Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Siggi Stormur yfirgefur Miðflokkinn: „Svona áfall gjörbreytir hugsun manns“

Siggi Stormur
Siggi Stormur

Sigurður Þ. Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi Stormur, hefur ákveðið að segja skilið við Miðflokkinn í Hafnar­firði. Þessu segir hann frá á Facebook-síðu sinni. „Jæja þá er það ákveðið!“ segir hann.

„Þegar maður stendur á tímamótum er hollt að fara í gagnrýna sjálf­skoðun,“ segir Siggi í upphafi tikynningar sinnar.

Veður- og jarð­vísinda­maðurinn knái var bæjar­fulltrúi og oddviti Miðflokksins í Hafnar­firði á síðasta kjör­tímabili en náði ekki kjöri í sveitar­stjórnar­kosningunum í maí síðastliðnum.

Í tilkynningunni talar Siggi meðal annars um það sem drifið hefur á daga hans síðustu misseri.

„Eins og margir vita lentum við hjónin í miklu áfalli þegar sonur okkar varð lífs­hættulega veikur mánuðum saman og sér ekki fyrir endann á. Svona áfall gjör­breytir hugsun manns og lífið og lífsgæði fara í fremsta þrep. En þó áföllin dynji yfir mann, þá verður maður líka að reyna að halda áfram.“

Hann útskýrir að þegar hann hafi farið að spegla sig við stjórn­málaflokka hafi hann komist að raunum um að hann vildi setja manngæsku og mannlegar þarfir í fyrsta sæti.

„Ég hef alltaf verið svolítið til hægri og hef haft gaman að pólitísku vafstri. Nú hef ég gert upp hug minn og ákveðið að hætta í Miðflokknum og yfirgefa hægrið,“ segir hann. Það er þó ekki svo að Siggi ætli að hverfa alfarið frá stjórn­málum, heldur ætlar hann að færa sig um set.

„Ég hef semsagt ákveðið að færa mig yfir línuna til vinstri og ákveðið að ganga til liðs við Samfylkinguna. Þar sé ég samsvörun við það sem mér finnst öllu máli skipta, þegar öllu er á botninn hvolft, lífsgæði og velferð fólks. Ég finn að ég er sáttur við sjálfan mig að hafa tekið þessa ákvörðun og ber ekki kala til nokkurs manns. Ég hlakka hins vegar mikið til að fá að starfa með bæjar­málaflokki Samfylkingarinnar í Hafnar­firði,“ segir í tilkynningunni.

„Svo mörg voru þau orð – hlýjar kveðjur til ykkar allra,“ segir hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Beint úr Breiðholtinu
Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá