Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Svavar var í neyslu og bjó í tjaldi en þá birtist hjálpin: „Náðu þér í kókómjólk og hreinar nálar“

Svavar Georg
Svavar Georg

Nýjustu gestir bræðrana Gunnars og Davíðs Wiium eru Kristín Davíðs­dóttir og Svavar Georgsson. Kristín er hjúkrunar­fræðingur og teymis­stjóri skaða­minnkunar hjá Rauða krossinum og Svavar fyrrum skjólstæðingur fú Ragn­heiðar og að eigin sögn fíkill og alka­hólisti í bata en hann hefur verið edrú í tæp þrjú ár. Hér er brot úr viðtalinu.

Svavar og hans reynsla

Talið barst að Svavari og hans reynslu. Svavar fór yfir sögu sína og lýsti því hvernig hann sem unglingur í Vestmanna­eyjum fer að fikta við allt sem er hættulegt, áfengi og fíkniefni þar á meðal. Um 17. ára aldurinn flytur hann til Reykja­víkur og segir hann að pabbi sinn hafi sagt við hann við brottför að hann trúi því að Svavar muni enda í ræsinu í Reykjavík, svoleiðis var stemningin sem sagt orðin og faðir hans reyndist sannspár. Í einhver ár flakkaði hann á milli vina en neyslan jókst og jókst. Eitt sinn fékk hann úthlutaða félagslegri íbúð en hann var ekki fljótur að brenna þær brýr og missti hann íbúðina. Ekkert virkaði og svo kom að því að hann var orðin algjör­lega heimilis­laus og komin í harða neyslu á Ritalin og kókaín í æð. „Svo verður þetta alltaf verri og verri þróun og ég er farinn að brjóta af mér til að fjármagna þetta. Hvort sem það var með því að selja eiturlyf og fleira.“

Svavar var í harðri neyslu

Hann útskýrði í viðtalinu hvernig gistiskýlið á Lindar­götu hjálpaði honum mikið og veitti honum skjól á verstu tímunum en svo þegar hann bar sig eftir einhverri hjálp þar inni var í raun enga hjálp að fá. „Þegar ég var þarna bað ég ítrekað forstöðu­manninn um að koma mér í meðferð. Það er ofboðs­lega gott að vera þarna en mér persónu­lega finnst það vanta rosalega mikið upp á það að haldið sé betur utan um þá sem þarna eru.“ Þarna horfði hann upp menn sem gista þarna ár eftir ár og upplifði hann eins og hann væri bara í einhverri geymslu. Þá notaði hann einnig neyðar­skýlin úti á Granda. „Þetta var hugsað fyrir þá sem voru í harðri neyslu en „gömlu“ karlarnir sem voru bara í bjór og áfengi áttu að vera uppi á Lindar­götu. En eins og Kristín sagði áðan þá í Covid varð svolítið mixup og ef einn staðurinn er fullur þá verðurðu að fara á þann næsta. Ég fann samt ekki eins og það væri einhver hjálp í skýlunum en ég er ekki að setja út á þennan stað, þetta er rosa gott að þetta sé til, að þú getir átt svona neyðar­skýli til að leita til en mín upplifun var bara svona.“

Illa far­inn af neyslu

Honum fannst samt fínt að vera þarna framan af, kostaði ekki neitt svo allar félags­legu bæturnar gat hann notað í fíkniefni þó svo að þær hafi yfirleitt horfið á 1-2 dögum enda þessi efni sem um ræðir mjög dýr í innkaupum. Eftir að bæturnar kláruðust tóku afbrot við, þjófnaður og innbrot, öllu var stolið steini léttara til að komast yfir efnin sem kerfið öskraði á stans­laust.

Frú Ragnheiður

Hann kynnist úrræði Frú Ragn­heiðar einn daginn þegar félagi hans inn á skýli segir við hann „Svavar, drullaðu þér út, bíllinn er fyrir utan, farðu út og náðu þér í kókómjólk og hreinar nálar.“ Svavar vissi ekki hvað á sér stóð veðrið en þetta voru hans fyrstu kynni af Frú Ragnheiði. Í bílnum kynntist hann fólki sem ekki bara veittu honum útbúnað til öruggrar neyslu og tjald og hlý föt heldur líka viðmót sem einkenndist af hlýju og velvild. Eitthvað sem í raun er það dýrmætasta fyrir manneskju í þessari stöðu, stöðu þar sem oftast allir ættingar og vinir eru búnir að loka á viðkomandi, kerfið er búið að loka á þig, samfélagið er búið að loka á þig. Svavar bjó á tímabili í tjaldi sem gat orðið ansi kalt í verstu veðrunum en eftir að hann varð edrú var honum sagt af starfs­manni Frú Ragn­heiðar að þau hafi oft haft áhyggjur af honum, sérstak­lega þegar þau sáu ekki tjaldið hans. „Mér þótti svo vænt um að heyra þetta, að það var einhver raun­verulega að spá í því hvort ég væri lifandi eða ekki.“

Í dag er allt annað að sjá Svavar

Í kynnum og návist sjálfboða­liða Frú Ragn­heiðar fann fyrir einhverri mennsku sem að hans sögn urðu til þess að hann fann sig tilbúin til að biðja um hjálp. Hann skynjaði innra með sjálfum sér að hann væri að deyja og tilhugsunin um börnin sem hann átti þarna úti og gat ekki sinnt að neinu leiti nísti inn að beini. Á þessum tíma var hann búinn að vera í tjaldi í langan tíma í rjóðri fyrir neðan bensín­stöðina við Fellin í efra Breið­holti. Hann bað þáverandi forstöðu­konu Frú Ragn­heiðar um að hjálpa sér að komast inn í meðferð og það virkaði. Nóvember 2019 gekk hann inn á Vog og síðan hefur hann verið edrú og segir Svavar að ef ekki hefði verið fyrir Frú Ragnheiði hefði hann örugglega ekki lifað þetta af, hann var á síðasta snúning og kærleikurinn og hjálpsemin sem hann fékk frá fólki sem vinnur þessa óeigingjörnu vinnu urðu honum til lífs. 

Þetta magnaða og upplýsandi viðtal við Svavar og Kristínu má sjá og heyra á spil­aranum hér fyrir neðan ásamt að Þvotta­húsið finnst á öllum helstu streymis­veitum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt