Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Flóran Garden Bistro: „Þetta er einfaldlega töfrandi staður“

Marentza Poulsen
Marentza Poulsen

Veitinga­staðurinn Flóran Garden Bistro í Grasa­garði Reykja­víkur var opnaður fyrir 25 árum.

„Þetta var hugmynd sem kom frá garðyrkju­stjóra Reykja­víkurborgar, Jóhanni Pálssyni, en honum fannst vanta kaffihús í Grasa­garðinn eins og oft má finna í sambærilegum görðum erlendis og var leitað til mín,“ segir Marentza Poulsen. „Mér fannst þetta spennandi og fannst þetta vera eitthvað sem ég gæti gert svona sem hliðar­starf, af því að ég var á þessum tíma að vinna töluvert fyrir Gest­gjafann. En áður en þessu fyrsta sumri lauk hafði ég þurft að ráða til mín starfs­mann og var nokkuð ljóst að fólk kunni vel að meta þessa starfsemi. Flóran hafði mikil og góð áhrif á mannlífið í garðinum og í dag er þetta afar vinsælt kaffihús.“ Flóran er opin út maímánuð frá kl. 10-18 en frá 1. júní og fram á haust verður opið til kl 21.

„Við erum fyrst og fremst undir skandinavískum áhrifum þar sem ég er fædd og uppalin í Færeyjum og lærði mitt fag í Danmörku. Þá erum við einnig með heilmikla matjurta­ræktun og leggjum áherslu á einfaldan og hreinan mat þar sem gott hráefni er lykil­atriði.

Við höfum í gegnum tíðina ræktað töluvert af okkar eigin grænmeti, krydd­jurtum og ætiblómum. Þetta er auðvitað svolítið misjafnt milli ára, fer eftir tíðarfari og öðrum aðstæðum, en mér hefur þótt þetta mikil­vægur þáttur í starfinu og verið mér mjög lærdóms­ríkt. Í Grasa­garðinum starfar fært fagfólk sem hefur stutt mig vel og ég hef getað leitað til og lært mikið af. Það er ég afar þakklát fyrir.“

Marentza segir að það hafi verið markmið hennar að skapa vin í borginni, róandi og gefandi umhverfi sem heldur vel utan um fólkið og lætur því líða vel. „Þá er mikilvægt að maturinn og umhverfið spili vel saman svo úr verði stemming sem fólk upplifir á jákvæðan og gefandi hátt. Þetta virðist hafa virkað því staðurinn hefur vaxið jafnt og þétt þessi 25 ár sem eru liðin frá því að ég opnaði Flóruna fyrst. Fólk kemur aftur og aftur og það er einstak­lega gefandi að finna það á hverju vori, að fólk hefur verið að bíða eftir því að við opnum. Það er mjög ánægjulegt.“

Garð­skálinn, þar sem Flóran er staðsett, er fyrst og fremst plöntu­safn og segir Marentza að það séu mikil forréttindi að fá að reka veitinga­stað í þess háttar umhverfi. „Ég er fyrst og fremst að þjónusta Grasa­garðinn; gróðurinn og velferð hans eru í fyrirrúmi, en á sama tíma hefur gróðurinn einstök áhrif á fólkið sem nýtur þess að ganga um garðinn og koma við í Flórunni. Þetta er mikill sælu­reitur. Mér finnst einstök tilfinning að mæta á morgnana í kyrrðinni, staldra við og hlusta á fugla­sönginn. Það er engu líkt. Í góðu veðri kjósa margir að sitja úti, en útisvæði Flórunnar er mjög gott og fallegt, en það er mikið skjól og veðursæld í garðinum.  Ég hlakka til á hverju vori að opna Flóruna þrátt fyrir að ég sé oft orðin ansi lúin á haustin eftir mikla törn. Fjöl­breyti­leikinn í gróðrinum, ilmurinn í loftinu í bland við góða matar­upplifun: Þetta er einfald­lega töfrandi staður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá