Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Shawn Mendez slaufar óvænt tónleikaferðalaginu: „Núna þarf ég að setja heilsu mína í fyrsa sætið“

Shawn Mendes syngur hér í afmælisveislu Elísabetar drottningar.
Shawn Mendes syngur hér í afmæl­is­veislu Elísa­betar drottn­ingar. Mynd: https://www.flickr.com/photos/raph_ph/page3

Söngvarinn Shawn Mendes hefur tilkynnt að hann verði að hætta við tónleika­ferðalag sitt sökum andlegra veikinda. Stuttu síðar sást hann í göngu og virtist í góðu skapi.

Shawn Mendes, sem gerði allt vitlaust með laginu Señorita fyrir nokkrum árum, sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem hann sagðist þurfa að hætta við restina af tónleika­ferðalagi sínu, Wonder, sökum andlegra veikinda.

Fjöl­miðlar vestanhafs gerðu sér mat úr því að einungis fáum klukku­stundum eftir að tilkynning var send út, hafi Mendes sést í göngu ásamt vinum og vinkonum í Runyon-gili í Los Angeles og það sem „skrítna“ var, hann virtist í góðu skapi, að sögn vitna. Sögðu vitnin að söngvarinn hafi hlegið og brosað sem miðlum ytra þykir undarlegt í ljósi tilkynningarinnar.

Hinn 23 ára tónlistar­maður gaf frá sér tilkynningu í löngu máli í gær þar sem hann fór yfir stöðuna.

„Eins og þið vitið, þá hef ég þurft að fresta tónleikum síðustu vikurnar því ég var ekki viðbúinn því álagi sem nýju tónleika­ferðalagi fylgdi. Ég var mjög spenntur þegar ég hóf þetta tónleika­ferðalag, að komast loksins aftur á ferð og spila eftir langt hlé vegna Covid-faraldursins, en raunin er sú að ég var ekki tilbúinn fyrir álaginu sem fylgdi því að snúa aftur eftir svona langt hlé,“ skrifaði söngvarinn ungi og hélt áfram. „Eftir að hafa rætt betur við teymi mitt og eftir að hafa unnið með hóp af ótrúlegu heilbrigðis­starfsfólki, hef ég komist að þeirri niður­stöðu að ég verði að taka mér pásu, sem ég hef ekki gert áður, til að kjarna mig og snúa aftur sterkari. Ég þarf því miður að slaufa restinni af tónleika­ferðalaginu í Norður-Ameríku og í Bretlandi/Evrópu. Við erum bjartsýn á að ég muni geta byrjað aftur á ferða­laginu eftir pásuna sem ég þarf svo mjög á að halda en akkurat núna þarf ég að setja heilsu mína í fyrsa sætið.“

Slúður­pésinn Perez Hilton velti því fyrir sér í hlaðvarps­þætti sínum, hvort hin raun­verulega ástæða söngvarans fyrir slaufuninni væri sú að illa hafi gengið að selja á tónleikana en ekki skal fullyrt um það hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt