Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Reyna að taka á óþekktarormum í strætó: „Ætla að koma skilaboðum til kennara og foreldra“

Egilsstaðir eru í Múlaþingi – Myndin tengist fréttinni ekki beint
Egils­staðir eru í Múla­þingi – Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint Mynd: Austurland.is

„Það er búið að funda með fólki hjá Múlaþingi sem taka þetta alvarlega og ætla að koma skila­boðum til kennara og foreldra,“ segir Hlynur Bragason, eigandi rútu­fyrir­tækisins Sæta í samtali við Austur­frétt. Sæti gerir meðal annars út strætis­vagninn á milli Egils­staða og Fella­bæjar.

Samkvæmt Austur­frétt vöktu skrif Hlyns á Facebook-hópnum Íbúar Fljótsdals­héraðs athygli í síðustu viku en þar óskaði hann eftir liðsinni foreldra og forráða­manna vegna lélegs umgengnis um borð í strætis­vagninum. Þá sagði hann að hegðun tiltekinna aðila og hópa væri á engan hátt sæmandi og að illa sé komið fram við erlendan bílstjóra vagnsins sem hafi í kjölfarið íhugað að láta af störfum. Nefnir hann sérstak­lega ungmenni sem hangi í slánum og stundi það jafnvel að hlaupa á eftir vagninum þegar hann er á ferð.

Segir Hlynur að eftir að hann skrifaði færsluna í síðustu viku hafi ástandið skánað mikið og greinilegt að einhverjir hafi séð að sér. Hann fór þó á fund hjá fræðslu­fulltrúum Múlaþings á föstu­daginn síðastliðinn þar sem hann kynnti þeim stöðuna. Þar á bæ ætluðu menn að láta foreldra vita og biðja þá að taka á þessu.

Hlynur segir að því miður sé þetta vandamál sem ítrekað kemur upp og sé þess valdandi að erfitt sé að fá gott og hæft fólk til starfa hjá fyrir­tækinu. Biðlar hann til ungmennanna, og þá foreldra þeirra sérstak­lega, að hlýða reglum í strætis­vagninum því það sé alveg ljóst að slys getur orðið ef bílstjóri þyrfti fyrirvara­laust að bregðast við utan­aðkomandi aðstæðum. Það gæti engað með ósköpum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp