Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Höfuð ljóðskáldsins fundið – Íbúi segist hafa fundið það í runna

Hinn fagri Hallormsstaðaskógur.
Hinn fagri Hall­orms­staða­skógur. Mynd: East.is

Hið horfna höfuð ljóð­skáldsins Þorsteins Valdimars­sonar, sem hvarf af brjóst­mynd sinni í Hall­orms­staðarskógi í sumar, er fundið og aftur komið í hendur Skóg­ræktarinnar. Fannst höfuðið fyrir einskæra tilviljun í heimahúsi á Egils­stöðum.

Í frétt Skóg­ræktarinnar segir að lögreglan hafi verið að sinna öðru verkefni í heimahúsi á Egils­stöðum er þeir tóku eftir höfðinu. Sagðist íbúi í húsinu hafa fundið það í runna.

Höfuðið fundið.

Fram kemur í frétt Austur­fréttar að höfuðið hafi um árabil verið á stuðlabergs­stöpli í Trjá­safninu á Hall­ormsstað á stað sem kallast Svefnósar. Bjó Þorsteinn þar gjarnan í tjaldi þau sumur sem hann vann í skóginum. Það var svo um miðjan ágúst sem skáldið missti höfuðið, ef svo má að orði komast. Fannst það ekki aftur fyrr en nú, þrátt fyrir ítarlega leit.

Fram kemur hjá Skóg­ræktinni að lögreglan muni ekki aðhafast frekar í málinu sem Skóg­ræktin kæri. Segir þar að mestu máli skipti að höfuðið er fundið og sé komið á öruggan stað. Næsta skref sé svo að finna leið til að koma höfðinu aftur á sinn stall, skógar­gestum til yndisauka og til minningar um Þorstein, eins og það er orðað hjá Austur­frétt.

Ljóðið Örn eftir Þorstein Valdimarsson:

Þar sem ég er, þar er ég,

svo einfalt er það.

Og þegar ég fer, þá fer ég

og þá fyrst, í annan stað.

Hand­genginn engum áttum,

af öllum frjáls,

næ ég hvarvetna háttum

mín sjálfs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp