Það voru sveiflur í skemmtanahaldinu um helgina – en það kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem send var út áðan:
„Eftir rólega föstudagsnótt varð fjandinn laus þessa nóttina.“ en alls voru um hundrað mál skráð hjá lögreglunni frá klukkan 17 í gær og fram til klukkan 5 í morgun; alls gistu 10 manns fangaklefa eftir nóttina.
Þá kemur fram að maður var tekinn höndum í Grafarvogi vegna líkamsárásar; hann réðst á nágranna sinn og var vistaður í steininum.
Einnig var stöðvuð framleiðsla fíkniefna í Breiðholti; einn einstaklingur handtekinn en sleppt eftir að hafa gefið skýrslu.
Breiðholtið kemur áfram við sögu í frægustu dagbók Íslandssögunnar: Annar maður var einnig handtekinn í Breiðholti vegna hótana og eignaspjalla, sem og vörslu fíkniefna; maðurinn var vistaður í fangaklefa.
Talsverðar skemmdir urðu vegna eldsvoða, eins og fram kemur í tilkynningu frá lögreglu; en eldur kviknaði í fyrirtæki í Laugardal og hlutust af því talsvert miklar skemmdir.
Maður og kona voru handtekin í Kópavogi vegna líkamsárásar og eignaspjalla; bæði fengu gistingu í fangaklefum.
Í dagbókinni segir frá að manni verið vísað út af veitingastað í Kópavogi – eftir að hafa verið til vandræða innandyra. Einnig var maður í annarlegu ástandi til vandræða og handtekinn fyrir utan skemmtistað í Hafnarfirði og var hann fluttur á lögreglustöð þar sem farið var yfir málið; og í framhaldi var honum sleppt.
Þá þurfti lögreglan að hafa afskipti af manni í annarlegu ástandi sem hafi dottið á höfuðið á rafmagnshlaupahjóli í Garðabæ. Var hann fluttur á slysadeild með sjúkrabíl til aðhlynningar.
Einn aðili var handtekinn eftir að hafa verið til mikilla vandræða í miðbænum, og að sögn lögreglu neitaði maðurinn að segja til nafns nafns og reyndi að sparka í lögreglu og hafði í hótunum við hana. Hlaut hann að launum gistingu í fangaklefa.
Kemur fram að lögregla tók mann höndum í Garðabæ vegna ölvunaraksturs, og umferðaróhapps, og var maðurinn vistaður í fangaklefa.
Þá var annar ökumaður líka handtekinn og vistaður í fangaklefa; eftir að hafa reynt að flýja af vettvangi þegar lögreglan stöðvaði hann grunaðan fyrir akstur undir áhrifum áfengis og annarra fíkniefna.
Afskipti voru höfð af 5 unglingum sem voru að reykja gras; málið var afgreitt með foreldrum og barnavernd.
Og þessa átakamiklu nótt kom lögreglan nokkrum meðborgurum til hjálpar þar sem þeir voru í svo annarlegu ástandi að þeir voru ósjálfbjarga.
En alls voru níu ökumenn stöðvaðir fyrir akstur undir áhrifum áfengis og annarra fíkniefna.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir