ástandi hússins en það hefur til að mynda lekið eftir stór­rigningar. Það var svo í haust að botninn tók þó úr þegar hann birti ljós­myndir í hóp Eskfirðinga á Facebook en á þeim mátti sjá vatn vella út úr blöðrum sem myndast höfðu í veggjum íþrótta­hússins. Vakti þetta það mikla athygli að Ríkis­sjónvarpið gerði frétt um málið og tók viðtal við Jóhann Valgeir.

Sjá einnig: Starfs­maður félags­miðstöðvar í Fjarða­byggð sendur í leyfi nokkrum dögum eftir gagnrýni á myglu

Eftir þetta fór að bera á áhyggjum bæjarbúa af myglu og var sett talsverð pressa á Fjarðar­byggð að rannsaka málið. Það var svo gert og kom í ljós í byrjun janúar að myglu var sannarlega að finna í húsinu en það var tekið úr notkun fyrir áramót og er nú verið að skoða með fram­haldið.

„Fyrsta myndin sem ég set inn úr húsinu er frá 2014. Fólki fannst hún hræðileg en það gerðist lítið. Það var leki sem var lagaður en þá fór að leka annars staðar. Þakið var loðið, trúlega myglað. Það var ekkert loftræstikerfi en nokkur ár eru síðan því var komið upp.

Lekinn hefur aukist síðustu ár. Í haust var hægt að nota þriðjung salarins því það var allt á floti. Það er hund­leiðinlegt að vinna við slíkar aðstæður.

Þetta hljómar eins og nöldur á Facebook, sem það vissulega er að vissu leyti, en það breytir því ekki að sveitar­félagið átti að vita um stöðuna. Ef ég hefði ekki verið byrjaður að nöldra þá væri ekkert að gerast núna heldur málið í einhverri nefnd. Stundum þarf að grípa til örþrifa­ráða. Íþrótta­húsið er ekki vel nýtt af bæjarbúum, það er fyrst og fremst notað af skólanum. Það er því kannski bara við kennararnir, starfs­fólk hússins og stöku þjálfari sem vitum hversu slæmt ástandið var. Síðan fer fólk að hugsa til þess að barnið þess geti verið í mygluðu húsi og þá vaknar það. Foreldrar hafa kvartað yfir veikindum sem hafa lagast við að barnið var tekið úr íþróttum. Ég get ekki sagt til um hvort það sé rétt, ég er ekki læknir. En maður hugsar líka um sjálfan sig, um hvort maður vilji starfa í mygluðu húsnæði. Þess vegna er gott að fá vissuna. Ef húsið er ekki myglað þá er það gott en ef svo er þá þarf að díla við það. En burtséð frá því þá nennir enginn að vinna í mygluðu húsi,“ sagði Jóhann Valgeir.

Hitafundur á Eskifirði

Mikill hita­fundur var haldinn fyrir tveimur vikum á Eskifirði en þar kröfðust íbúar nýs íþrótta­húss. Bæjar­fulltrúar sögðu hins vegar að ekki væri til peningur fyrir nýju húsi eins og er en mikilvægt væri að komast að því hversu alvarlegt málið væri.

„Ég kom þessu bara af stað, nú hafa Íbúa­samtökin og fleira gott fólk tekið við boltanum. Það sást á fundinum að þetta skiptir fólk máli. Það mætti margt fólk og það var reitt. Núverandi hús hefur þurft mikla ást en ekki fengið hana. Íþrótta­húsin eru hverjum stað mikilvæg. Á okkar hús vantar til dæmis stórar dyr. Við ætluðum eitt sinn inn með leiktæki af bæjar­hátíð en þau voru of stór. Með umbótum er hægt að nýta íþrótta­húsið betur. Ég er ánægður með að hreyfing sé komin á hlutina. Hvort nýtt hús rísi hér við skólann eða inni í landi (samkvæmt skipulagi á að reisa íþróttahús við hlið sund­laugarinnar í botni fjarðarins, um 1,5 km frá skólanum) skal ég ekki segja til um. Ég skil hvort tveggja vel. Ég veit heldur ekki hvort það borgi sig að rífa niður í núverandi húsi til að gera við það eða rústa því og byggja nýtt eða hvort hægt sé að stækka húsið þar sem það er nú. Það hlýtur að þurfa að meta á einhverjum tíma­punkti. Hvort það borgi sig verður fólkið sem til þess er kjörið að ákveða. Persónu­lega vil ég bara stærra hús og góða vinnu­aðstöðu, að við fáum hús sem bæjarbúar sætta sig við næstu 50 árin en ekki skítamix til að þagga niður í fólki. Það er ekki nóg að setja upp loftræstikerfi ef þakið heldur áfram að mygla,“ sagði Jóhann Valgeir við Austur­frétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp