Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Skaðabótaréttur flugfarþega – Tjón neytenda getur verið umtalsvert

Mynd / Unsplash.com
Mynd / Unsplash.com

Upp á síðkastið hefur töluvert borið á fréttum sem snúa að seinkunum og aflýsingum á milli­landaflugi. Getur tjón neytandans verið talsvert þar sem slíkar seinkanir geta leitt til tapaðs tengi­flugs eða gistinátta. Borið hefur á því að flug­félögin upplýsi farþega ekki fyllilega um réttindi þeirra. Í kjölfarið hafa lögmenn í auknum mæli boðið fram þjónustu sína við að sækja staðlaðar skaða­bætur. Þóknun þjónustunnar er þá hlutfall skaða­bótanna. Óþarfi er fyrir neytandann að greiða milliliði fyrir slíka þjónustu þar sem ferlið er auðveldara en margir halda og réttur flug­farþegans að jafnaði ótvíræður. Neytenda­samtökin hafa fjallað um málið í Neytenda­fréttum.

Barnaleikur að sækja bætur

Auðvelt er fyrir neytendur að sækja sér bætur að kostnaðar­lausu. Neytenda­samtökin benda á skaðabóta­reiknivél þar sem ítarlegar upplýsingar um hver réttindi flug­farþegans eru þegar flugi seinkar eða er aflýst.

Samgöngu­stofa annast kvartanir flug­farþega og að greiðir úr ágreiningi; vegna tilfærslu yfir á lægra farrými, mikillar seinkunar eða niður­fellingar flugs. Þjónusta Samgöngu­stofu er neytendum að kostnaðar­lausu en fylla þarf út sérstakt eyðublað sem finna má hér.

Evrópska neytenda­aðstoðin (ECC) aðstoðar neytendur búsetta í öðru landi en því sem flug­félagið starfar frá. Er þjónustu Evrópska neytanda­aðstoðarinnar neytendum að kostnaðar­lausu. Allar frekari upplýsingar um reglur skaðabóta má sjá hér.

Neytendasamtökin

Innifalið í ársgjaldi félags­manna Neytenda­samtakanna er aðstoð við að leita réttar síns og annast samtökin milli­göngu ef þörf er á. Árgjald samtak­anna er 6500 kr.

Hér má lesa fréttir samtak­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá