Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ég er ofboðslega þakklátur alkóhólisti: „Ég er í sambandi við son minn í dag og ég elska hann mest“

Guðbjörg Inga Guðjóns­dóttir. Kölluð Gugga. Byrjaði ung að drekka og dópa. Innbrot. Vændi. Ofbeldi. Varð vitni að morði. Hún kynntist ástinni sinni í neyslu og ástin dó síðar úr krabba. Hún syrgir Jóa sinn, en bæði fóru í meðferð og áttu saman nokkur ár edrú. Í dag er hún öryrki og segist vera góð við dýr og menn. Hver eru skilaboð Guggu til þeirra sem eru að prófa? Prófa að drekka. Dópa. „Helst vildi ég að þessir krakkar segðu „nei“.“ Guðbjörg Inga Guðjóns­dóttir er í helgar­viðtali Mannlífs. Hún ræðir við Svövu Jóns­dóttur, lítur yfir farinn veg og talar í einlægni um það sem á daga hennar hefur drifið.

Í dag er Gugga öryrki. Segist vera með stíflaðan ristil.

Hún hefur gaman af ljóðum. Hefur skrifað ljóð þótt hún hafi ekki skrifað lengi. „Ég á samt nokkur og uppáhalds­ljóðið mitt heitir „Upp úr glötunar­gröfinni“. Ég á það í ramma uppi á vegg. Ég skrifaði það á meðferðar­stöðinni Vík. Ég bið til Drottins Jesú á hverjum degi og legg líf mitt í hans hendur. Fer með fyrstu þrjú sporin á morgnana og bið um að fá að vera edrú í dag, þakklát, glöð, hamingjusöm og frjáls. Bið fyrir vinum mínum og fjöl­skyldu og fyrir fallegu dýrunum mínum. Svo fer ég út í daginn.“

Eitt dýrið hennar drapst í vor. Á þjóðar­hátíðardegi Norðmanna.

„Ég missti kisuna mína. Hún fékk blóðtappa og lamaðist í aftur­fótum. Ég tók eftir því 16. maí að hún gat ekki labbað og var að reyna að skríða. Henni hrakaði svo fljótt og ég tók hana upp í rúm til mín og reyndi að láta fara eins vel um hana og ég gat. Hún hét Sefanía og ég ein mátti halda á henni og hún svaf alltaf ofan á mér. Hún dó aðfara­nótt 17. maí klukkan 2.15. Hennar er sárt saknað á hverjum degi og ég mun aldrei gleyma henni. Ég á eftir tvær kisur og hund til að hugsa um og elska.“

Gugga er þakklát fyrir ýmislegt í dag. „Ég er svo þakklát fyrir bestu vinkonur mínar sem Guð gaf mér og fyrir Stellu, systur mína, og Aldísi, frænku mína. Og svo eignaðist ég pabba hér á Kjalarnesi.

Ég er í sambandi við son minn í dag og ég elska hann mest. Hann var 16 ára þegar hann vildi tala við mig. Þá var ég búin að vera edrú í fimm ár. Ég er líka í sambandi við barns­föður minn og ber mikla virðingu fyrir honum og þykir svo vænt um hann og pabba hans og mömmu. Þau hafa hugsað svo vel um son minn. Ég er þeim ævinlega þakklát og þykir innilega vænt um þau. Þau hafa alltaf verið mér góð.“

Og í dag er ég ofboðs­lega þakk­látur alkó­hólisti.

Hvað hefur Gugga lært af þessu öllu?

Lesa meira hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá