Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Ísold æfði undir handleiðslu heimsmeistara: „Mamma ég er ekki að fara að lifa fram að jólum“

Ísold Fönn Vilhjálmsdóttir, Skautakona eftir aðgerð. Mynd. Skjáskot/Vísir
Ísold Fönn Vil­hjálms­dóttir, Skauta­kona eftir aðgerð. Mynd. Skjáskot/Vísir

Ísold er á nokkurs vafa ein efnilegasta skauta­kona landsins. Hún hefur unnið fjölmarga titla bæði hér heima og erlendis. Allt hófst þetta á tjörninni heima á Jökuldal. Ísold ræddi um feril sinn í þættinum Sögur af landi, sem Óðinn Svan Óðinsson, blaða­maður og Halla Ólafs­dóttir, dagskrár­maður tóku saman.

„Lífið á Möðrudal fyrir lítinn krakka var eins og paradís á jörðu. Þú hefur allt sem þú vilt. Mamma lét mig fá einhverja skauta þegar ég var þriggja ára og ég fór bara út á tjörn heima í sveitinni og var að skauta. Ég var bara úti allan daginn að snúa mér í kringum einhvern girðinga­staur og fann bara hvernig þetta var það sem gerði mig glaðasta,“ segir hún. 

Skauta­konan er 15 ára frá Möðrudal á Fjöllum og hefur reynt ýmislegt þrátt fyrir ungan aldur. Búferla­flutninga til Bratislava, erfið meiðsli, mikil veikindi og stóra aðgerð í Þýska­landi.

Þær mæðgur gengu lækna á milli, bæði hér á landi og í Sviss án þess að fá greiningu og andlegri og líkamlegri heilsu Ísoldar hrakaði hratt.

„Þetta tók alveg á og ég var farinn að gera mér grein fyrir því. Í ágúst þá segi ég við mömmu, mamma ég er ekki að fara að lifa fram að jólum ef ég fæ ekki hjálp. Það er enginn að fatta hvað þetta er og ég get ekki lifað svona.“

Elti þjálfarann sinn til Slóvakíu

Þegar Ísold var sex ára ákvað hún í samráði við foreldra sína að fara í grunn­skóla á Akureyri og byrja að æfa hjá Skauta­félagi Akureyrar. Þar kynntist hún þjálf­aranum sínum, Ivetu Reitmayerova, sem Ísold segir að hafi kveikt áhuga hennar á því að ná langt í íþróttinni.

„Maður var alltaf að læra eitthvað nýtt og bæta sig. Það var eitthvað nýtt á hverri æfingu og maður var alltaf spenntur að fara á æfingu. Þá förum við líka að fara út í æfinga­búðir og keppnis­ferðalög og það var alveg geggjað.“

Þegar Iveta flutti aftur heim til Slóvakíu eftir nokkurra ára dvöl á Íslandi ákváðu Ísold og mamma hennar að elta hana þangað.

Fluttu til Sviss og æfði undir handleiðslu heimsmeistara

Eftir dvölina í Slóvakíu flytja þær mæðgur til Champéry í Sviss þar sem hún æfir undir stjórn Stéphane Lambiel, sem er tvöfaldur heims­meistari á list­skautum og silfur­verðlauna­hafi á Ólympíu­leikum. Þar æfði hún með mörgum af bestu skauturum heims og naut sín vel. „Mér fannst bara eins og við þyrftum nýtt start og ég fann það bara þegar við komum þarna að þetta væri einmitt staðurinn fyrir mig.“

Veikindi og fann fyrir fordómum af hálfu lækna

Það var á þeim tíma sem meiðsli og veikindi gera vart við sig. Ísold hafði lengi fundið fyrir óþægindum og orkuleysi en hún átti erfitt með að nærast. „Ég var sem sagt með vascular compression syndrome, sem er í raun á íslensku, æðakremju sjúkdómur. Ég fór að vera með svima, átti erfitt með að anda, mér alltaf illt í nýrunum og þá var bara mjög erfitt að æfa.“

Veikindin tóku mikið á Ísold og leiddu að lokum til þess að hún þurfti að taka sér frí frá íþróttinni. „ Hjartað var að slá 25 slög á mínútu og mér var bara bjargað þarna á spítalanum þó þau vissu ekkert hvað var að mér.“

Mæðgurnar fluttu heim í von um að fá greiningu á veikindunum og til að ná bata. Það reyndist þrautin þyngri.

„Það héldu allir að þetta væri bara átröskun eða eitthvað andlegt. Það vær næstum því sagt við mig, skautar, 15 ára og getur ekki nærst, það er pottþétt eitthvað andlegt.“

Fundu hjálp í Þýskalandi – flókin aðgerð og endurhæfing

Foreldrar Ísoldar fundu loksins lækni í Þýska­landi sem taldi sig geta hjálpað henni.

„26. október fer ég í skoðun og læknirinn sér allar þrengingarnar og strax þá fannst mér eins og mér hefði verið bjargað þegar hann segir að hann sjái hvað er að mér. Ég missti mig bara í gleði og tárum.“

Daginn eftir fer Ísold í mjög langa og flókna aðgerð og við tók endur­hæfingu í hálft ár og hefur allt gengið samkvæmt áætlun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá