Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Fundur Ásmundar og Lífs án ofbeldis – „Hagsmunir barna í þeirra eigin málum trompi allt annað“

„Stjórnar­konur Lífs án ofbeldis áttu fund með Ásmundi Einari Daðasyni mennta- og barnamála­ráðherra nú í morgun, þar sem rædd voru sameiginleg markmið sem varða hagsmuna­gæslu barna í heimilis­ofbeldis­málum,“ segir í yfir­lýsingu sem Líf án ofbeldis sendi frá sér í dag.

„Ráðherra lagði mikla áherslu á að hagsmunir barna í þeirra eigin málum trompi allt annað. Ljóst er að brennandi áhugi er í ráðuneytinu á að gera miklu betur við að efna skuld­bindingar stjórn­valda um að setja hagsmuni barna ávallt í forgang, skýra verkferla og skerpa á þeim lögum sem eru á forræði ráðuneytisins.  Á fundinum voru ræddar þær brota­lamir sem Líf án ofbeldis sér kerfis­bundið í málum barna sem koma úr heimilis­ofbeldi, dæmi um mæður sem hafa þurft að flýja land með börnin sín, börn sem fá ekki áheyrn í kerfinu.“ Þá kemur fram að fundar­gestir hafi verið sammála um nauðsyn samspils milli barna­verndar­laga annars vegar og barnalaga hinsvegar þegar kemur að ákvörðun í forsjár- og umgengnis­málum, þar sem fyrir liggur rökstuddur grunur um ofbeldi gegn barni og nákomnum.

„Samtökin fyrir hönd þolenda ofbeldis, treysta því að dómsmála­ráðherra, sem er í forsvari fyrir barnalög, muni stíga öll nauðsynleg skref í þessa sömu átt að hagsmunum barna, þegar kemur að þessum umfangs­mikla mála­flokki sem sannarlega varðar líf og heilsu barna til framtíðar.  Líf án ofbeldis fagnar því að samtalinu sé komið á við mennta- og barnamála­ráðuneytið og mun í fram­haldinu halda áfram að upplýsa barnamála­ráðherra um reynslu brotaþola heimilis­ofbeldis af kerfinu svo hún nýtist til úrbóta í þeirri vinnu sem er fyrir höndum í ráðuneytinu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Viðtal
Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.
Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá