Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Vínklúbburinn – Vín í áskrift

Einar Þór Ingólfsson
Einar Þór Ing­ólfs­son

Hugmyndin með Vínklúbbnum er að bjóða upp á léttvín í áskrift og stuðla að aukinni þekkingu um vín á Íslandi. Lögð er áhersla á gæðavín sem koma frá mismun­andi löndum, héruðum og af marg­víslegum þrúgum. Í hverri sendingu fylgir greinargóð lýsing á vínunum og fram­leiðendum þeirra.

Vínklúbburinn var stofnaður haustið 2022 að erlendri fyrirmynd. Stofn­endur eru nokkur vinahjón sem kynnst hafa slíkum klúbbum en víða hefur lengi tíðkast að fólk gerist áskrifendur að vínkössum sem sendir eru heim að dyrum. Áskrifendur að Vínklúbbnum vita ekki hvað leynist í kassanum í hverjum mánuði en áhersla er lögð á fjöl­breytt gæðavín sem ekki hafa áður verið fáanleg á Íslandi.

„Vínmenning á Íslandi er mun skemmra á veg komin en í mörgum löndum í kringum okkur. Með Vínklúbbnum viljum við stuðla að aukinni fræðslu og kynna áskrifendum fyrir spennandi vínum sem þeir hefðu líklegast ekki prófað annars. Með hverjum vínkassa fylgja ítarlegar upplýsingar um vínin, uppruna þeirra og með hvers konar mat þau henta best. Við erum gríðar­lega ánægð með viðtökurnar sem við höfum fengið frá því að við hófum starfsemi okkar,“ segir Einar Þór Ingólfsson, einn stofnenda klúbbsins. „Við hugsum Vínklúbbinn ekki fyrir vínsérfræðinga heldur fyrir allt áhugafólk um vín. Við viljum kynna fólki fyrir fjöl­breyttum og spennandi vínum frá mismun­andi svæðum. Það má í raun segja að með því að fá vínin send heim að dyrum sé valkvíðinn við vínrekkann úr sögunni. Áherslan hjá okkur er og verður að bjóða upp á gæðavín á góðu verði.

Við sem stöndum að klúbbnum erum ekki vínsérfræðingar en mikið áhugafólk um vín. Við erum hins vegar í samstarfi við sterka heildsala og sérfræðinga á Norður­löndum sem eru okkur innan handar við valið. Einnig flytjum við beint inn frá nokkrum spennandi minni fram­leiðendum. Við leitumst því við að kynna fólki fyrir góðum vínum sem hafa ekki verið fáanleg á Íslandi til þessa en einnig fyrir vínum frá fram­leiðendum sem leggja áherslu á nýsköpun og þróun.“

Lífræn ræktun og náttúruvín

Meðlimir geta valið um tvær áskriftar­leiðir, Vínklúbbinn eða Vínklúbbinn Premium. Þeir sem velja Vínklúbbinn fá sérvalin vín á góðu verði sem henta vel við hvert tækifæri. Lögð er áhersla á góða blöndu af vínum sem hafa hlotið lof gagn­rýnenda en eru jafnframt á sérlega góðu verði miðað við gæði.

Í Vínklúbbinn Premium rata handvalin hágæðavín sem þykja skara fram úr og kitla bragð­laukana. Áhersla er lögð á heims­þekkt vín frá fjöl­breyttum fram­leiðendum með ríka sögu um gæði í bland við nýrri fram­leiðendur sem eru líklegir til að skjótast upp á stjörnu­himininn.

Í báðum áskrifta­leiðum má velja um þrjár eða sex flöskur í hverri heimsendingu.

Einar Þór að smakka vín hjá litlum vín­fram­leið­anda í Valpolicella á Ítalíu.

Einar Þór segir mikið vera að gerast í vínheiminum. „Það er  mikil áhersla lögð á lífræna og bíódínamíska ræktun og flestir fram­leiðendur eru í dag með skýra stefnu varðandi sjálfbærni. Einnig eru náttúruvín farin að skjóta upp kollinum og mikið úrval er af frábærum vínum sem eru framleidd sem slík. Þetta er þróun sem við fylgjumst vel með og viljum kynna fyrir fólki í Vínklúbbnum. Í kassanum okkar í júní bjóðum við til dæmis upp á franskt gulvín („orange wine“) sem er víntegund sem hefur á undan­förnum árum notið mikilla vinsælda meðal vínáhugafólks. Það er ástríða okkar og mikil­vægur hluti af starfseminni að fylgjast vel með nýjungum og því sem gerist á markaðnum og í löndunum í kringum okkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ingólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opnunar­veisla Bryggju­hússins að hefjast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegrunar­aðgerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setningu?

Bæjar­hátíðin Í túninu heima stendur með miklum blóma í Mosfellsbæ

Bangsa­félagið heldur upp á afmæli með stórhátíð og nýrri keppni