Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Eftirlitsmyndavélar skiptu sköpum í nauðgunardómi: „Ég sést rása þar sem ég geng með honum burt“

Nýverið var karlmaður dæmdur fyrir nauðgun í Lands­rétti, sem átti sér stað árið 2019. Lands­réttur staðfesti tveggja og hálfs árs fangelsisdóm héraðs­dóms yfir manninum fyrir gróft kynferðis­brot gegn konu sem gat enga björg sér veitt sökum ölvunar og svefn­drunga.

Maðurinn heitir Augustin Dufatanye, en er betur þekktur undir nafninu Auggie Duffy. Hann gengur enn laus og erfitt hefur reynst fyrir brotaþola hans að fá upplýsingar er lúta að dómnum og yfir­vofandi fangelsis­vist. Hún segist upplifa mikinn ótta við það að geta rekist á manninn sem braut á henni hvar og hvenær sem er. Samkvæmd heimildum Mannlífs hefur Auggie Duffy nú áfrýjað dómnum til Hæstaréttar.

Þriggja ára barátta

Þegar blaða­maður Mannlífs sest niður með konunni sem Auggie Duffy var dæmdur fyrir að brjóta á kynferðis­lega, er strax ljóst að um er að ræða konu uppfulla af baráttu­vilja, þrátt fyrir þá þrekraun sem hún hefur þurft að ganga í gegnum. Þrekraun sem enn hefur ekki tekið enda. 

Hún segist vilja segja sögu sína til þess að vara sem flestar konur við manninum sem um ræðir. 

Síðustu þrjú ár í lífi konunnar hafa einkennst af baráttu í gegnum lögreglu­rannsókn og tvö dómstig, með allri þeirri óvissu, streitu og álagi sem því fylgir. Hún lýsir því hvernig henni þyki kerfið ekki styðja við þolendur og upplýsinga­leysið sem fylgi því að vera vitni í sínu eigin nauðgunar­máli valdi mikilli sálar­angist og óöryggi.

Kvöldið sem breytti öllu

Kvöldið sem breytti lífi konunnar til frambúðar var í mars árið 2019. Henni hafði verið boðið í mat og drykk með samstarfs­félaga sínum frá því klukkan 12 um daginn. Allan daginn bauð samstarfs­félaginn upp á drykki og þau skemmtu sér vel. 

Konan fór mjög sjaldan út að skemmta sér, þar sem hún átti tvö ung börn á þessum tíma. Þennan dag átti því að sletta ærlega úr klaufunum og njóta þess út í ystu æsar. Þegar liðið var á kvöldið var konan orðin mjög ölvuð og hafði flakkað með samstarfs­manni sínum á milli bara, þar sem þau hittu vini og vandamenn. 

Þau voru stödd á bar í miðbæ Reykja­víkur þegar hún hitti Auggie Duffy í fyrsta skipti, manninn sem átti eftir að vera dæmdur fyrir að brjóta gróflega á henni kynferðis­lega um nóttina. 

Augustin Dufatanye, eða Auggie Duffy.

Eftirlitsmyndavélar skiptu sköpum

Upptökur eftirlits­myndavéla úr miðbæ Reykja­víkur reyndust meðal mikil­vægra gagna sem leiddu til sakfellingar Auggies. Þær sýna að fyrsta skipti sem konan átti samskipti við hann hafi verið upp úr klukkan 22 um kvöldið á barnum. Þá var hún augljós­lega orðin mjög drukkin. Hann var einsamall.

Upptökur sýna konuna ganga um, dansa og tala við fólk á barnum. Hún leggur töskuna sína á gólfið, nálægt stól þar sem Auggie situr. Það sýnir hve ringluð hún er orðin á þessum tíma­punkti, að hún er nokkrum sekúndum síðar búin að gleyma því hvað hún gerði við töskuna. 

„Ég er þarna gangandi um að leita, þegar hann grípur í mig og sýnir mér töskuna. Ég tala þá við hann í smá stund, því hann er nátt­úrlega búinn að aðstoða mig þarna. Samkvæmt bæði upptökunum og barþjóninum á staðnum var ég mjög drukkin, spjall­andi við alla og svoleiðis.“

Á upptökunum sést konan síðan taka töskuna sína, fara út og yfir götuna á annan bar.

„Ég fer á þann bar, vegna þess að vinur minn var að vinna þar. Hann sést síðan elta mig þangað. Ég panta mér vínglas á barnum og svo er hann augljós­lega kominn þarna til mín, svo ég panta viskí handa honum. Þetta voru einu drykkirnir sem ég pantaði yfir allan þennan dag. Fram að þessu hafði samstarfs­maður minn greitt fyrir allt.“

Reyndi að fá hana burt með sér

Barþjónninn á seinni barnum lýsti því síðar fyrir konunni og dómnum að á þessum tíma­punkti hefði Auggie þegar verið farinn að reyna að fá hana með sér í burtu frá vinum hennar.

„En ég var mjög ákveðin og sagðist ekki ætla að gera neitt slíkt.“

Eftir þetta fór konan aftur á fyrri barinn og Auggie síðan einhverju síðar. Hún segir að einhver tími hafi liðið þar sem hún var á barnum, en að svo í kringum klukkan eitt eftir miðnætti sjáist hún á upptökunum reyna með erfiðis­munum að klæða sig í kápuna sína. Hún talar við yfirmann sinn og sést því næst yfirgefa barinn.

„Ég verð augljós­lega mjög ringluð þarna fyrir utan, held enn þá á drykk og kem síðan aftur inn á barinn.“

Hún segist ekki muna neitt af þessum atburðum, heldur sé þetta eitthvað sem hún hafi séð á öryggis­mynda­vélunum, sem og hlutir sem lögreglan hafi sagt henni frá.

„Síðan fer ég aftur yfir á seinni barinn og það sést hvað ég er ölvuð, ég missi töskuna mína, hrasa út um allt og svoleiðis. Síðan fer ég út aftur vegna þess að vinur minn bendir mér á leigubíl og segir mér að taka hann.“

Konan nær augljós­lega ekki að koma sér í leigu­bílinn. Þá sést hvar Auggie kemur út af fyrri barnum og gengur til hennar. 

„Hann kemur og gefur mér fimmu. Þarna er hann búinn að vinna undir­búnings­vinnuna með því að kynnast mér örlítið, bara nóg til þess að hann sé ekki alveg ókunnugur. Þannig að hann sé góði gæinn.“

Auggie segir eitthvað við konuna og eftir það fara þau á þriðja barinn, sem konan segist annars aldrei hafa farið á. 

Konan sést koma út af barnum, ráfandi fram og til baka, talandi við hinn og þennan. Hún sést síðan fara aftur inn á barinn en henni er vísað út. 

„Þá kemur hann til mín og segir eitthvað við mig. Ég sést rása þar sem ég geng með honum burt. Eftir þetta hverfum við úr sjónmáli. Við vitum í raun ekki nákvæmlega hvað gerist eftir það.“

Greinina, sem inni­heldur viðtal við brotaþola og frásagnir annarra heimildar­manna tengdum saka­manninum, má í heild sinni lesa í nýjasta tímariti Mannlífs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Málin vörðuðu meðal annars akstur í sviptingu og undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Í nokkrum þeirra höfðu fyrri brot áhrif á refsingu.
Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá