Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Dagur B. Eggertsson gefur loðin svör: „Aldrei sett einhverja úrslitakosti og aldrei útilokað neitt“

Dagur B. Eggertsson.
Dagur B. Egg­erts­son.

Borgar­stjóri Reykja­víkur, Dagur B. Eggertsson, segir að hann útiloki ekki að hann muni gefa eftir sjálfan borgar­stjóra­stólinn í yfir­vofandi meirihluta­viðræðum flokksins við Pírata, Viðreisn og Framsóknar­flokkinn:

„Ég er mjög ánægður og held að þessi staða eftir kosningar hafi kallað á það að hún fengi að kristallast og fólk fengi að spreyta sig á að mynda mismun­andi meirihluta í þreifingum. Ég held að það sé afdráttar­laust eftir þessa viku að þessi meirihluti getur orðið sterkur, framsýnn og góður fyrir Reykjavík. Það er verkefnið eftir kosningar að ná að mynda meirihluta sem er góður fyrir þróun borgarinnar.“ sagði Dagur að loknum blaðamanna­fundi þar sem greint var frá meirihluta­viðræðum áður­nefndra flokka:

„Í mínum huga erum við hér í dag einmitt vegna þess að það er býsna mikil málefnaleg samleið með þessum flokkum. Það eru auðvitað atriði sem skera sig úr og við munum meðal annars þurfa að fara yfir þau. En ég held að það sé ekkert óyfirstíganlegt í þeim og er bjartsýnn á fram­haldið.“

Og um borgar­stjóra­stólinn eftir­sótta sagði Dagur:

„Ég held að fólk hafi tekið eftir því að ég hef aldrei, hvorki núna né í fyrri viðræðum, sett einhverja úrslita­kosti. Ég held að það sé nú lykillinn að góðu samstarfi að nálgast það af ákveðinni festu en líka sanngirni. Það var auðvitað ekki kosið um einstök embætti. Við vitum að 35% Reyk­víkinga vildu mig áfram en það skiptir ekki heldur öllu máli í dag, heldur að þessi hópur nái saman um verka­skiptingu sem að verði farsæl út kjör­tímabilið,“ og að „ég hef aldrei útilokað neitt í því.

En við ætlum að byrja á því að ræða málefnin og svo ræðum við verka­skiptingu og sjáum hver niður­staðan verður úr þeim samtölum.“

Aðspurður hvort til greina kæmi að skipta embætti borgar­stjóra upp sagði Dagur:

„Slíkar hugmyndir verða að bíða betri tíma. Við byrjum á málefnunum, svo kemur hitt inn. Ég held að það sé mjög farsælt að hafa þá röð á hlutunum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá