Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Ekkert Eistnaflug í ár: „Okkar markmið hefur alltaf verið að skemmta ykkur með besta þungarokkinu“

Hljómsveitin Thingtak á Eistnaflugi 2019. Frá vinstri: Hrafnkell (stundum kallaður Kip), Sverrir og Stebbi Jak.
Hljóm­sveitin Thingtak á Eistna­flugi 2019. Frá vinstri: Hrafn­kell (stundum kall­aður Kip), Sverrir og Stebbi Jak. Mynd: Gunnar Gunnarsson

Þungarokks­hátíðin Eistna­flug verður ekki haldin í Neskaups­stað þetta árið. Að sögn skipuleggjara markar þetta þó ekki endalok hátíðarinnar.

Austur­frétt segir frá tilkynningu sem skipuleggjendur hátíðarinnar sendu frá sér á Facebook í gær. Kemur þar fram að eitt og annað hafi verið reynt til að koma hátíðinni á koppinn í ár en ýmislegt hafi komið í veg fyrir það en flest sé beint eða óbeint afleiðingar af Covid-faraldrinum.

Í tilkynningunni er skýrt tekið fram að einungis sé um hlé og andrými að ræða. Nýta á hléið til að endur­skoða vinnu­ferla og skipulag. Þar kemur einnig fram að áfram verði unnið í að endurnýja hátíðina og gera hana enn betri en hún hefur verið. Þá muni tónleikaröð í Reykjavík halda áfram.

„Okkar markmið hefur alltaf verið að skemmta ykkur með besta þungarokkinu og að halda eina bestu hátíð Íslands, þar sem allir eru jafnir og eins og fjöl­skylda! Við munum snúa aftur! 2024 mun vera sturlað ár!“

Eistna­flug byrjaði sem lítil, eins dags þungarokks­hátíð árið 2005 en hefur stækkað ört síðan en hún hefur vakið athygli fyrir það hversu vandræða­laus hún hefur verið, nánast engin ofbeldis­brot hafa komið upp frá upphafi hátíðarinnar en mottó hennar er „Ekki vera fáviti“.

Hún féll niður 2020 og 2021 vegna Covid-faraldursins en var haldin í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp