Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Fannst stungin til bana á heimili sínu: „Mamma verður samt alltaf mamma mín“

Málið komst í hámæli í fjölmiðlum árið 2004. Einari þykir ýmislegt hafa verið skrumskælt á þeim tíma. Meðal annars hafi verið gefið sterklega í skyn að heimilisaðstæður hefðu verið með besta móti áður en móðir hans myrti systur hans. Því fer víðs fjarri. Mynd/Skjáskot. Vísir
Málið komst í hámæli í fjöl­miðlum árið 2004. Einari þykir ýmis­legt hafa verið skrum­skælt á þeim tíma. Meðal ann­ars hafi verið gefið sterk­lega í skyn að heim­il­is­að­stæður hefðu verið með besta móti áður en móðir hans myrti systur hans. Því fer víðs fjarri. Mynd/Skjáskot. Vísir

Ellefu ára stúlka fannst stungin til bana á heimili sínu á Hagamel í Reykjavík í júní árið 2004. Móðir stelpunnar, hafði veist að dóttur sinni og bróður hennar með hníf.

Bróður stelpunnar tókst að flýja úr íbúðinni og fór yfir til vinar síns sem hringdi á lögregluna. Er lögreglan kom heim að heimili þeirra fann hún stúlkuna látna í rúmi sínu, en hún hafði verið stungin margsinnis. Móðirin var sjálf illa særð þar sem hún hafði stungið sjálfa sig eftir að hafa sært son sinn og banað dóttur sinni.

Konan var færð á spítala þar sem hennar var gætt, en þaðan var hún síðan færð að Sogni. Konan hafði áður reynt að fremja sjálfsvíg og hafði einnig sagt í návist annarra að frekar myndi hún drepa sig og börnin sín en að þau yrðu tekin af henni. Kennarar barnanna höfðu að auki lýst yfir áhyggjum af velferð þeirra. Konan var dæmd óskahæf og gert að sæta öryggis­gæslu á réttar­geðdeildinni að Sogni.

Enginn sagt honum að litla systir væri látin

Ellefu ára stúlka stungin til bana. Þannig hljómaði forsíðu­fyrirsögn Frétta­blaðsins þann 1. júní árið 2004. Morguninn áður hafði móðir Einars Zeppelin Hildar­sonar myrt litlu systur hans og reynt að drepa hann.

Þegar blaðið barst inn um bréfa­lúgur lands­manna lá Einar sofandi á bráða­móttöku Land­spítalans. Hann var með stungusár í kviðnum, í öxl og síðu. Enginn hafði enn sagt honum að litla systir hans, væri látin.

„Ég fór á Korn-tónleika um kvöldið. Þetta voru góðir tónleikar á sínum tíma. Þegar ég kom svo heim fann ég strax að mamma var dálítið hástemmd. Hún sagði við mig að út af tónleikunum yrðu örugglega mikil læti í bænum og bað mig um að taka skaft af ryksugu og skorða undir hurðarhúninum á útidyra­hurðinni. Hafandi alist upp með mömmu minni þá var maður vanur alls konar vitleysu. Hún sagði eitthvað svona og maður var alveg hættur að rífast um það.“

Maður lærir að lifa með því

Einari sagði í samtali við Vísi árið 2015 að honum þætti vænt um mömmu sína og hefur fyrir löngu sætt sig við fortíðina.

„Maður lærir að lifa með því og skilja að þetta er bara sjúkdómur. Kannski munu einhverjir lesa þetta og vita að það er von. Kannski munu aðrir lesa þetta sem eru að díla við fjöl­skyldu sem er veik.“


„Það er mjög erfitt að eiga í samskiptum við veikt fólk. Mamma verður samt alltaf mamma mín og það er ekkert sem breytir því. Ef mig vantar móðurleg ráð þá tala ég við hana því ég á enga aðra mömmu. Og ég reyni að styðja hana eins og ég get svo henni nái að líða vel. Að sjálfsögðu þykir mér vænt um hana og það mun aldrei breytast sama hvað skeður. Ég geri það sem ég get til að vera til staðar fyrir hana. Hún er yndisleg manneskja. Hún er mjög góð kona og vill öllum vel. Hún er bara lasin.“

Heimildir:

Snærós Sindra­dóttir. 18. júlí 2015. Mamma reyndi að drepa mig. Vísir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá