Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Kynferðislegur kraftur, jafnvel ofsi, sem enginn hefur í raun komist í hálfkvisti við

Davíð Stef­ánsson frá Fagraskógi í Eyjafirði er eitt af þjóð­skáldum Íslendinga. Þótt hann hafi ekki verið tónlistar­maður kemur hann á ýmsan hátt við íslenska tónlistar­sögu. Hann samdi fjöldann allan af ljóðum sem lög hafa verið samin við, upplestur hans á eigin verkum komu út á hljóm­plötum á síðustu öld, auk þess sem leikrit hans, Gullna hliðið var gefið út á plötum.

Davíð fæddist 21. janúar árið 1895 og lést á þessum degi 1. mars 1964.

Kynferðislegar fantasíur að skemmta sér við

Haustið 1919 komu Svartar fjaðrir út og hlaut bókin lofsam­lega dóma og Davíð miklar vinsældir. Mikið var skrifað um bókina í kjölfarið, en skrifin sýna glögglega hvað orðræðan hefur breyst með tímanum. Í grein eftir Guðmund Andra Thorsson, rithöfund, sem birtist í Lesbók Morgun­blaðsins 17. apríl 2004 segir eftir­farandi um Svartar fjaðrir:

„Svartar fjaðrir eftir Davíð sló í gegn þegar hún kom út árið 1919. Hún þótti ekki síst höfða til ungra og eigna­lítilla kvenna og var kölluð vinnukonubók í niðrunar­skyni, enda þótti mennta­mönnum þá engir lesendur fráleitari en vinnu­konur. Sagt hefur verið að Davíð hafi gefið þessum ungu konum ljóð sem túlkuðu drauma þeirra og þrár, kannski það, ég er samt ekki alveg viss: hann höfðaði til þeirra kynferðis­lega, skapaði handa þeim kynferðislegar fantasíur að skemmta sér við.

Í ljóðum hans í þessari bók er kynferðis­legur kraftur, jafnvel ofsi, sem enginn hefur í raun komist í hálf­kvisti við. Davíð er með öðrum orðum umfram allt sexí skáld og eftir öðru að Íslendingar vissu ekki almennilega hvað þeir áttu að gera við slíkan mann eftir að hann náði hylli þjóðarinnar: reynt var að finna honum verkefni í þjóð­hagslegum tækifæris­kveðskap uns svo var farin að dofna títan á skáld­gáfunni að hann fórnaði höndum og æpti upp: Brenni þið vitar!“

Má í þessu sambandi láta fylgja ljóðið Biðlarnir úr Svörtum fjöðrum:

Biðlarn­ir

Ung­frú­in greiddi sér ekki þann dag
og aldrei í speg­il­inn leit,
sem fyrsti biðill­inn barði að dyr­um
og bað hana um ástar­heit.
Einn …
Ögn betra en ekki neinn.

Ung­frú­in greiddi hár sitt til hálfs
og horn­augu spegl­in­um gaf,
brosti og söng í hálf­um hljóðum
og hitnaði löng­un af.
Einn … tveir …
Og mikið vill meir.

Ung­frú­in greiðir sér oft á dag
og ilm­vatn í hár sér ber,
horf­ir í speg­il­inn hlæj­andi,
hopp­ar og tel­ur á fingr­um sér: –
Einn … tveir … þrír …
og bráðum bæt­ist við nýr.

Gullna hliðið

Davíð Stef­áns­son og móðir hans, Ragn­heiður Dav­íðs­dóttir.

Davíð lauk gagnfræði­prófi frá Akureyri og bjó þar til um tvítugt er hann fór til ársdvalar til Kaupmanna­hafnar áður en hann settist á skólabók við Mennta­skólann í Reykjavík og lauk þaðan stúdents­prófi 1919, sama ár og fyrst og frægasta ljóðabók hans, Svartar fjaðrir, kom út. Davíð bjó mestan part ævi sinnar á Akureyri, starfaði við Amtbókasafnið þar í bæ en dvaldist einnig nokkrum sinnum á erlendum grundum.

Um tugur ljóðabóka liggur eftir skáldið, auk leikrita og skáldsögu en mörg ljóða hans er vel þekkt, þeirra á meðan eru Konan sem kyndir ofninn minn, Sálin hans Jóns míns, Kvæðið um fuglana (Snert hörpu mína), Bréfið hennar Stínu, Abba-labba-lá og Til eru fræ.

Fjölmargar plötur hafa komið út sem hafa að geyma ljóð Davíðs. Fjórar plötur komu út á vegum Fálkans 1958 með upplestri hans á eigin verkum, tvær þeirra voru litlar 45 snúninga plötur (7“), ein 78 snúninga (10“) og ein breið­skífa. Fálkinn gaf einnig út „split-plötu“ með upplestri Davíð og Halldórs Laxness árið 1964 undir yfir­skriftinni Tveir þjóð­skörungar íslenzkra bókmennta, og tveim árum síðar var Gullna hliðið gefið út í veglegum plötu­kassa, á þremur plötum.

Fleiri listamenn hafa notað ljóð Davíðs og gert við þau stök lög sem er að finna á mörgum plötum, en margir hafa einnig leitað fanga á annan hátt í smiðju Davíðs, til dæmis eru nöfn hljóm­sveitanna Sálarinnar hans Jóns míns og Möðru­valla­munkanna beinar skírskotanir í verk hans. Það sama má segja um titil á plötu Sálarinnar, Gullna hliðið. Það má því með sanni segja að áhrifa hans gæti víða.

Kvæðið um Fuglana er fallegasta ljóð skáldsins að mati blaða­manns:

Snert hörpu mína, himin­borna dís,
svo hlusti englar guðs í Paradís.
Við götu mína fann ég fjalar­stúf
og festi á hann streng og rauðan skúf.

Úr furutré, sem fann ég út við sjó
ég fugla skar og líka’ úr smiðjumó.
Í huganum til himins oft ég svíf
og hlýt að geta sungið í þá líf.

Þeir geta sumir synt á læk og tjörn,
og sumir verða alltaf lítil börn.
En sólin gyllir sund og bláan fjörð
og sameinar með töfrum loft og jörð.

Ég heyri’ í fjarska villtan vængjaþyt.
Um varpann leikur draumsins perluglit.
Snert hörpu mína himin­borna dís,
og hlustið, englar guðs í Paradís.

Ljóða­bækur:

  • Svartar fjaðrir, 1919
  • Kvæði, 1922
  • Kveðjur, 1924
  • Ný kvæði, 1929
  • Í byggðum, 1933
  • Að norðan, 1936
  • Ný kvæðabók, 1947
  • Ljóð frá liðnu sumri, 1956
  • Í dögun, 1960
  • Síðustu ljóð, 1966 (kom út að Davíð látnum)

Leikrit og skáldsögur:

  • Munkarnir á Möðru­völlum, 1926
  • Gullna hliðið, 1941. Leikritið er unnið upp úr þjóð­sögunni „Sálin hans Jóns míns“. Kvæði hans, Sálin hans Jóns míns, sem kom út 1933 var þegar alþekkt.
  • Sólon Íslandus I-II, 1941 (Skáldsaga um Sölva Helgason).
  • Vopn guðanna, 1944
  • Landið gleymda, (frumsýnt árið 1953 en gefið út 1956).
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá