Vodkamerkið Svedka hefur endurvakið hina þekktu vélmennapersónu Fembot eftir tæplega 13 ára fjarveru úr auglýsingum vörumerkisins.
Persónan mun nú birtast í nýrri auglýsingu sem sýnd verður í tengslum við Ofurskálina, eða Super Bowl eins og viðburðurinn heitir á ensku, en athygli vekur að auglýsingin var að mestu leyti framleidd með gervigreind.
Í 30 sekúndna auglýsingunni má sjá Fembot ásamt Brobot, sem er ný persóna, dansa fyrir framan hóp veislugesta. Í myndbandinu uppgötva vélmennin jafnframt Svedka-vörur sem leynast innan í líkömum þeirra. Framleiðsla auglýsingarinnar byggði nær alfarið á gervigreindarlausnum fremur en hefðbundnum leiðum. Dýrar auglýsingar í Super Bowl hafa lengi verið hefð í Bandaríkjunum og þykja sumar auglýsingarnar merkilegri en viðburðurinn sjálfur.
Dansatriði vélmennanna var valið úr fjölda tillagna sem bárust í gegnum keppni á samfélagsmiðlinum TikTok. Sigurvegarinn var Jessica Rizzardi, 23 ára íbúi í Nashville í Bandaríkjunum.
Eigandi Svedka, drykkjarvörufyrirtækið Sazerac, hefur kynnt auglýsinguna sem þá fyrstu sem sýnd er sem hluti af Ofurskálinni sem er „að mestu“ búin til með gervigreind.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir