Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Pétur Bjarnason er fallinn frá

Pétur Bjarnason, fyrr­verandi fræðslu­stjóri og vara­þingmaður,er látinn 84 ára að aldri. Morgun­blaðið greindi frá andláti hans.

Pétur fæddist á Bíldudal 12. júní árið 1941.

Pétur lauk lands­prófi frá Héraðs­skólanum í Reykholti árið 1958 og kennara­prófi árið 1964. Að loknu kennara­prófi kenndi hann í Reykjavík í um tvö ár, en flutti síðan aftur vestur á Bíldudal þar sem hann var skóla­stjóri Barna- og unglinga­skólans á árunum 1966–1975, að undan­skildu einu ári.

Á árunum 1977–1983 gegndi Pétur starfi skóla­stjóra Varm­árskóla í Mosfells­sveit. Að því loknu flutti hann vestur, er hann var skipaður fræðslu­stjóri Vestfjarða. Því starfi gegndi hann til ársins 2000. Frá 2000 til 2013 starfaði Pétur sem framkvæmda­stjóri SÍBS.

Pétur var snemma virkur í félags- og stjórn­málum. Hann var vara­þingmaður í mörg ár, fyrst fyrir Framsóknar­flokkinn og síðar Frjáls­lynda flokkinn. Hann hafði mikinn áhuga á leiklist og tók þátt í leik­starfi með Leik­félaginu Baldri á Bíldudal, Leik­félagi Mosfells­sveitar og Litla leik­klúbbnum á Ísafirði.

Pétur var afkasta­mikill rithöfundur og greina­höfundur og skrifaði fjölda greina í blöð og tímarit. Hann ritaði einnig nokkrar bækur.

Pétur lætur eftir sig tvö börn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Minning

Séra Hjalti Þorkelsson er fallinn frá

„Og nú er hann floginn á braut í morgun­birtunni, dáinn, horfinn, harma­fregn“

„Guðjón var með ótrúlega áru og persónu­töfra“

Guðjón Þórðarson er fallinn frá

Borgþór Vestfjörð Kjærnested er fallinn frá