Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Hjúkrunarfræðingar verða fyrir áreiti á Facebook – „Þú mátt alveg vera heima og gera ekki neitt.“

„Það er engin lagaleg skylda til að vera inn í Facebook-hóp vinnu­staðarins, hvað þá að vera með kveikt á hópspjalli þar sem sífellt er verið að óska eftir fólki á vakt,“ skrifar Halla Eiríks­dóttir, vara­formaður Félags íslenskra hjúkrunar­fræðinga, í pistli á vef FÍH. Þar segir hún hjúkrunar­fræðinga vera útsettari fyrir meðvirkni enda sé meðvirkni þekkt fyrirbæri meðal umönnunar­aðila.

„Flestir hjúkrunar­fræðingar fá sem betur fer að fara í samfellt fjögurra vikna frí núna í sumar en gera það með jafnvel með sektar­kennd því að samstarfs­fólkið þarf að hlaupa hraðar á meðan, þar sem ekki hefur tekist að fylla upp í lausar stöður.“ Veltir Halla því fyrir sér hver ábyrgð vinnu­veitanda gangnvart starfs­fólki sínu sé og hvers vegna vinnu­veitendur ætlist til þess að að unnið sé undir sífellt meira álagi.

„Það læðist að manni sá grunur að heilbrigðis­kerfið í heild njóti góðs af vilja hjúkrunar­fræðinga til að hjálpa skjólstæðingum sínum og samstarfs­fólki.“ Halla segir nýtt fyrirbæri orðið þekkt meðal hjúkrunar­fræðinga – „samvisku­bitaáreiti“.

„Við erum nú komin með fyrir­bærið „samvisku­bitaáreiti“ sem felur í sér reglulegt áreiti samstarfs­manna í gegnum síma og samfélags­miðla til að fá hjúkrunar­fræðinga á aukavakt þegar þeir eiga að vera í fríi og vilja ekki meiri vinnu.“ Hún segir mikilvægt að hjúkrunar­fræðingar standi með sjálfum sér og þekki sín mörk.

„Munið að það þarf ekki að koma með neina afsökun fyrir því hvers vegna þú vilt ekki vinna umfram vinnu­skyldu. Það þarf ekki að vera ferðalag, afmæli eða brúðkaup, þú mátt alveg vera heima og gera ekki neitt. Þegar upp er staðið er engum greiði gerður með því að vinna umfram eigin mörk, slíkt endar aldrei vel.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá