Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Pútín sagður líta út fyrir að vera hræddur og veikburða á sigurhátíðinni í Moskvu

„Viðskipta­þvinganirnar virtust loksins hafa náð til botox-fyllinga Pútíns“

Vladimir Pútín
Vladimir Pútín Rúss­lands­for­seti þótt þreytu­legur á hátíð­inni Mynd: MAXIM SHIPENKOV / POOL / AFP

Vladimir Putin hefur sætt miklu háði eftir framkomu sína á sigur­deginum í Moscow þar sem gagn­rýnendur segja hann hafa litið út fyrir að vera þrekaðan, veikburða og hræddan.

Heilsufar rússneska leið­togans hefur lengi verið tilefni vanga­veltna og nú segja andstæðingar hans að útlit hans á hátíðinni hafi ýtt enn frekar undir þær sögu­sagnir.

Harðstjórinn er sagður dauð­hræddur við valdarán eða morð­tilræði af hálfu Úkraínu og var kallaður „mjög hræddur, aldraður einræðis­herra“ af rússneska stjórnar­andstæðingnum Mikhail Khodorkovsky eftir að hann kom fram á sigur­deginum í Moskvu.

Úkraínski álits­gjafinn Anton Gerashchenko birti einnig mynd af Pútín þar sem bólgnar kinnar hans vöktu athygli. Hann skrifaði háðslega að „viðskipta­þvinganirnar virtust loksins hafa náð til botox-fyllinga Pútíns“.

Athygli vakti að hergögn voru ekki sýnd í skrúð­göngunni í fyrsta sinn í nærri tvo áratugi. Sumir túlkuðu það sem tákn um minnkandi styrk stjórn­valda í Kreml.

Andstæðingur Pútíns, Leonid Nevzlin sagði hina smækkuðu hátíð sýna að völd Pútíns væru að veikjast.

„Framtíð stjórn­kerfisins snýst nú um heilsu eins gamals manns,“ sagði Nevzlin og bætti við að ekki væri lengur rætt um kosningar eða pólitíska stefnu heldur útlit handa hans og heilsufar.

Gagn­rýnendur bentu einnig á að öryggis­gæsla í kringum Pútín hefði aldrei verið jafn umfangs­mikil og nú. Nevzlin sagði forsetann annaðhvort vera mjög hræddan eða að honum væri markvisst haldið í stöðugum ótta.

Á sama tíma hafa borist fréttir af miklu mannfalli rússneska hersins í stríðinu í Úkraínu. Samkvæmt nýjum tölum hafa 7.480 rússneskir hermenn, fallið, særst eða verið hand­teknir, fyrstu vikuna í maí einum saman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Mette Frederiksen segir gagnrýni á orðaval sitt ekki lýsa afstöðu sinni. Ummæli hennar í stjórnmálahlaðvarpi hafa vakið umræðu í Danmörku.

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár