Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Egill Sæbjörnsson er ekki algjörlega áreiðanlegur: „Hjalið er svona anti-cancel culture“

Egill Sæbjörnsson
Egill Sæbjörns­son Mynd: Aðsend

Nýjasti gestur bræðranna Gunnars og Davíðs Wiium í Þvotta­húsinu er enginn annar en lista­maðurinn Egill Sæbjörnsson. Egill kom áður til bræðranna fyrir rúmu ári síðan í þátt nr. 34. Þar fóru þeir í söguna hans Egils sem leiddi hann að hinni kjöthráu rafrokks plötu Tonk of the lawn sem kom út um síðustu aldarmót. Platan Tonk of the Lawn er án efa ein af mestu költ plötum Íslands. Hljómurinn kom hrár eins og ljóns­öskur eftir margra ára bælingu og fjötrun. Þessi einlæga plata er án efa ein sú frumlegasta og sjálf­bærasta sem komið hefur út í manna minnum hér á landi.

Í þessum þætti hins vegar var farið örlítið öðruvísi að viðmælandanum en gengur og gerist hjá bræðrunum í Þvotta­húsinu. Handrit þáttarins byggði Gunnar út frá texta lagsins „Im not 100% reliable“ sem er lag nr. 4 á plötunni Tonk of the Lawn. En út frá textanum náðu þeir svo að spinna hálf samhengis­laust klukku­stundar langt spjall um heima og geima.

Af barnum og beint í tölvuna

Þó svo að þetta klukku­stundar langa samtal hafi verið hálf samhengis­laust snérist þemað þó fljótt að þessum ólíku elementum sem býr innra með okkur öllum og mynda þennan stöðuga núning milli leiks og sköpunar, og form­fastri hugmyndar­fræði hins vegar. Þessi formun og uppskrift sem snúa að reglum, lögum og venjum er okkur gert að fylgja í samfélaginu.

Egill minntist þess hvernig hann sem ungur maður skrifaði og söng þennan texta út frá einskonar óljósri golu innsæis sem hann hafði enga hugmynd um að væri sterk kort­lagning á ferli hans sjálfs sem snéri að andlegum þroska sem og félags­legum. Djúpt innsæi hans fer með hlustandann á ferðalag þar sem alteregóið hans, Móri stígur stöðugan dans við niður­njörvað sjálfið. Móri er stríðinn og kvikur, hreyfir sig eftir tilfinningu og klárlega er ljósið sem gefur lífinu tilgang í þyngslum efnishyggjunar. „Ég held ég muni eftir því þegar ég samdi þetta lag. Ég bjó í Berlín, þetta hefur verið snemma árs 1999 og ég er að koma heim af einhverjum bar. Og þá er þessi setning einhvern veginn í hausnum á mér. Og ég geng inn um útidyrnar og upp á þriðju hæð og sest við tölvuna og byrja að taka upp þetta lag,“ sagði Egill og var að tala um setninguna „I always take responsibility“ sem kemur fyrir í laginu „Im not 100% reliable“. Hann hélt áfram: „Það er bara einhver leikgleði í þessu. Ef við erum bara krakkar að leika okkur þá erum við ekki 100% reliable. Þá þurfum við ekki að segja það sem er rétt. Ég held að þetta hafi bara verið til að fá léttleikann í lífið.“

Slaufunarmenningin

Mikið var rætt um slaufunarmenningu eða cancel culture sem stöðnun, ofbeldi og klár brot á náttúrulegri hreyfingu og þroska mannsins. Egill vill meina að með hjalinu, samræðunum sem svo oft er svo útilokað með cancel náum við mennirnir að vaxa og þroskast í gegnum samskipti þar sem við upplifum að við njótum öryggis og kærleiks. „Hjalið er svona anti-cancel culture. En svo er þetta svo bloody hættulegt því þið munuð svo senda þetta út á netinu og þá kemur eitthvað lið og fer að hakka í því sem maður er að segja,“ sagði Egill og var að tala um svona hjal á milli fólks eins og Wiium bræðra og hans, bara frjálst spjall um allt ekkert. Aðspurður hvort honum sé ekki alveg sama um viðbrögðin sagði Egill: „Jú en þetta getur líka haft afleiðingar, það er það sem er orðið svo erfitt.“ Sagði hann frá vinkonu sinni sem hefði nýverið skrifað á Instagram að þegar hún lærði heims­speki í Þýska­landi fyrir 20 árum síðan hafi heims­spekin verið grund­völlur til að prófa sig áfram, ræða allskonar hluti, hvort sem það var „rétt“ eða „rangt“, í gegnum orðræðuna. „En í dag hefur vinkona mín það á tilfinningunni að meira að segja innan heims­spekinnar þori maður ekki lengur að tjá sig frjálst.“

Egill segir slaufunarmenninguna vera tímabil: „Cancel culture er ákveðinn samdráttur, það er margt gott sem það leiðir af sér en ég held að of mikil ritstýring sé svolítill Nasismi.“

Lagið “Im not 100% reliable” fer með hlustandann í ferðalag sem endar á uppljómum mannsins. Uppljómun sem snýr að tengslum innri manns við hið óskilyrta sem klárlega býr innra með okkur. Þessi samruni fær okkur til að taka af okkur skóna og sleppa af okkur beislinu í bland við alvarleikann sem annars einkennir einstaklinga innan samfélags sem einkennist af hraða og bugun.

Þetta listræna og djúpa manneskju­spjall má sjá í heild sinni hér á spil­aranum fyrir neðan auk þess að Þvotta­húsið má finna á öllum helstu streymis­veitum á jörðinni, Spotify svo eitthvað sé nefnt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt