Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Gróðrastöðin Mörk: Heilandi áhrif garðsins

Eigendur gróðrarstöðvarinnar Mörk eru hjónin og garðyrkjufræðingarnir Sigríður Helga Sigurðardóttir og Guðmundur Vernharðsson. Ljósmyndari: Kazuma Takigawa
Eigendur gróðr­ar­stöðv­ar­innar Mörk eru hjónin og garð­yrkju­fræð­ing­arnir Sigríður Helga Sig­urð­ar­dóttir og Guð­mundur Vern­harðs­son. Ljós­mynd­ari: Kazuma Takigawa

55 ár eru liðin síðan Gróðrar­stöðin Mörk var stofnuð og í dag er hún ein helsta uppeldis­stöðin á landinu þegar kemur að garð­plöntum. Gróðrar­stöðin er innst í Foss­vogsdal og þar fást meðal annars garðtré í ýmsum stærðum, skraut­runnar, skógar­plöntur, fjölærar plöntur, sumarblóm og matjurta­plöntur auk tilheyrandi vöru svo sem mold, áburð og ker. Það sem einkennir starfsemina er að starfs­fólk er með mikla reynslu og /eða sérþekkingu og -menntun sem nýtist í starfi og má þar nefna garðyrkju­fræðinga, skrúð­garðyrkju­fræðing, líffræðing og blóma­skreyti.

„Öll hugmynda­fræði gengur út á að sérhæfa sig og sérhæfing okkar felst í að vera fjölhæf með mikið úrval og veita góða þjónustu,“ segir Guðmundur. „Við tryggjum að viðskipta­vinir geti spurt starfs­fólk. Þetta er okkar sérhæfing: Við erum með mannskap sem viðskipta­vinir geta spurt um atriði sem þeir eru ekki vissir um,“ segir Sigríður.

Að njóta

Hjónin leggja áherslu á að garð­eigendur njóti garðsins og upplifi ánægju tengda garðinum og garð­vinnunni sem og tengingu við náttúruna þegar kemur að gróðrinum og plöntunum í garðinum. „Það á að njóta fegurðarinnar í garðinum og nátt­úrunni,“ segir Sigríður. „Það á ekki að tengja garðinn við puð eða skyldu­verk.“

Guðmundur nefnir hugleiðslu. „Það getur verið eins og hugleiðsla að reita arfa og huga að garðinum sínum. Það er margbúið að sýna fram á að það að vera innan um gróður og úti í nátt­úrunni hefur heilandi áhrif. Það er mjög róandi en ég endurtek það sem Sigríður sagði: Það má ekki fara út í garðinn með því hugarfari að þetta sé eins og að fara að skúra gólf og að það verði að drífa þetta áfram og klára þegar er verið að fara að vinna í garðinum. Það verður að fara út í garð til þess að vera. Og sleppa öllu öðru.“ Sigríður heldur áfram. „Það þarf að vinna við að koma garðinum í stand; planta þegar er verið að vinna í nýjum garði en það verður líka að njóta þess. Við leggjum áherslu á að njóta þess að vera í garðinum. Upplifa hann. Sitja þar og hugleiða eða sitja þar og gera ekki neitt og bara vera. Ég held að okkur vanti það svolítið í lífið.“

Sigríður talar um hljóðin í garðinum svo sem fugla­sönginn ef tré eru í garðinum þar sem fuglar geta sest. „Það brakar í laufi frá í fyrra.“ Hún talar líka um fegurðina í mismun­andi litum í garðinum hvort sem um er að ræða berar greinar eða liti blómanna. „Svo sést kannski ánamaðkur. Eitthvað líf. Það fylgir þessu líf.“

Guðmundur segir að megin­áherslan sé að færa viðskipta­vinunum þetta sem þau hafa verið að tala um: Ánægju af gróðri. „Stuðla að því að það gangi vel sem hann tekur sér fyrir hendur og ætlar sér að fá með þessum gróðri og plöntum sem við erum með.“

Blómstra á ólíkum tíma

Garðtré í ýmsum stærðum, skraut­runnar, skógar­plöntur, fjölærar plöntur, sumarblóm og matjurta­plöntur eru á meðal þess sem fæst í Gróðrar­stöðinni Mörk eins og þegar hefur komið fram. Hvað er best að hafa í huga við val á plöntum?

„Samsetningin í garðinum gengur út á eitthvað sem dregur að sér athygli á hverjum árstíma,“ segir Guðmundur og nefnir rósakirsi í maí en þá blómstrar það tré og vekja bleik blómin almennt mikla hrifningu. „Einhverjar tegundir sem draga að sér athygli á hverjum tíma. Við bendum viðskipta­vinum okkar yfirleitt á að velja saman tegundir sem blómstra á ólíkum tíma því það eru ekki margar tegundir sem standa í blóma allt sumarið. Við leggjum áherslu á að bjóða alla tegundar­flokkanna: Sumarblóm sem blómstra, runna sem blómstra á ákveðnum tímum og fjölærar plöntur sem visna yfir veturinn og koma svo aftur upp yfir sumarið og eru blóm­strandi á mismun­andi tímum. Svo er það eitthvað sígrænt en við leggjum einnig áherslu á að fólk hafi eitthvað sígrænt í garðinum sem það sér á veturna. Svo erum við að þjónusta þá sem vilja stór tré strax svo sem birki, reyni og elri/öl. Þá þjónustum við sumar­bústaða­eigendur og bjóðum upp á úrval af skógar­plöntum. Fjöl­breyti­leikinn er styrkurinn.“

Allsherjarbreyting

Aftur að rósakirsinu en það er í tísku; það er nefnilega ýmislegt í tísku á hverjum tíma þegar kemur að garðinum. Guðmundur nefnir svo hortensíu sem kemur sterkt inn í sumarblóma­flóruna. „Sumir vilja fá eitthvað harðgert og stabílt sem er öruggt en stór hluti viðskipta­vina vill fá einhverja fjöl­breytni og prófa eitthvað nýtt jafnvel þó það sé ekki öruggt. Það kemur hingað fólk sem spyr hvað sé nýtt í ár og þá er maður kannski að flytja eitthvað nýtt inn sem maður sjálfur hefur ekki reynslu af heldur. En fólk er tilbúið að prófa.“ Það eru þó ákveðin blóm sem þola kulda og jafnvel að vera í frosti í einhvern tíma en það  eru til dæmis stjúpur, fjólur og silfur­kambur.

„Það er ein allsherjar­breyting sem er að eiga sér stað en það er flatar­málið í görðunum sem er að verða minna í nýrri görðum og svo kjósa margir að hellu­leggja eða leggja pall á stóran hluta garðsins og ræktunar­menningin færist æ meira yfir í potta. Það er stóra breytingin. Meira að segja limgerði eru frekar á undan­haldi og koma skjól­veggir, timbur­veggir, í stað þess. Þessi þróun er ekki beint umhverfisvæn; steypan losar heilmikið kolefni en það er hins vegar mikil kolefnis­binding þegar kemur að gróðri. Þessi heilandi áhrif verða minni ef ekki er nein grasflöt og kannski bara pínulítið ker með bletti af grænu laufi á móti þessu mikla flatar­máli af veggjum, steypu og pöllum. Það er allsherjar­hreyfing sem er að eiga sér þarna stað. Auðvitað vill fólk fá viðhalds­lítinn garð en menn eru að reka sig á að það þarf viðhald á pallinn og grind­verkið alveg eins og gróðurinn.“

Vökva tvisvar í viku

Sigríður bendir á að það þrífist ekkert nema að jarðvegur sé góður hvort sem planta er í garði eða keri. „Ef á að planta plöntu þá þarf að passa upp á að dýptin á jarð­veginum sé viss margir sentí­metrar eftir tegundum og það þarf að setja næringu í botninn á holunni sem getur verið hrossa­skítur, sauðatað, hænsna­skítur, lífrænn sveppa­massi eða jafnvel garðmjöl. Og moldarlag yfir það. Síðan þarf að passa upp á að jarð­vegurinn eða kerið/potturinn sé loftríkur; það þarf að stinga þetta upp til að jarð­vegurinn sé loft­kenndur til að hjálpa plöntunum við að rótfesta sig í jörðu eða kerum/pottum.“

Sigríður bendir einnig á á að vökva þarf sumarblóm með áburðar­vatni einu sinni til tvisvar í viku allt sumarið til að þau séu falleg og að hægt sé að njóta þeirrar gleði sem litirnir gefa. „Ég segi oft að þetta séu eins og ungabörn: Eftir því sem jarðvegur er betri og betra undirlag þegar þetta er sett niður þeim mun meiri uppskeru fær fólk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá