Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Heilbrigðiseftirlitið grípur til aðgerða vegna olíumengunar á Eskifirði

Eigandi lóðanna við Strand­götu hefur enn ekkert brugðist við dagsektum og kröfu um tafar­lausa hreinsun á olíu, ári eftir að krafan barst.

Eskifjörður
Eski­fjörður HAUST hyggst nú taka málin í sínar hendur. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Heilbrigðis­eftirlit Austur­lands (HAUST) hyggst á næstunni láta framkvæma nákvæma úttekt á olíu­mengun á lóðunum að Strand­götu 59 og 61 á Eskifirði. Rúmt ár er nú liðið frá því að fyrir­tækið Móglí ehf., eigandi lóðanna, var krafið um tafar­lausa hreinsun svæðisins, en engar aðgerðir hafa enn verið framkvæmdar. Þetta kemur fram í umfjöllun Austur­fréttar.

Sjá fyrri frétt: Gripið til dagsekta vegna olíu­mengunar á Eskifirði – Hafa ítrekað hundsað kröfur HAUST

Í mars síðastliðnum hófst undir­búningur að því að stefna fyrir­tækinu, þar sem dagsektir sem höfðu safnast upp yfir nokkurra mánaða tímabil höfðu ekki leitt til úrbóta. Heildar­sektirnar nema nú um fjórum milljónum króna, án þess að eigandinn hafi sýnt neinn vilja til samstarfs.

Að sögn Láru Guðmunds­dóttur, framkvæmda­stjóra HAUST, er málið enn í vinnslu. Næstu skref felast í að meta nákvæmlega hve mikið magn olíu er til staðar á lóðunum.

Að því loknu verður unnin hreinsunar­áætlun, sem verkfræði­stofan Efla mun annast fyrir hönd HAUST, með samþykki allra lóðar­eigenda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp