Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Hunsaði öll ráð húðflúrara og afskræmdist

TikTok-notandi sem gengur undir nafninu Jackiefloww birti nýverið myndbönd af hræðilegri reynslu sinni af húðflúri.

Í fyrsta mynd­bandinu má sjá huggulegt húðflúr sem hún fékk sér af dreka og blómi. Í fram­haldinu er klippt yfir á næstu mynd sem sýnir sama húðflúr sem hefur umbreyst í einhverskonar gráa klessu. Húðin virðist soðin og upphleypt, og flúrið algjör­lega óþekkjanlegt og afskræmt. Rödd í mynd­bandinu segir „þú ert líklega að velta því fyrir þér hvernig ég lenti í þessu“. Næst er mynda­syrpa af eiganda húðflúrsins sýnd þar sem hún sést synda í sjónum og í sólbaði á bát á sólríkum stað.

Jackie virðist því sannarlega hafa hunsað allar ráðleggingar varðandi húðflúrið sitt, og farið beina leið í bæði vatn og sól með það óvarið. Þetta tvennt er meðal þess sem húðflúr­arar leggja blátt bann við þegar kemur að nýjum flúrum.

Svona leit húð­flúrið út þegar það var nýtt.
Svo fór Jackie í sól­böð og sjó­sund…
Svona leit flúrið síðan út eftir áhyggju­laust fríið.

Jackie gerði þau mistök að hunsa allar mikil­vægustu reglurnar um ný húðflúr. Þegar fólk fær sér húðflúr hjá fagmanni er þeim greint frá reglum er varða umhirðu flúrsins. Til dæmis er ekki mælt með því að fólk fari í sund, gufu eða í bað/heita potta í þrjár til fjórar vikur.

Eftir að fólk fær sér húðflúr er því ráðlagt að forðast sól og ljósa­bekki í fjórar vikur á eftir. Eftir þann tíma er mælt með því að fólk noti sólarvörn með mjög háum stuðli, svokallað „sun block“. Á vefsíðu Bleks­miðjunnar er til dæmis stungið upp á því að fólk noti Balm Tattoo Sunblock 75, sem er sérhönnuð sólarvörn fyrir húðflúr. Sólar­vörnin er með stuðul 50.

Jackie birti síðan annað myndband af vegferð sinni með yfir­skriftinni „Ég er þó allavega í Cancun.“ Yfir mynd­bandinu má heyra lagið Dumb Ways to Die með Tangerine Kitty, en titill lagsins þýðist á íslensku sem „heimskulegar leiðir til að deyja“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt