Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Matjurtagarðurinn: „Skora á sjálfa mig og garðinn þannig að hann fæði mig og son minn“

Skjaldfléttan er snilld, bæði falleg, hjálpleg og bragðgóð. Hún ver tómataplöntur fyrir óværu, blöðin eru sterk á bragðið en blómin sætari.Bændablaðsins
Skjald­fléttan er snilld, bæði fal­leg, hjálp­leg og bragð­góð. Hún ver tómata­plöntur fyrir óværu, blöðin eru sterk á bragðið en blómin sæt­ari.Bænda­blaðs­ins

Guðrún Hulda Páls­dóttir, verðandi ritstjóri Bænda­blaðsins, segist hafa alist upp við að foreldrar hennar hafi unað umhverfinu og nátt­úrunni. Fallegur garður var við æsku­heimilið sem foreldrar hennar ræktuðu frá grunni og segir hún að faðir hennar hafi til dæmis unnið moltu úr öllum matar­afgöngum og hafi verið mjög natinn við að halda garðinum snyrti­legum og plöntum vel nærðum.

„Matjurta­áhuga minn má rekja til þess að þegar ég bjó á Indlandi árið 2010 og komst þar í kynni við sjálfs­þurftar­búskap í sinni tærustu mynd. Mér fannst svo aðdáunar­vert að sjá bæði börn og fullorðna kunna til verka við ræktun á fjöl­breyttum mat og þau vissu enn fremur hvernig hægt væri að nýta allar jurtir sem uxu í grenndinni á einn eða annan hátt. Þetta tók ég mér til fyrir­myndar.

Ég komst svo í kynni við vistrækt þegar ég flutti heim og fannst það afar heillandi nálgun að matjurta­ræktun. Einn vængur vist­ræktar – permaculture – snýr að því að skapa sjálfbært vistkerfi í nærumhverfi þar sem fjölærar ætiplöntur, náttúran, menn og dýr lifa þannig samlífi að þau vaxi og dafni. Ég fór til Írlands og viðaði að mér kunnáttu um fræðin og hef lagt upp með að garðurinn minn sé byggður á vist­ræktar­aðferðum að því marki sem raunhæft er hér á landi.“

Séð yfir hluta garðs­ins. Guðrún Hulda reisti gróð­ur­húsið í fyrra­vor.

Stór garður er við heimili Guðrúnar Huldu og segist hún rækta hann upp sem svolítið kaótískan ætigarð. „Ég er með ræktunar­svæði hist og her um garðinn svo sem kartöflu­garða, gróður­kassa og hraukbeð og síðasta vor bætti ég svo 24 fermetra gróður­húsi sem eykur mjög á fjöl­breytni afurðanna.“

Garðrækt er langtíma­verkefni. „Ég dunda við svæðið mitt í hjáverkum og skora á sjálfa mig og garðinn, þannig að hann fæði mig og son minn að einhverju marki ár hvert.

Inkakorn (quinoa) er korn­teg­und sem ég tel eiga fram­tíð fyrir sér bæði í heima­görðum og fram­leiðslu­ræktun hér á landi. Hún er gull­fal­leg og skemmti­leg planta.

Ég hef alltaf haft lítil markmið á hverju sumri,“ segir Guðrún Hulda en fimmta sumarið í húsinu er fram undan. „Fyrsta sumarið vildi ég athuga hvort ég gæti fengið mér máltíð úr garðinum á hverjum degi í eina viku, sem tókst og rúmlega það. Næstu árin jók ég lengd áskorunarinnar og nú er svo komið að garðurinn er uppistaða kvöld­verðar meirihluta sumars og fram á kvöld. Það felur í sér alla jafna alls konar salat og kál, tómata, krydd­jurtir, lauka, ýmis ber, baunir, beðjur og blómkál, rabarbara, einstaka epli, jafnvel inkakorn, rótar­grænmeti af ýmsu tagi og æt blóm svo eitthvað sé nefnt. Þessi iðja er mér mjög mikilvæg, hún fyllir hjartað ró í amstri dagsins og veitir mér mikla gleði.“

Gómsætt salat í öllum stærðum, litum og gerðum. Þetta kaupi ég for­ræktað af Tómasi Ponzi.

Guðrún Hulda segir að takmarkið sé að flestallar plöntur garðsins verði ætar. „Með því get ég mér til skemmtunar lagt grunn að ákveðnu fæðu­öryggi á heimilinu yfir hásumarið, að minnsta kosti hvað varðar ferskt, gott grænmeti, auk þess sem ég vil búa syni mínum nærandi umhverfi. Það eru nefnilega tveir mjög patent punktar sem þessu fylgja: Drengurinn minn er matvandur með eindæmum, en tekur það upp hjá sjálfum sér að borða mun meira af alls konar ferskmeti á sumrin því hann getur tínt það úr garðinum eftir lyst og löngun. Fyrir mig fylgir þessu afskaplega heilnæm rútína þegar garðurinn er í blóma. Þá borða ég stærstu máltíðina mína í hádeginu en fæ mér ferska salatskál á kvöldin.“

Kart­öflur eru auð­veldar í ræktun.

Guðrún Hulda segir að fjölæringarnir sem vaxi í garðinum ár eftir ár séu meðal annars rabarbari, gras­laukur, hjálm­laukur, mynta, jarðarber, sólber, hindber, rifsber og stór amerísk bláber. Epli og kirsuber séu stopulli en hún sé enn að læra á ávaxtatré. „Þá vex í garðinum sjálfssáð síberískt grænkál eins og illgresi og á það til að vera að framleiða ný blöð fram yfir jól í djúpum snjó. Af einæringum í sumar verð ég með alls konar gómsætt lífrænt salat og Heirloom-tómata sem ég keypti forræktaða af Tomasi Ponzi. Ég sáði fyrir alls konar plöntum og sýnist að eggaldin og rómaneskó-blómkál ætli að vera nýjustu viðbæturnar, báðar gull­fallegar plöntur sem ég hlakka til að fylgjast með vaxa. Auk þess verð ég meðal annars með rauðrófur, kartöflur, gulrætur, hvítlauk, skjald­fléttu og kúrbít.“

Eplatré.

Í huga Guðrúnar Huldu snýst matjurta­ræktun í heima­garði um lífsgæðin sem iðjan skilar. „Ætli maður að stefna að einhvers konar undir­stöðu fæðu­framleiðslu fyrir sig og sína í heima­garðinum þá held ég að það verði að vera á kostnað vinnu utan heimilis. Það tekur tíma að sinna mörgum plöntum og búa um uppskeruna þannig að hún geymist fram á vetur. En á Íslandi eru æðislegir bændur sem framleiða heilnæmar og bragð­góðar afurðir svo ræktunin heima snýst fyrst og fremst um gleðina hjá mér. Ég geri mér grein fyrir hversu óraunhæft það er fyrir mig að treysta á ræktunina mína þótt hún sé vissulega bragarbót þegar vel gengur. Máltíðirnar sem ég uppsker eru í raun bara skemmtileg auka unun ofan á dundið sem gefur mér svo mikið.“

Þótt þetta sé úti­planta þá leið hnúð­kál­inu rosa­lega vel inni í gróð­ur­hús­inu í fyrra.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá