Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Matvæli sem hafa neikvæð áhrif á andlega heilsu – Sjáðu listann

Mynd/Envato Elements
Mynd/Envato Elements Mynd: Christian Draghici

Háskóla- og lækna­deildir í Norður- og Suður-Ameríku hafa rannsakað fylgni á milli unninna matvæla og slakrar andlegrar heilsu.

Niður­stöður benda til þess að þeim mun meira sem matvæli eru unnin þeim mun minna af nauðsyn­legum næringar­efnum innihalda þau og jafnframt að þau innihaldi meira af aukaefnum á borð við bragð- og litarefni.  

Svo segir í grein á Psychology Today.

UPF (ultra processed foods) eða ofurunnin matvæli, eru almennt fljótleg og auðveld í undir­búningi og/eða jafnvel seldar sem full­eldaðar máltíðir. Ofurunnin matvæli eru oft ódýrari en hrein fæða, sérstak­lega þegar þau eru seldar undir vörumerki verslana. Það útskýrir hvers vegna meira en 70 prósent allra pakkaðra matvæla sem seld eru í Banda­ríkjunum eru talin UPF, og þessar matvörur eru um það bil 60 prósent af öllum hita­einingum sem neytt er þar ytra.

Rann­sóknin er byggð á gögnum sendum frá 10 þúsund körlum og konum eldri en 18 ára.

Vinsælustu ofurunnu matvælin:

  • Sykraðir drykkir
  • Unnar kjötvörur t.d. álegg
  • Snakk
  • Franskar
  • Morgun­korn
  • Kökur
  • Kaka
  • Brauð

Rann­sakendur söfnuðu einnig gögnum frá þátt­takendum til að mæla þrjú sérstök geðheilsu­einkenni: Vægt þunglyndi, fjöldi daga sem þátt­takendur upplifðu kvíða og fjölda daga þar sem þeir fundu fyrir skertri andlegri heilsu. Rann­sakendur komust að því að þeir þátt­takendur sem neyttu mest ofur­unninna matvæla voru með marktækt hærra hlutfall af vægu þunglyndi og kvíða.

Fyrri rann­sóknir hafa leitt í ljós að aukaefni í matvælum sem notuð eru í ofurunnin matvæli, eins og gervi­sætuefni og ýruefni, eru tengd breytingum í heila, auknum bólgum og breyttum efna­skiptum. Aðrar rann­sóknir hafa leitt í ljós að fólk sem skortir nauðsynleg næringar­efni í mataræði sínu og neytir mikils magns sykri er í meiri hættu á að fá þunglyndi og kvíða en þeir sem borða hollara og hreinna mataræði, svo sem Miðjarðar­hafs­mataræði sem gengur út á að borða náttúru­lega og næringar­ríka fæðu, svo sem sjávar­fang, grænmeti, ólífuolíu, belg­jurtir og hnetur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Asninn Hope í Georgíu hefur fengið staðfest heimsmet frá Guinness

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“